Húsnæðisstofnun ríkisins
Þriðjudaginn 09. maí 1989

     Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Þar sem fyrir liggur að þetta atriði er nauðsynlegt svo að fullnægt sé ákvæðum stjórnarskrárinnar og jafnframt hitt að þrátt fyrir samkomulag stjórnarflokkanna um að þeir ákveði heildarupphæð og skiptingu fjárhæðarinnar, þá er það víst að ríkisstjórnin er ekki eilíf en lögin halda áfram að standa nema þingið breyti þeim og ég segi því já.