Tekjustofnar sveitarfélaga
Þriðjudaginn 09. maí 1989

     Frsm. félmn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Virðulegi forseti. Félmn. hefur fjallað um frv. um tekjustofna sveitarfélaga samhliða frv. um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Með nefndinni störfuðu Húnbogi Þorsteinsson, skrifstofustjóri í félmrn., og Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri í Garðabæ.
    Nefndin mælir með samþykkt frv. með smáorðalagsbreytingu sem flutt er innan nál. til að gera texta frv. skýrari. Einstaka nefndarmenn áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja brtt. sem fram kunna að koma. Undir nál. skrifa Guðrún Helgadóttir, Alexander Stefánsson, Geir H. Haarde, Jón Kristjánsson, Eggert Haukdal, Kristín Einarsdóttir og Jón Sæmundur Sigurjónsson.