Fyrirspyrjandi (Matthías Á. Mathiesen):
Virðulegi forseti. Hæstv. fjmrh. hefur svarað þessari fsp. Þar komu fram þær tölulegu upplýsingar sem er að finna í skýrslu Ríkisendurskoðunar, á bls. 10 og bls. 11, sem hér var útbýtt í gær. Það sýnir sig að það kemur fram hvernig að þessum málum hefur verið staðið og það kom einnig fram í ræðu hæstv. fjmrh. að fjmrn. hefur enga heimild til þess að gera þá hluti sem hér hafa verið gerðir.
Hæstv. fjmrh. orðaði það svo að fyrirspyrjanda væri kunnugt um hvernig staðið væri að slíkum hlutum þegar um gjaldþrot væri að ræða. Það væri þá um að velja að veita afslátt eða tapa kröfum. Síðan taldi hann upp og sagði að frá árunum 1980--1987 væri um að ræða 127 mál og svo frá 1987 til 1989 44. Hann sagði enn fremur að í mati á þessum samningum væri að finna þá einu heimild sem fjmrh. og fjmrn. teldi sig hafa.
Í fyrsta lagi vil ég gjarnan segja það að ég kannast ekki við að þannig hafi verið staðið að málum a.m.k. fyrir árið 1980 eða t.d. á árunum 1974--1978, þegar sá sem hér stendur gegndi embætti fjmrh. og sá hinn sami taldi sig ekki hafa heimildir til þess að fella niður eða semja um slíka hluti. Hann taldi sig að einu leyti hafa heimild. Það var að semja um með hvaða hætti skuld yrði greidd, með hvaða hætti tryggt væri að skuldin kæmi til greiðslu. Aðrar aðferðir í sambandi við það hvort viðkomandi væri fær um að gera það eða ekki, þá væru menn komnir út á þær brautir að meta á milli aðila hvernig fara skyldi með þá hluti.
Ég vildi láta þetta koma hér fram og segja að í slíkri fsp. og í umræðutíma slíkrar fsp. er að sjálfsögðu ekki hægt að fara í umræður um raunveruleika málsins eins og hann er og það mun ég ekki gera, heldur nýta mér það að síðar í dag verður umræða um skýrslu Ríkisendurskoðunar um málefni Sigló hf. o.fl. þar sem hægt verður að árétta þessi mál betur. Hitt liggur ljóst fyrir að hér hefur verið farið inn á þær brautir. Ráðherrann sagði að frá árunum 1980--1987, það er ekki í hans tíð, hafi verið veittur afsláttur, felldar niður kröfur í 127 málum og frá árunum 1987--1989 í 44 málum. Það sýnist vera þess vegna mjög eðlilegt að leitað verði eftir því að um þessi atriði verði gefin skýrsla hér á Alþingi og þá leitað eftir mati þeirra aðila sem fylgja eiga eftir þeim málum að framkvæmdarvaldið fari ekki út fyrir þann ramma sem löggjafarvaldið hefur sett því og fá þá fram óyggjandi svör við því hvort hér hafi verið og sé verið að fara út fyrir valdsvið framkvæmdarvaldsins eins og löggjafarvaldið hefur sett því þann ramma.