Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
Hæstv. forseti. Hv. 1. þm. Suðurl. beindi hér nokkrum spurningum til hæstv. starfandi forsrh. en þar sem hann er því miður upptekinn eða bundinn við umræður í Ed. og átti þess vegna ekki tök á því að hlýða á mál hv. þm. auk þess sem ég átti nokkra aðild að því samkomulagi sem náðist milli stjórnarflokkanna um frv. þegar það var verið að vinna það og undirbúa varð það að samkomulagi okkar hv. 1. þm. Suðurl. að ég reyndi að svara þessum fyrirspurnum eða láta í ljós skoðun mína á því sem hann spurði hér einkum um.
Það er ljóst að um frv. var fjallað í ríkisstjórninni allítarlega þar sem áherslumunur var nokkur og ekki fullkomið samkomulag milli stjórnarflokkanna þegar það var í upphafi lagt þar fyrir og því var sá háttur hafður á, eins og stundum áður, að það var sett í það ráðherranefnd eða einum ráðherra frá hverjum stjórnarflokki falið að líta á málið og ég tók þátt í því ásamt hæstv. félmrh. og hæstv. landb.- og samgrh. Niðurstaðan af hálfu okkar framsóknarmanna varð sú að leggja til að frv. yrði lagt fram eins og það var endanlega útbúið og þingflokkur framsóknarmanna ályktaði hins vegar svo að við litum á þetta sem tilraun með húsbréfakerfi og hún skyldi gerð til hliðar við núv. húsnæðislánakerfi. Þetta þekkja menn og þarf ekki að rekja það ítarlega. Við náðum saman um nokkur atriði sem ég vil leyfa mér að fullyrða að séu undirstrikun á því að við viljum líta á þetta sem tilraun. Ég vona eindregið að sú tilraun gangi vel og þau atriði sem hér eru sett inn og m.a. koma fram í ákvæðum til bráðabirgða við frv. séu ekki til þess að skemma það neitt heldur til þess að gefa okkur tíma til að átta okkur á því hvernig þetta nýja kerfi fer af stað og jafnframt að fylgjast með því að það hafi ekki óeðlileg áhrif á fjármagnsmarkað, taki ekki til sín óeðlilega mikla fjármuni frá öðrum þáttum þjóðfélagsins og frá atvinnulífinu eins og hér hefur svolítið verið rætt um og þýði ekki neina efnahagslega byltingu eða verðbólgueld eða verði ekki mikill þensluvaldur. En m.a. þess vegna töldum við rétt að skoða það hvort ekki ætti að setja inn í þetta einhverja ákveðna takmörkun á því fé sem varið yrði til þessa húsbréfakerfis til að byrja með og það væri hægt að fylgjast með því hvernig það færi af stað.
Eitt af atriðunum sem við framsóknarmenn settum fram í viðræðunum milli stjórnarflokkanna var það að þetta skyldi takmarkast við ákveðna upphæð. Samkomulag varð hins vegar um að ekki væri rétt að setja þessa upphæð inn í frv. og sú tala sem við höfðum upphaflega nefnt, 500 millj. kr., var líka talin of lág til þess að húsbréfafrv. og húsbréfakerfið réttara sagt hefði möguleika á því að sýna sig eða sanna sig og þess vegna varð samkomulag um það að halda kaupskyldu lífeyrissjóðanna óbreyttri, að lífeyrissjóðirnir skyldu verja 55% af ráðstöfunarfé sínu til þess að kaupa skuldabréf af Húsnæðisstofnun ríkisins, en eins og segir í 1. gr. frv., þá megi fullnægja þeim samningsbundnu skyldum að hluta til
með því að kaupa húsbréf. Okkar samkomulag varð það að 10% af þessum 55% mætti verja í þessu skyni og samkvæmt upplýsingum um ráðstöfunarfé sjóðanna taldist okkur til að það kynnu að vera um það bil 1,7 milljarðar kr.
Þetta varð niðurstaðan og við höfum litið svo á að hér væri um viðmiðun að ræða, ég ítreka það, og þar sem hv. 1. þm. Suðurl. er ekki hér í salnum hlustar kannski hv. þm. Geir H. Haarde á þessar skýringar mínar og þessa viðmiðun og þetta samkomulag sem ég vil undirstrika að tókst. Við höfum litið svo á að hér væri um að ræða viðmiðun upp á 1,7 milljarða kr. sem þetta húsbréfakerfi hefði til að byrja með úr að spila og að sex mánuðum liðnum skyldi þessi viðmiðun tekin til endurskoðunar. Það var einnig skýrt um það talað að þá skyldum við sjá hvernig málið hefði farið af stað, hvernig það hefði þróast og hvort ástæða væri til að taka þetta einhverjum öðrum tökum en við höfðum þarna náð samkomulagi um.
Síðan vil ég undirstrika það að í frv. eins og það liggur nú fyrir eftir 2. umr. segir m.a. í m-lið 2. gr., með leyfi forseta:
,,Húsbréfadeild gerir tillögu til félmrh. um verðtryggingarskilmála, endurgreiðsluform, lánstíma, vexti og heildarfjárhæðir í hverjum flokki. Ríkisstjórnin tekur ákvörðun um framangreind atriði að fenginni umsögn Seðlabanka Íslands.``
Og þetta atriði um heildarfjárhæð í hverjum flokki er síðan undirstrikað í nál. 2. minni hl. félmn. og segir þar m.a.:
,,Með þessu er gert ráð fyrir að ríkisstjórnin geti betur fylgst með því að rekstur húsbréfakerfisins sé í samræmi við sett markmið í efnahagsmálum.``
Það er ríkisstjórnarinnar að fylgjast með því hversu mikið er gefið út af þessum húsbréfum á hverjum tíma og ég lít svo á að einmitt þetta ákvæði sé mjög í samræmi við þann fyrirvara og þá viðmiðun sem við framsóknarmenn vildum hafa á þessu máli og þetta sé til þess m.a. að undirstrika það að hægt sé að fylgjast með því hvað þarna er að gerast og að þar sé litið til þess að húsbréfakerfið taki ekki til sín óeðlilega mikla fjármuni frá öðrum þáttum efnahagslífsins og valdi ekki neinni slíkri byltingu að menn þurfi að hafa af því verulegar áhyggjur.
Ég held að þetta séu meginatriðin í því sem við vorum spurðir um, framsóknarmennirnir, og beðnir að gera hér grein fyrir, hver væri okkar skoðun á þessu samkomulagi og hvernig við skildum það, og ég held að það sé enginn vafi á því og sé enginn misskilningur í því máli á milli stjórnarflokkanna og ráðherranna sem að þessu samkomulagi stóðu. Við, eins og ég nefndi áðan, urðum sammála um það að þetta væri ekki sett inn í frv., þetta væri sú viðmiðun sem við vildum setja á þessu stigi og að sú viðmiðun yrði tekin til endurskoðunar að sex mánuðum liðnum.