Fyrirspyrjandi (Eiður Guðnason):
Virðulegi forseti. Á þskj. 718 hef ég leyft mér að bera fram stutta fsp. til samgrh. um könnun á hagkvæmni Hvalfjarðarganga eða brúar yfir Hvalfjörð. Fsp. er borin fram í framhaldi af samþykkt Alþingis sem vill nú svo til að gerð var fyrir nákvæmlega ári síðan, þ.e. 11. maí 1988, en sú samþykkt hljóðar sem hér segir:
,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta kanna hvort hagkvæmt sé að gera göng undir Hvalfjörð eða brú í fjarðarmynni.``
Og nú er spurning mín til hæstv. samgrh.: Hvað líður framkvæmd ríkisstjórnarinnar á þessari samþykkt Alþingis?