Efling löggæslu
Fimmtudaginn 11. maí 1989

     Árni Gunnarsson:
    Virðulegi forseti. Ég vil með nokkrum orðum lýsa stuðningi mínum við þá tillögu sem hér liggur frammi og gjarnan hefði ég viljað vera flm. á henni. Ég vona þó að þessi tillaga muni ekki lenda í svipuðum hremmingum og frv. sem ég flutti snemma á þessum vetri um menntun lögreglumanna, þ.e. það skilyrði að lögreglumaður þurfi að hafa lokið námi í Lögregluskóla ríkisins til þess að teljast fullgildur lögreglumaður og í því sama frv. eru tillögur um úrbætur á bótasviði lögreglumanna, þ.e. þeirra sem verða fyrir áföllum í starfi.
    Þetta frv. hefur mætt svo ótrúlegri andstöðu framkvæmdarvaldsins að hreint er með ólíkindum. Framkvæmdarvaldið hefur gert sér far um að stöðva framgang þessa frv. í allshn. Nd. Ég vænti þess fastlega að flm. þeirrar tillögu sem hér er til umræðu gangi tryggilega úr skugga um að tillagan verði tekin upp þegar á haustþingi þannig að hún nái fram að ganga fyrir þinglok þá.
    Ég verð að segja það sem mína skoðun að ég hef verulegar áhyggjur af því hve illa lögreglumálum er sinnt hér á landi. Ég hef sannfærst æ betur um það því meira sem ég hef kynnt mér þennan málaflokk að hv. dómsmrn. hefur verið háð tilteknum tregðulögmálum. Ég vil þó taka skýrt fram að í ráðherratíð hæstv. núv. iðnrh. Jóns Sigurðssonar voru gerðar miklar breytingar varðandi lögreglumál. M.a. var Lögregluskóli ríkisins stórefldur og öll hans aðstaða bætt og mörgum málefnum lögreglumanna komið til betri vegar.
    Það væri virkilega þess virði að taka hér upp á Alþingi umræðu um það hvernig framkvæmdarvaldið snýst allt of oft og af allt of miklum krafti gegn þeim málum sem þingið afgreiðir til þeirra, gerir lítið úr þeim og sinnir þeim ekki. Ég hygg að þetta komi kannski skýrast fram, og ég get þess af því að ég er með það bréf í vasanum, í minnisatriðum sem starfsmaður dómsmrn. ritaði allshn. Sþ. vegna þess frv. sem ég hef gert hér að umræðuefni. Ég ætla, með leyfi forseta, að lesa lokaorð þessa minnisblaðs. Þar segir:
    ,,Að lokum skal geta þess að það eru vægast sagt mjög óvenjuleg vinnubrögð hjá Landssambandi lögreglumanna þegar það hefur ekki fengið framgengt kröfum sínum um starfsleg kjör, til að mynda um menntun, bótarétt og verkfallsrétt hjá réttum stjórnvöldum`` --- ég undirstrika: hjá réttum stjórnvöldum --- ,,að það leiti á náðir þingmanna í von um að með lagasetningu verði mál þeirra leyst.``
    Þetta eru ummæli háttsetts manns í dómsmrn. um tilraunir löggjafarþingsins til að bæta stöðu lögreglumanna í landinu. Það er ekki von að vel gangi þegar þessi afstaða er uppi. Ég hygg að þingmenn ættu að fara að reka af sér það slyðruorð, sem á þeim hvílir, að þeir láti framkvæmdarvaldið ganga yfir sig, valta yfir sig og buga sig í raun og veru í hverju málinu á fætur öðru. Þegar það er skilningur háttsettra fulltrúa framkvæmdarvaldsins að þingmenn, við erum umboðsmenn fólksins í landinu, eigi ekki að taka upp

þau mál sem brenna á kjósendum, á landsmönnum, á fólkinu í landinu, hverjir eiga þá að gera það?
    Virðulegi forseti. Ég gat ekki orða bundist að greina frá þessu og þeirri meðferð sem þetta frv. hefur fengið sem er flutt af fulltrúum allra þingflokka á þingi nema fulltrúa Framsfl. Ég hef mjög sterklega á tilfinningunni að þingmenn þurfi að ryðjast nokkuð fram og gera gangskör að því að láta framkvæmdarvaldið lúta vilja sínum en ekki það að þingið lúti vilja framkvæmdarvaldsins. Ég hygg nefnilega að skilningurinn á þingræðishugtakinu hafi farið nokkuð forgörðum á undanförnum árum og menn geri sér ekki almennt grein fyrir því hvert starf og hlutverk þingmannsins í raun og veru er og löggjafarsamkomunnar upp til hópa. Ég er orðinn sjálfur ákaflega þreyttur á viðbrögðum framkvæmdarvaldsins við ýmsum málaleitunum þingmanna og þeirri tregðu að framfylgja því sem þingið ákveður. Menn verða að gæta þess að þingræðið er einn af hornsteinum þess lýðræðisþjóðfélags sem við búum í og við verðum að gera svo vel sem þingmenn að tryggja að framkvæmdarvaldið fari eftir þeim lögum sem sett eru, að framkvæmdarvaldið hlíti vilja þingsins.
    Virðulegi forseti. Ég endurtek stuðning minn við þessa tillögu. Ég er þeirrar skoðunar að gott, vel menntað, þjálfað lögreglulið sé verulegur styrkur fyrir hvert þjóðfélag. Okkur ber að efla það, okkur ber að efla löggæslu, okkur ber að efla menntun þeirra manna sem þessi störf stunda og við verðum að liðsinna þeim í baráttu þeirra fyrir bættri aðstöðu og bættri menntun.