Fyrirspyrjandi (Margrét Frímannsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. landbrh. svör hans og fagna því sem fram kom í því svari að hert verði eftirlit með innflutningi blóma og þeirrar framleiðslu sem við stundum sjálf í sumar, en tel þó að hægt hefði verið, og betra reyndar, að lýsa því yfir að allur innflutningur blóma og grænmetis í sumar og þann tíma sem við erum með þessa framleiðslu á markaði yrði stöðvaður. Ég vil aðeins ítreka að það er hagur okkar allra að styrkja stöðu innlendrar grænmetis- og blómaframleiðslu og verða sjálfum okkur nóg og draga úr hættu á útbreiðslu nýrra sjúkdóma og skordýra sem fylgja innfluttum blómum og grænmeti og auka þörfina á notkun eiturefna þar sem við höfum haft í gildi reglugerð sem hefur haldið nokkuð vel á þeim málum.
Ég vil svo bara að lokum lýsa líka ánægju minni með það að þessi reglugerð, sem hefur verið í smíðum og er nú stopp vegna verkfalls, en ég held að hafi þó í raun átt að vera tilbúin um síðustu áramót og jafnvel fyrr, sé nú loksins að sjá dagsins ljós og einnig með þá tillögu landbrh. að fylgjast með störfum þeirrar nefndar sem á að hafa eftirlit með innflutningi blóma því að eftir því sem næst verður komist mun ekki veita af að landbrh. sem hefur allt þetta í hendi sér eða landbrn. fylgi vel eftir að þeim reglum sem settar hafa verið verði framfylgt.