Starfsemi lífeyrissjóða
Fimmtudaginn 11. maí 1989

     Fyrirspyrjandi (Guðmundur H. Garðarsson):
    Virðulegi forseti. Ég hef lagt fram fsp. um frv. til l. um starfsemi lífeyrissjóða sem hefur verið tilbúið eftir því sem ég best veit og legið í skúffum fjmrh. undanfarin ár. Þess vegna hef ég beint þeirri fsp. til hæstv. fjmrh. hvort hann hyggist ekki leggja þetta frv. fyrir hið háa Alþingi þannig að hv. alþm. geti fengið það til skoðunar og umfjöllunar og ákvörðunartöku.
    Ástæðurnar fyrir þessari fsp., virðulegi forseti, eru m.a. þær að að undanförnu hefur staða lífeyrissjóða mjög verið til umræðu og hefur verið ráðist mjög harkalega á lífeyrissjóði launafólks úti á hinum almenna vinnumarkaði í þeirri viðleitni forráðamanna þessara sjóða að tryggja hag sjóðanna með það fyrur augum að þeir gætu staðið við sínar tryggingaskuldbindingar.
    Þá hafa átt sér stað miklar umræður um það með hvaða hætti lífeyrissjóðirnir gætu samið við hið opinbera í sambandi við fjármögnun húsnæðismálakerfisins og hefur það verið einlægur vilji og áhugi forráðamanna lífeyrissjóðanna sem og þeirra sem standa að lífeyrissjóðunum að unnt væri að semja með þeim hætti að aðilar gætu við unað, þ.e. í fyrsta lagi staðið við það að lífeyrissjóðirnir fengju þá ávöxtun sem eðlileg er miðað við það efnahagsumhverfi sem þeir starfa í og svo í öðru lagi að þeir geti staðið þannig að húsnæðismálakerfinu að húsnæðisþörf þjóðarinnar verði fullnægt og þá með þeim kjörum sem væru fólki viðráðanleg.
    Það er mjög flókið og erfitt mál að finna hið rétta jafnvægi í þessum efnum og því mjög þýðingarmikið að menn geri sér grein fyrir öllum stærðum sem koma við sögu í sambandi við þessi mál. Þess vegna er það mjög þýðingarmikið að hið háa Alþingi og þjóðin í heild fái raunverulega að vita hver sé staða lífeyrissjóðanna að mati þeirrar 17 manna nefndar sem stóð að því að semja frv. til laga um starfsemi lífeyrissjóða.
    Það liggur í augum uppi að það er þýðingarmikið út frá því sjónarmiði sem ég gat um áðan að þetta mál sé tekið til umfjöllunar og ákvörðunartöku og einnig er það mjög þýðingarmikið út frá því sjónarmiði að það verður að setja lífeyrissjóðunum ákveðnar starfsreglur, samræmdar starfsreglur.
    Ég vil, virðulegi forseti, rifja nokkuð upp aðdraganda þess að þetta frv. varð til sem enn hefur ekki verið lagt fram á hinu háa Alþingi. Það var í ríkisstjórnartíð Geirs Hallgrímssonar á árunum 1974--1978 sem lífeyrismál voru mjög til umfjöllunar, bæði á hinu háa Alþingi sem og úti í verkalýðshreyfingunni. Á þessum fyrstu árum lífeyrissjóða almennu verkalýðsfélaganna var mikið um það rætt með hvaða hætti unnt væri að tryggja (Forseti hringir.) --- Hef ég aðeins tvær mínútur, virðulegi forseti? ( Forseti: Þrjár.) Þá skal ég sleppa þessari forsögu og fá að ljúka máli mínu, með leyfi forseta. Ég hélt að það væri 5 eða 8 mínútur, en svona getur mönnum förlast. Maður áttar sig ekki alltaf á hinum nýju, breyttu reglum svo ég skal ljúka máli mínu, virðulegi forseti.

    En ég vil aðeins geta þess að á þeim árum var þessi 17 manna nefnd stofnuð. Í henni voru fulltrúar aðila vinnumarkaðarins og fulltrúa ríkisvaldsins og skyldi sú nefnd leggja fram tillögur með hvaða hætti væri unnt að tryggja sem best tryggingalegar bætur til launþega að starfsævi lokinni. Þetta frv. hefur þess vegna verið lengi í smíðum og er mjög æskilegt að það komi fram og fái rétta umfjöllun á hinu háa Alþingi. Ég vil að lokum, virðulegi forseti, minna á það að á síðasta alþýðusambandsþingi var samþykkt ályktun þar sem skorað var á hæstv. fjmrh. að leggja fram umrætt frv.