Margrét Frímannsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. samgn. umfjöllun hennar um frv. til l. um breytingar á hafnalögum. Þó að ég sé í raun ekki fyllilega ánægð með afgreiðslu nefndarinnar sætti ég mig við hana.
Með flutningi frv. var ætlað að vekja umræðu um málið og reyndar vekja menn til umhugsunar um vörslu sjóða og kostnað sem það hefur í för með sér sem virðist ótrúlega hár, í það minnsta þegar Seðlabankinn á í hlut. En sem stuðningsmaður þessarar ríkisstjórnar hlýt ég að treysta henni til þess að fara vel með málið og þakka hv. samgn. fyrir umfjöllun hennar.