Kvikmyndin Lífsbjörg í norðurhöfum
Fimmtudaginn 11. maí 1989

     Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
    Virðulegi forseti. Ég vil að gefnu tilefni taka það fram að ég sagði það hér áðan að sjútvrn. hefur ekki styrkt kvikmyndagerð. Það styrkti hins vegar þennan mann til þess að afla sér upplýsinga um þessi mál á norðurslóð og það var það sem ég sagði. Hvað hann hefur sagt annars staðar vil ég ekkert um segja, en það hefur einhvern tíma verið ástæða til þess úr forsetastól að gera athugasemdir við það þegar bornar eru lygar og svik á aðila sem ekki eru hér í þingsölum.