Flm. (Friðrik Sophusson):
Virðulegur forseti. Ég hef leyft mér ásamt hv. þm. Matthíasi Bjarnasyni, Geir H. Haarde, Birgi Ísl. Gunnarssyni og Kristni Péturssyni að flytja svohljóðandi till. til þál.:
,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gera tillögur um ráðstafanir til að örva viðskipti á hlutabréfamarkaði hér á landi. Tillögurnar verði tilbúnar fyrir næsta reglulegt Alþingi.``
Þessa tillögu er að finna á þskj. 599, en málið er 330. mál þingsins. Skjalið var lagt fram í byrjun marsmánaðar, en hefur því miður ekki komist á dagskrá fyrr vegna anna Sþ.
Með þessari þáltill. eða á sama tíma leyfðu sömu flm. sér að flytja tvö lagafrumvörp sem hafa verið til meðferðar í hv. fjh.- og viðskn. Nd. og átti ég satt að segja von á því að hv. nefnd gæti afgreitt þau mál, enda veit ég að einstakir nefndarmenn, ekki síður nefndarmenn úr röðum stjórnarflokkanna, hafa áhuga á því að þau atriði sem finna má í þeim málum, þau mál eru 331. mál og 332. mál þingins, gætu orðið að lögum á yfirstandandi þingi.
Eins og fram kemur í greinargerðinni með þessari tillögu hafa tiltölulega háir raunvextir samhliða mikilli skuldsetningu fyrirtækja haft í för með sér að atvinnulífið á erfitt með að mæta ýmsum áföllum í efnahagslífinu og við þessar aðstæður verður rekstrarvandi fyrirtækja varla leystur með greiðslufresti eða nýjum lántökum. Þvert á móti er þörf á nýju áhættufé, nýju framtaksfé. Á þetta vil ég leggja áherslu því að svo virðist vera sem hæstv. ríkisstjórn sú sem nú situr hér að völdum hafi misst fótanna í þessum málum, hafi fyrst og fremst lagt upp úr því að skuldbreyta fyrir fyrirtæki án þess að þeim skuldbreytingum fylgi síðan það sem þarf að fylgja, þ.e. eðlileg rekstrarskilyrði fyrirtækjanna. Auðvitað má draga úr árlegri greiðslubyrði fyrirtækjanna með þessum hætti, en það breytir ekki því að slíkar skuldbreytingar hafa litla þýðingu ef fyrirtækin eru áfram rekin með tapi.
Hæstv. ríkisstjórn hefur stofnað til Atvinnutryggingarsjóðs útflutningsgreina og hlutafjársjóðs Byggðastofnunar og þessum sjóðum hefur verið ætlað að skuldbreyta og í vissum tilvikum að breyta skuldum í hlutafé, en þó með afar sérstökum hætti því að lánardrottnum fyrirtækja, einkum þeim sem eru í opinberri eigu, er ætlað að breyta lánum til fyrirtækjanna í hlutdeildareign í hlutafjársjóði en gefa upp skuldirnar við fyrirtækin í staðinn. Þessari hlutdeildareign fylgir síðan ríkisábyrgð að verulegum hluta og sýnir það kannski best að þessi hæstv. ríkisstjórn virðist ekki hafa hugmynd um eða a.m.k. kemur það ekki fram í hennar gerðum hvernig venjulegur hlutafjármarkaður starfar, a.m.k. í þeim löndum sem við berum okkur gjarnan saman við.
Það er mikilvægt í þessu sambandi, virðulegur forseti, að menn átti sig á því að það er munur á lánsfé og hlutafé. Hlutaféð situr áfram í fyrirtækinu, lánsféð þarf að greiða, einnig höfuðstólinn, og þótt hlutabréf gangi kaupum eða sölum situr hlutaféð eftir
í fyrirtækinu og arður af því er aðeins greiddur í hlutfalli við rekstrarafkomu fyrirtækisins á hverjum tíma.
Hæstv. ríkisstjórn hefur því miður ekki harla mikinn skilning á þessu, enda sést það kannski best á því þegar borið er saman það sem kemur fram í stjórnarsáttmála þessarar ríkisstjórnar og stjórnarsáttmála fyrri ríkisstjórnar, að í stjórnarsáttmála fyrri ríkisstjórnar sem sat hér til haustmánaða á síðasta ári var lagt upp úr því að tekist væri á við það verkefni að koma hér upp hlutabréfamarkaði, en í stjórnarsáttmála þessarar ríkisstjórnar er ekkert minnst á slíkt. Þetta vil ég benda sérstaklega á vegna þess að ég tel að hæstv. viðskrh. og iðnrh. hljóti bæði vegna fyrri starfa sinna og eins vegna stöðu sinnar í þessari hæstv. ríkisstjórn að átta sig á mikilvægi málsins.
