Fyrirspyrjandi (Margrét Frímannsdóttir):
Virðulegi forseti. Á þskj. 932 hef ég leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. landbrh. um setningu reglugerðar varðandi innflutning blóma og grænmetis.
Á undanförnum árum hefur ræktun blóma og grænmetis hér á landi stóraukist og aukin notkun raforkulýsingar í gróðurhúsum gert það að verkum að sá tími sem innlend blóm og grænmeti er á boðstólum hefur lengst verulega. Því skyldi maður ætla að dregið hefði verulega úr innflutningi á þessari vöru til landsins en svo er ekki. Innflutningur afskorinna blóma og pottablóma hefur á undanförnum árum færst verulega í vöxt og það sama gildir um innflutning grænmetis. Tollar og skattar á þessum innflutningi lækkuðu og söluskattur var settur á innlenda framleiðslu. Samkeppnisstaða innlendrar garðyrkju er því afar slæm og það kemur jafnvel fyrir að innlendir garðyrkjubændur sitja uppi með framleiðslu sína þar til hún skemmist vegna þess að kaupmenn kjósa að selja fyrst innflutning og láta innlenda framleiðslu sitja á hakanum og verða garðyrkjubændur þá oft fyrir ómældu tjóni.
Það skýtur skökku við á þessum erfiðu tímum í atvinnulífi landsins að þá skulum við æ ofan í æ með því að heimila innflutning á vöru sem við getum framleitt sjálf stuðla að því að atvinnuöryggi þeirra sem þó hafa atvinnu er í verulegri hættu. Íslensk grænmetis- og blómaframleiðsla stenst fyllilega samanburð við erlenda framleiðslu og hefur notið velvildar neytenda sem hrein og ómenguð vara. Innflutt blóm og grænmeti flytja með sér alls konar óþverra, sjúkdóma og meindýr. Það hlýtur að vera stefna okkar að koma í veg fyrir slíkt og því spyr ég hæstv. landbrh.:
1. Hvenær er að vænta reglugerðar um innflutning grænmetis og blóma og hvaða almennar reglur verða í gildi á næstunni um þann innflutning?
2. Er að vænta aðgerða á næstunni af hálfu ríkisstjórnar til að styrkja samkeppnisstöðu og bæta starfsskilyrði innlendrar blóma- og grænmetisframleiðslu?