Frsm. utanrmn. (Jóhann Einvarðsson):
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir hönd utanrmn. fyrir niðurstöðu okkar um ályktanir Vestnorræna þingmannaráðsins á þskj. 182.
    Nefndin hefur fjallað um tillöguna og leggur til að henni verði vísað til ríkisstjórnarinnar með þeim eindregnu tilmælum að hún styðji og vinni að þeim athyglisverðu ályktunum sem þar koma fram eftir því sem ástæður frekast leyfa.
    Undir þetta nál. skrifa allir nefndarmenn í utanrmn.