Til þess að bæta úr þessum misbrestum sem hafa orðið í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og til þess að freista þess að tekin verði ný framfaraspor í þessum efnum er þessi tillaga flutt og í greinargerðinni eru talin upp ýmis atriði sem gætu orðið til þess að ýta undir bæði framboð og eftirspurn á hlutabréfum og örva þannig hlutabréfamarkað. Það er ljóst að ýmislegt þarf að gera. Margt af því sem þarf að gera hefur komið fram áður í mínu máli þegar ég mælti fyrir tveimur frumvörpum sem ég nefndi áðan, en ég vísa að öðru leyti til greinargerðarinnar og kýs til viðbótar að benda á frv. sem hv. 10. þm. Reykv. hefur flutt og liggur einnig hjá hv. fjh.- og viðskn. og sjálfstæðismenn hafa tekið undir og viljað styðja. Það fjallar um að lækka stimpilgjöld af útgefnum hlutabréfum, en slíkt væri til mikils gagns fyrir fyrirtækin. Nú eru óhemjulega há stimpilgjöld á hlutabréfum eða 2%, en slíkt hlutfall þyrfti að lækka niður í a.m.k. 0,5% eins og tillögumaður gerir ráð fyrir í sínu frv.
Sem fylgiskjal með þessari tillögu birti ég I. kaflann úr skýrslu um þróun hlutabréfamarkaðar á Íslandi sem fyrirtækið Enskilda Securities vann á sínum tíma annars vegar fyrir Seðlabankann og hins vegar fyrir Iðnþróunarsjóð, en bæði þessi fyrirtæki heyra undir valdsvið hæstv. viðskrh. og iðnrh.
Það er óþarfi, virðulegur forseti, að rekja efni skýrslunnar. Þar koma fram ýmsar gagnlegar ábendingar. Það er von flm. að með því að gera þennan I. kafla skýrslunnar að þingskjali og með því að flytja þessa tillögu sé hægt að afgreiða þetta mál á yfirstandandi þingi og koma á því skipulagi sem verður til þess að hægt verði að örva viðskipti með hlutabréf á almennum hlutafjármarkaði.
Ég þarf ekki að rekja í löngu máli röksemdir fyrir því að þessi tillaga sé samþykkt. Í raun gæti ég flutt nokkrar af ræðum til að mynda tveggja ágætra manna, annars vegar hæstv. iðnrh. og viðskrh. og hins vegar Jóhannesar Nordals seðlabankastjóra, en í máli þessara tveggja manna hefur komið fram skilningur á þessu. Annar þeirra hefur þó aftur og aftur bent á nauðsyn þess að þetta verði gert. Hinn hefur hins vegar tekið þátt í ríkisstjórn sem virðist hafa allt aðra stefnu í reynd.
Á síðustu árum hafa orðið miklar breytingar á fjármagnsmarkaðnum, sérstaklega vegna vaxtafrelsisins sem hefur orðið til mikils gagns að minni hyggju og reyndar hæstv. ráðherra líka ef marka má hans ummæli fyrr og nú. Við höfum komið með þeim hætti í veg fyrir að fjármagnsmarkaðurinn sé eins hólfaskiptur og hann var fyrr á árum. Þetta hefur leitt til þess að vextir hafa lækkað á vissum hluta markaðarins en í raun hækkað lítillega á öðrum sviðum markaðarins sem þýðir það að svartamarkaðsbrask hefur nánast horfið en í staðinn hafa komið samræmdir vextir. Við höfum fylgst með því í þingsölum og annars staðar að mikil barátta er í ríkisstjórninni á milli þeirra sem vilja nota handafl til að halda niðri vöxtum og hinna sem telja að ekki eigi að nýta slíkar heimildir sem ríkisstjórnin hefur sóst eftir að fá og fengið í vissum tilvikum. Ég verð að segja að mín samúð liggur þar með hæstv. viðskrh. sem hefur barist af veikum mætti í ríkisstjórninni gegn því að gripið sé til slíkra aðgerða sem stríða gegn öllum hugmyndum í vestrænum þjóðfélögum er varða jafnræði í efnahagslífinu og einkum og sér í lagi jafnvægi á fjármagnsmarkaðnum. Það er ljóst að hér er ríkið rekið með verulegum viðskiptahalla, tekjur og gjöld þjóðarbúsins standast ekki á og ríkisstjórnin hefur að yfirlýstri stefnu að munurinn á tekjum og gjöldum verði um það bil 10 milljarðar á yfirstandandi ári. Það þýðir að til að fylla upp í þennan mun þurfa Íslendingar að auka erlendar lántökur um 30--40 millj. kr. á degi hverjum.
