Staðgreiðsla opinberra gjalda
Miðvikudaginn 10. maí 1989

     Sólveig Pétursdóttir:
    Hæstv. forseti. Mig langar til að nota þetta tækifæri til að þakka þá meðferð sem þetta mál hefur fengið í hv. deild og þá sérstaklega í hv. fjh.- og viðskn. Í þeirri nefnd og því áliti sem mælt var fyrir áðan hefur það komið í ljós að full samstaða virðist um málið, enda er hér um mikið réttlætismál að ræða.