Danfríður Skarphéðinsdóttir:
    Virðulegi forseti. Eins og fram kemur á nál. frá hv. Nd. styður þingflokkur Kvennalistans það frv. sem hér liggur frammi en ég vil þó aðeins láta þess getið við þessa umræðu að við hefðum talið heppilegra að nota slíkan sjóð einungis til nýframkvæmda og til þess að taka stór verkefni, eins og t.d. þjóðarbókhlöðuna, en viðhaldsfé til verndunar gamalla bygginga kæmi af fjárlögum. Við teljum mjög nauðsynlegt að reynt sé að einbeita sér að einu verkefni í einu. Það er afar brýnt núna að hraðað verði sem mest má framkvæmdum við byggingu þjóðarbókhlöðunnar. Hún hefur staðið allt of lengi auð og ónotuð og það er mun hagstæðara að öllu leyti að hafa byggingartíma slíkrar byggingar sem stystan.
    En ég vildi aðeins að þetta sjónarmið kæmi fram að við hefðum talið það betri kost að hafa viðhald gamalla bygginga á fjárlögum hvers árs en ekki með þeim hætti sem hér er ráðgert, en sjáum okkur þó ekki fært annað en að styðja þetta mjög svo brýna mál.