Eitt það almikilvægasta sem hægt er að gera væri að leyfa lífeyrissjóðunum að kaupa hlutabréf eins og gert var ráð fyrir í frv. sem lagt var fram á sínum tíma en hefur ekki komist úr skrifborðsskúffum á yfirstandandi þingi, en það er frv. sem 17 manna nefndin samdi á sínum tíma. Þar var gert ráð fyrir að 5% af ráðstöfunarfjármagni sjóðanna mætti nýta til hlutabréfakaupa.
Markmiðið með auknum hlutabréfaviðskiptum, virðulegur forseti, er auðvitað í fyrsta lagi að auka eiginfjármyndun og láta eigið fé koma í stað lánsfjár. Það er athyglisvert að á undanförnum áratug hefur eiginfjárhlutfall í iðnfyrirtækjum t.d. dregist verulega saman. Í öðru lagi er það mjög mikilvægt tæki til þess að dreifa efnahagslegu valdi í hendur sem flestra ef slíkur markaður væri starfandi. Í þriðja lagi yrðu hluthafar fleiri og slíkt skapar almennari og betri skilning á atvinnurekstri og dregur úr árekstrum og tortryggni á milli atvinnurekenda og launþega. Í fjórða lagi yrði gengisskráning á markaðsverði bréfanna mikið aðhald fyrir stjórnendur því að slíkt er mælistika á árangur fyrirtækjanna. Hlutabréfin eru í fimmta lagi nýr sparnaðarkostur. Aukin hlutabréfakaup gætu aukið heildarsparnaðinn. Sums staðar er talið að hlutabréf séu líklega um fjórðungur af heildarsparnaði. Í sjötta lagi vil ég benda á að virkur hlutabréfamarkaður er ein af aðalforsendum einkavæðingar, sérstaklega ef slík fyrrirtæki eiga að seljast á almennum markaði en ekki launþegum eða einstökum starfandi fyrirtækjum. Í sjöunda lagi mundu
frjáls hlutabréfaviðskipti ýta undir sameiningu fyrirtækja, stækka einingarnar og væntanlega auka samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja, en slíkt er bráðnauðsynlegt þegar tillit er tekið til þess að á næstunni má gera ráð fyrir auknu fjármagnsflæði á milli landa í kjölfar þess frelsis sem búast má við árið 1992 þegar Evrópubandalagið verður eitt markaðssvæði. Á þessu hafa aðrar Norðurlandaþjóðir mikinn skilning. Reyndar veit ég að sá skilningur er til hjá hæstv. viðskrh., en því miður hefur hæstv. fjmrh. ekki sama skilning og hefur heldur dregið fæturna þegar hann hefur tekið þátt í norrænu samstarfi á þessu sviði.
Virðulegi forseti. Mér er ljóst að tíma mínum til þess að lýsa þessari tillögu er lokið. Ég sé heldur ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þessa tillögu. Flest af því sem ég vildi sagt hafa kemur fram annars vegar í greinargerð með þessari þáltill. og hins vegar í fylgiskjali sem ég vísa til um frekari röksemdir.
Ég vil þó nota þetta tækifæri til að hvetja hæstv. ráðherra til að taka þátt í þessari umræðu, lýsa skoðunum sínum, og ég vænti þess fastlega að í ráðherranum eigi ég góðan liðsstyrk til að koma þessari tillögu fram á yfirstandandi þingi, annaðhvort í því formi sem hún er, en þar er um að ræða
áskorun á ríkisstjórnina, eða í öðru formi sem um semst. Hér er á ferðinni mikilvægt mál sem getur orðið til góðs á þessum erfiðu tímum fyrir íslenskt atvinnulíf.
Að þessari umræðu lokinni, virðulegur forseti, legg ég til að málið verði sent hv. atvmn. Sþ.