Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Herra forseti. Það frv. sem hér um ræðir hefur fengið ítarlega meðferð í hv. Nd. Hér er gert ráð fyrir því að framlengja svokallaðan eignarskattsauka og hann verði notaður í framkvæmdasjóð þjóðarbókhlöðu, eins og var nú reyndar ætlunin í öndverðu, og sömuleiðis til endurbóta menningarbygginga. Meginhlutverk sjóðsins er að reyna að tryggja að fylgt verði eftir ítrekuðum áformum um að ljúka smíði þjóðarbókhlöðunnar en um þessar mundir er miðað við að byggingu hennar verði lokið á fjórum árum, að þessu ári meðtöldu. Í annan stað er það tilgangur frv. að tryggja að betur verði staðið að viðhaldi á húsakosti ýmissa helstu menningarstofnana þjóðarinnar og gömlum byggingum sem brýnt er að varðveita vegna menningarsögulegs gildis þeirra.
    Það hefur lengi verið svo með þessari þjóð að menn hafa verið tilbúnir til þess að taka ákvörðun um að reisa nýjar byggingar, en hafa ekki fengist til að verja fjármunum til þess að halda við hinu gamla sem oft og tíðum er þó orðið hluti af menningarsögulegum arfi þjóðarinnar og þess vegna er það svo að allt í kringum landið eru hundruð húsa og húshluta sem liggja undir stórkostlegum skemmdum og hætta á að í raun og veru eyðileggist fullkomlega áður en mjög mörg ár líða. Í þeim efnum er bent á nokkur slík verkefni í fskj. með frv., á bls. 5 á þskj., þar sem nefnd eru einstök viðfangsefni þar sem veruleg eyðingarhætta blasir við. Ég ætla út af fyrir sig ekki að nefna neitt sérstakt hér í þessari framsöguræðu. Ég bendi þó á gamla prestshúsið í Görðum á Akranesi frá 1886 og skemmu frá aldamótum sem þar er. Ég gæti nefnt skólahús það sem Torfi Bjarnason byggði í Ólafsdal á sínum tíma. Ég gæti nefnt steypt íbúðarhús frá fyrsta tug aldarinnar á Brjánslæk. Það mætti nefna Tjöruhúsið í Neðstakaupstað á Ísafirði. Það mætti nefna í þessu sambandi timburkirkjuna í Kaldrananesi frá 1851. Það mætti nefna í þessu sambandi staði eins og t.d. Gröf skammt utan við Hofsós, fæðingarstað Hallgríms Péturssonar, þar sem um er að ræða gamla fallega torfkapellu sem er í verulegri hættu. Þannig má lengi telja.
    Tilgangurinn með þessu frv. er sem sagt í senn að skapa svigrúm til að gera við þessar byggingar sem til eru, þ.e. byggingar eins og t.d. Þjóðminjasafnið svo ég nefni dæmi, að reisa þjóðarbókhlöðuna og að verja gamlar þjóðminjar sem í mörgum tilvikum og reyndar mjög mörgum eru kirkjur eða hluti af þeim eignum sem kirkjan á að sinna. Ég held að það sé mjög brýnt að hv. alþm. átti sig á því að það verður að gera sérstakt átak til að verja þessi hús. Það verður að gera sérstakt átak til þess. Það hefur verið erfitt að sameina menn um verkefni eins og það að eyða fjármunum í viðhald gamalla húsa en það er komið svo að það er svo mikil hætta á því að þessi hús eyðileggist, m.a. þessar gömlu kirkjur, að þarna verður að taka til hendinni.
    Um málið, herra forseti, var ágæt samstaða í hv. Nd. að öðru leyti en því að það komu fram hugmyndir um að bæta einu verkefni við þennan sjóð,

nýframkvæmdum, nýjum menningarbyggingum. M.a. var bent á þann möguleika að hugsanlegt tónlistarhús yrði sett inn á þennan sjóð. Ég var fyrir mitt leyti andvígur því, fyrst og fremst vegna þess að þó að þessi sjóður sýnist kannski gildur þá er hann það ekki miðað við verkefnin sem eru risavaxin og ég tel að það sé ekki skynsamlegt að vekja tálvonir hjá fólki með því að taka fleiri verkefni inn á þennan sjóð en þegar er lagt til í þessu frv.
    Ég vænti þess, virðulegi forseti, að frv. verði vel tekið hér í þessari hv. deild og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. menntmn.