Tilhögun þingfundar
Fimmtudaginn 11. maí 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Áður en atkvæðagreiðsla hefst vill forseti upplýsa hvernig fyrirhugað er að halda áfram þessum fundi. Nú að loknum atkvæðagreiðslum um þau mál sem tekin hafa verið fyrir hér í dag verður fyrir tekið 21. mál á dagskrá, málefni Sigló hf. Reynt verður að halda áfram fundi hér í sameinuðu þingi að lokinni þeirri umræðu ef það tekst, annars verður sú umræða auðvitað að hafa sinn gang.
    Á morgun er fyrirhugað að hefja deildafundi hér kl. 11 sem standi til kl. 2, en þá hefur verið beðið um utandagskrárumræðu um ástandið í kjaradeilum. Reynt verður að sjá svo til að ekki verði kvöldfundur í kvöld.