Staðgreiðsla opinberra gjalda
Miðvikudaginn 10. maí 1989

     Matthías Bjarnason:
    Herra forseti. Þar sem ég er meðflm. að þessu frv. og sömuleiðis á ég sæti í þeirri nefnd sem fjallaði um frv. og skoðaði allar umsagnir um það finnst mér rétt að segja nokkur orð.
    Ég er þeirrar skoðunar að það hafi verið slys, þegar lögin um staðgreiðslu opinberra gjalda voru hér til umræðu og afgreiðslu og um virðisaukaskattinn, að lögfesta forgang þeirra skattakrafna sem frv. þetta fjallar um að afnema. Ríkissjóður hefur forgang í innheimtu allra krafna, hefur forgang í söluskattskröfum, beitir þar refsiákvæðum, mjög háum vöxtum sem mundu vera kallaðir á máli vaxtamanna og vaxtalækkunarmanna okurvextir, alveg tvímælalaust. Þar eru ákvæði sem eiga að ýta undir að menn standi í skilum með sína skatta til ríkisins. Ég tel því að frv. sé ákaflega mikils virði og það getur haft áhrif. Það er misskilningur hjá hv. 6. þm. Norðurl. e. Stefáni Valgeirssyni að það geti orðið atvinnurekstrinum til tjóns, þetta frv., eins og hann hélt fram í nefndinni og staðfesti í sinni ræðu áðan. Ég held að þessar forgangskröfur geti haft þau áhrif að bankar og aðrar lánastofnanir taki tillit til þessara forgangskrafna með því að lána minna út á eignir en áður hefur þekkst. En vitaskuld er langbesta lausnin til þess að menn standi í skilum bæði við ríkissjóð og aðra að skapa atvinnulífinu í landinu eðlileg rekstrarskilyrði sem núna eru ekki fyrir hendi. Það er ein höfuðástæðan fyrir því að vanskil hafa orðið. Það er hlutur sem menn ættu að sameinast um að bæta frá því sem nú er. Hér er um að ræða að menn eigi að sitja við sama borð í þessum efnum. Þess vegna er þetta frv. flutt. Grg. sem því fylgdi, framsöguræða og nú ræða hv. 1. flm. frv. gera ráð fyrir því að hér sé um nauðsynlega leiðréttingu að ræða.
    Það er mjög eftirtektarvert að flm. að þessu frv. eru þingmenn úr öllum stuðningsflokkum ríkisstjórnarinnar þremur og allir eru þeir einnig nefndarmenn í fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar og til viðbótar kemur svo formaður fjh.- og viðskn., hv. 1. þm. Norðurl. v., sem sannfærist um að hér sé um sjálfsagt mál að ræða. Ég er að mörgu leyti undrandi að hæstv. fjmrh. skuli eftir að stjórnarliðar hafa tekið ákvörðun um að flytja þetta frv. ásamt þingmönnum stjórnarandstöðu, tekið ákvörðun um að mæla með samþykkt frv. í hv. fjh.- og viðskn. og það er gert sameiginlega af öllum nefndarmönnum, leggjast gegn því. Ef hér er um svo mikið mál að ræða og mikið kappsmál fyrir hæstv. fjmrh. hefði hann í fyrsta lagi átt að koma í veg fyrir það og beita sannfæringarkrafti sínum, sem er mikið af eins og allir vita, á þessa stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar að gerast ekki flm. þessa máls. Í öðru lagi, ef þeir hafa hlaupið út undan sér í upphafi og fjmrh. hafi ekki vitað um að þeir gerðust meðflm., var um að gera að taka þá á beinið í tæka tíð áður en nefndin tók afstöðu til málsins á grundvelli allra umsagna sem fyrir lágu. En ef við ætlum aftur á móti að stuðla að því að reyna að hraða þingstörfum og afgreiða þau mál sem þingið vill afgreiða held ég að þetta sé ekki leiðin til þess

heldur öfugt að farið.