Pálmi Jónsson:Herra forseti. Ég vil leyfa mér að taka undir með hv. 2. þm. Vestf. og óska eftir því við hæstv. forseta að hann fresti þessari umræðu og taki fyrir önnur mál á dagskrá sem brýnna er að koma áfram að því er honum kann að sýnast og vil gjarnan heyra viðbrögð hæstv. forseta. Ég gæti þá stytt mál mitt að þessu sinni ef hann vill verða við þeirri ósk, ella sé ég ekki ástæðu til að stytta ræðu mína að sinni. ( Forseti: Eins og hér gefur á að líta eru 8., 9., 10. og 11. mál ákaflega samtvinnuð og forseti vildi í rauninni um leið spyrja hv. ræðumann hvort frestunarbeiðnin eigi við um öll þessi mál.) Það er eðlilegt að fylgifrumvörp lúti sömu meðferð hér í hv. deild. ( Forseti: Þá vill forseti lýsa því yfir að fyrir sinn hlut getur hann fallist á frestunarbeiðni, um sinn a.m.k.) Ég fresta þá ræðu minni, hæstv. forseti.