Framhaldsskólar
Föstudaginn 12. maí 1989

     Frsm. 1. minni hl. menntmn. (Danfríður Skarphéðinsdóttir):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. 1. minni hl. menntmn. á þskj. 1155 en þar segir, með leyfi forseta:
    ,,Frumvarp þetta felur í sér breytingar á lögum um framhaldsskóla sem tóku gildi 9. maí 1988.
    Það var þá þegar löngu tímabært að sett yrði rammalöggjöf um framhaldsskólastigið. Fulltrúar Kvennalistans höfðu þó ýmsar athugasemdir við það frv. sem varð að lögum síðastliðið vor og lögðu því fram töluvert margar brtt.
    Stærstu agnúana á frv. var að mati Kvennalistans að finna í stjórnunarkafla þess, þar sem pólitískt kjörnum fulltrúum voru færð óeðlilega mikil völd og áhrif um þróun skóla, innra starf, námsbrautir og rekstur.
    Brtt. Kvennalistans varðandi stjórnunarþáttinn hnigu því í þá átt að tryggja að faglegra sjónarmiða skyldi gætt m.a. með því að ætla fulltrúum kennara og nemenda, deildarstjórum og faggreinafélögum stærri hlut við mótun skólastarfsins. Aðrar brtt. Kvennalistans lutu að ýmsum þáttum í innra starfi skólanna og aðbúnaði nemenda svo sem aukinni námsráðgjöf, sálfræðiþjónustu og stofnun mötuneyta við hvern framhaldsskóla.
    Veigamestu breytingarnar sem fram koma í þessu frv. ríkisstjórnarinnar felast í því að skilgreina nánar og útvíkka verksvið samstarfsnefndar framhaldsskólastigsins, sbr. 3. gr., breytta skipan skólanefnda, sbr. 4. gr., og breytta útreikninga við rekstrarkostnað skólanna svo og gerð samninga milli hvers skóla og menntmrn. um greiðslur til skólanna af fjárlagalið þeirra. Efni frv. í heild fer að nokkru leyti saman við hugmyndir og brtt. Kvennalistans frá síðasta ári. Því hefði e.t.v. legið nokkuð beint við að styðja frv. með nokkrum brtt. eftir eðlilega umfjöllun.
    En eins og nú háttar til hlaut frv. ekki þá faglegu umfjöllun sem nauðsynleg hefði verið vegna kjaradeilu kennara í Hinu íslenska kennarafélagi við fjmrn. Fyrsti minni hl. nefndarinnar leggur áherslu á nauðsyn þess að hafa samráð við og fá umsagnir frá þeim sem daglega er ætlað að starfa eftir lögunum og glæða þau lífi og anda.
    Fyrsti minni hl. telur það ekki málinu til framdráttar að hraða því í gegnum þingið við þær aðstæður sem nú ríkja.
    Allar greinar frv. snerta dagleg störf kennara í framhaldsskólum landsins og mikilvægt er að útfærsla þess og framkvæmd sé í fullu samráði við þá.
    Með tilvísan til þess telur 1. minni hl. sér ekki fært að taka þátt í afgreiðslu málsins.``
    Undir þetta skrifar Danfríður Skarphéðinsdóttir fyrir hönd fulltrúa Kvennalistans í þessari hv. deild.
    Það væri hægt að segja margt fleira um málefni framhaldsskólans hér og nú, ekki síst vegna þess öngþveitis og þeirrar óvissu sem nú ríkir og enginn getur séð fyrir um hvaða afleiðingar muni hafa fyrir skólastarf í framtíðinni. Ég ætla þó ekki að eyða tíma þessarar hv. deildar í það núna en vil benda á að

ýmis þau atriði sem verið er að breyta með þessu frv. snerta mjög störf kennaranna, hin daglegu störf kennaranna eins og fram hefur komið í umræðu um fsp. mína hér í Sþ. til hæstv. menntmrh. um breyttar kröfur við innritun í framhaldsskólana. Það kom fram í máli hans þá að um er að ræða undirbúning í tveimur skólum við að skipuleggja styttri námsbrautir og til þess að bjóða öllum nemendum eftir því sem kostur er færi á námi við þeirra hæfi. Ég tel að það þurfi að gera það eftirsóknarvert fyrir framhaldsskólann að taka upp slíkar brautir. Ég er hlynnt þeim eins og fram kom í máli mínu þá. Það hefði því þurft að hafa miklu meiri undirbúning og lengri eins og fram kom í svari hæstv. ráðherra á þeim tíma. Ég sé ekki að það starf geti verið í gangi núna að neinu gagni. Ég gæti minnst á margt fleira en ég ætla ekki að eyða tímanum til þess hér og nú.