Forseti (Kjartan Jóhannsson):
    Áður en lengra er haldið er kannski rétt að geta þess að hugmyndin er sú að halda áfram fundi fram undir í kringum kl. 7 og hefja síðan kvöldfund eða framhaldsfund kl. 9 í kvöld. En síðan er til athugunar hvort sérstakur atkvæðagreiðslutími yrði settur til hliðar á morgun. Það er ekki fullfrágengið, en talað um möguleikana á því að halda fund í deildini í kringum hádegisbil, væntanlega á milli funda í Sþ. Um það verður tilkynnt nánar, væntanlega um eða upp úr 9 í kvöld. Ég vil nota tækifærið, úr því að hér eru svo margir saman komnir, að hvetja nú þingdeildarmenn eindregið til þess að sitja vel fundi í kvöld.