Fyrirspyrjandi (Karl Steinar Guðnason):
Frú forseti. Ég þakka hæstv. samgrh. fyrir skýr og greið svör. Málið er greinilega komið á fulla ferð nú loks eftir langt hlé og ég vænti þess að sá kostur verði valinn sem hagkvæmastur verður og legg áherslu á það að ég er persónulega þeirrar skoðunar að ekki sé vit í öðru en að keypt verði nýtt skip, nýtt og fullkomið skip sem þjónað geti því hlutverki sem best sem því er ætlað.