Húsnæðisstofnun ríkisins
Fimmtudaginn 11. maí 1989

     Stefán Valgeirsson:
    Herra forseti. Ég vil gera orð hv. 1. þm. Vesturl. að mínum, en til viðbótar vil ég segja að það ætti að vera öllum ljóst að með þessu frv. er verið að skerða ráðstöfunarfé Byggingarsjóðs ríkisins á þessu ári og a.m.k. árið 1990 sem þeirri upphæð nemur sem fer til að kaupa húsbréf. Slík minnkun á ráðstöfunarfé Byggingarsjóðs ríkisins mun bitna fyrst og fremst á landsbyggðinni og fátækara fólkinu á höfuðborgarsvæðinu. Ég segi því já.