Forseti (Guðrún Agnarsdóttir):
Ég vona að á þessum fundi, sem nú er haldinn hjá forseta sameinaðs þings, verði gengið frá forgangsröð mála fyrir þinglok og fáist um það skýrari línur en við höfum haft hingað til, en veiti góðfúslega leyfi til þess að gera hlé á þessari umræðu að ósk hv. 2. þm. Norðurl. e.