Kvikmyndin Lífsbjörg í norðurhöfum
Fimmtudaginn 11. maí 1989

     Kristinn Pétursson:
    Hæstv. forseti. Ég ætla bara að leyfa mér að þakka hæstv. sjútvrh. fyrir að styrkja gott málefni því málefni þessarar umræddu myndar varðar grundvallaratriði í samskiptum þjóða vegna þess að á sama hátt og frjálsræði borgarans er grundvallaratriði í lýðræðisríki er frjálsræði þjóðanna til að ákveða málefni sín sjálfar grundvallaratriði í samskiptum þjóðanna. Allar hótanir og þvinganir, þrýstihópar um að þjóðin skuli ekki gera eins og meiri hluti þjóðarinnar vill eru hreinlega þvinganir eða hótanir sem ekki samrýmast lýðræðislegum stjórnarháttum.
    Það er kannski stigsmunur á ofbeldisaðgerð hvort það er hótun um að fremja einhvers konar efnahagslegt tjón eða hvort það er hótun um eitthvað verra. Mér finnst þessi mynd mjög góð og ég vona því að íslensk stjórnvöld standi vel að baki kynningu myndarinnar.