Sighvatur Björgvinsson:
Virðulegi forseti. Það eru aðeins örfá orð út af tillögu sem dreift hefur verið á borð þingmanna frá mér um frávísun á þessu máli. Það hefur fallið niður ein setning eða setningarhluti sem gerir það að verkum að till. er ekki sú sem hún á að vera og verður dreift endurprentaðri þessari till. Hún á að orðast svo, herra forseti:
,,Þar sem nauðsynlegt er að skoða nánar þau atriði sem fjallað er um í frumvarpinu, m.a. í því skyni að fyrir liggi hvaða áhrif breytingar eins og þær sem frumvarpið gerir ráð fyrir hafa á störf og aðstöðu innheimtumanna ríkissjóðs, og rétt er þá að taka til skoðunar um leið`` --- þessi setning hefur fallið niður --- ,,og rétt er þá að taka til skoðunar um leið meðferð annarra krafna, svo sem lífeyrissjóðsiðgjalda sem ekki hafa verið staðin skil á til lífeyrissjóða`` o.s.frv.
Það eru aðeins tvær setningar í viðbót, virðulegi forseti. Í fyrsta lagi skulu menn gera sér fulla grein fyrir því að hér er aðeins verið að tala um forgang opinberra gjalda þriðja aðila. Hér er um að ræða staðgreiðslu skatta sem fyrirtæki hafa innheimt af starfsmönnum sínum og ekki staðið skil á og söluskatt eða virðisaukaskatt sem viðskiptamenn fyrirtækisins hafa greitt. Hér er ekki um að ræða greiðslu fyrirtækisins sjálfs heldur þriðja aðila.
Auk þess vil ég að lokum benda mönnum á að það er einnig nauðsynlegt að skoða meðferð lífeyrisiðgjaldanna. Þegar hlutur atvinnurekenda er ekki með sama hætti forgangsuppgjörsviðfangsefni og lífeyrisiðgjaldahlutur launþegans þýðir það að ef sá hlutur glatast missir launþeginn rétt sinn í lífeyrissjóðum og lánsrétt sinn hjá Húsnæðisstofnun ríkisins eins og lög um Byggingarsjóð ríkisins eru nú úr garði gerð. Ef menn ætla að skoða þetta betur, eins og ég legg til, sem í frv. er rætt um, er nauðsynlegt að taka einnig til skoðunar meðferð lífeyrissjóðsiðgjalda varðandi forgangskröfur í gjaldþrotaskiptum.