Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Virðulegi forseti. Sjútvrn. styrkir ekki kvikmyndagerð. Hins vegar hefur sjútvrn. smávægilegt fjármagn til markaðsleitar og kynningarstarfs og ég tel að það hafi verið eðlilegt að aðstoða þennan einstakling til þess að afla sér upplýsinga um mál þessi.
Að því er varðar það sem hv. þm. Skúli Alexandersson spurði hér um, þá er það rétt að á vegum sjútvrn. var gerð stutt kynningarmynd á rannsóknaráætlun Íslendinga fyrir alllöngu og þessi aðili fékk þessa mynd eins og margir aðrir, efni úr henni hefur verið notað víða. Ég tek eftir því í þessari mynd að efni úr þeirri mynd sem ég nefndi er notað og þess getið sérstaklega í heimildum sem koma fram í lok myndarinnar eftir því sem ég best man. Annað var ekki spurt hér um og vænti ég þess að fsp. sé þá svarað.