Kosningar til Alþingis
Miðvikudaginn 10. maí 1989

     Frsm. allshn. (Jón Helgason):
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis nr. 80/1987 frá allshn.
    Nefndin hefur rætt þetta frumvarp og kallaði til viðræðu Ólaf Walter Stefánsson, skrifstofustjóra í dómsmrn.
    Efni frv. fjallar um að heimila þeim íslenskum ríkisborgurum sem búsettir eru erlendis að eiga hér kosningarrétt þó að þeir hafi ekki búsetu hér á landi. Í núgildandi kosningalögum er gert ráð fyrir að íslenskir ríkisborgarar erlendis haldi þeim rétti í fjögur ár. En það hefur komið fram að mörgum finnst að þar sé um of skamman tíma að ræða og breyttar aðstæður hafa gert brýnna að breyta þessu þar sem t.d. nám erlendis tekur oft lengri tíma en fjögur ár og því er óeðlilegt að þeir sem ætla sér að koma heim missi kosningarrétt sinn þó að þarna verði um lengri fjarvist að ræða en fjögur ár.
    Í þessu frumvarpi er gert ráð fyrir að þessi tími verði lengdur upp í átta ár, en að þeim fresti loknum gefist íslenskum ríkisborgurum kostur á að sækja um að halda rétti sínum til að vera hér á kjörskrá áfram ef þeir vilja sækja um það. Þeir sem eru þá orðnir rótgrónir erlendis munu sennilega í litlum mæli leita eftir slíkum rétti, en þeir sem þá ætla sér enn að halda heim og fylgjast hér með málum munu líklega vilja notfæra sér þetta ákvæði.
    Með tilliti til þessa mælir allshn. með samþykkt þessa frumvarps óbreytts.
    Guðrún Agnarsdóttir sat fund nefndarinnar og er samþykk afgreiðslu frumvarpsins.