Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Miðvikudaginn 10. maí 1989

     Eyjólfur Konráð Jónsson:
    Hæstv. forseti. Það er út af fyrir sig ekkert að vanbúnaði að mæla fyrir meirihlutaáliti um tekjuskatt og eignarskatt eða hefja umræðuna. Annað en það að ég sé ekki að þingskjöl séu komin. Þau voru seint afhent. ( Forseti: Við gerum örstutt hlé á fundinum, fimm mínútna hlé, meðan gengið er úr skugga um það að öll þingskjöl hafi borist.)