Frsm. 2. minni hl. menntmn. (Halldór Blöndal) (frh.)
:
Herra forseti. Annar minni hl. menntmn. hefur sent frá sér svohljóðandi nál., með leyfi hæstv. forseta:
,,Á sl. vori voru sett heildarlög um framhaldsskóla. Á bak við þá lagasetningu var mjög mikil vinna ótal aðila svo árum skipti. Það hafði því verið mikið vandaverk að samræma sjónarmið og laða menn til samstarfs, svo ólíkar skoðanir sem uppi eru og hafa raunar alltaf verið uppi um stefnu í skólamálum og framkvæmd hennar, verkaskiptingu milli skólastiga og milli skóla á sama skólastigi og loks milli ríkis og sveitarfélaga. Það gat því enginn búist við því að allir yrðu að öllu ánægðir með framhaldsskólalögin. Á hinn bóginn er vafalaust að sú skoðun sé yfirgnæfandi meðal skólamanna að nauðsynlegt sé að látið verði á þau reyna áður en þeim er breytt, en óráðlegt að hlaupa til nú með hvatvíslegar breytingar þó svo að nýr maður hafi sest í stól menntmrh. sl. haust. Það sýnir best hvílíkt flýtisverk frv. er að það var fyrst í þriðju prentun sem ráðherra hafði gert upp við sig hver endanleg gerð þess yrði.
Lögin um framhaldsskóla byggjast á margvíslegum málamiðlunum sem mjög erfitt var að ná. Það er þess vegna í senn ótraustvekjandi og lýsandi fyrir vinnubrögðin að þess skuli hvergi getið hver samdi frv. né hvernig það er undirbúið. Hitt liggur ljóst fyrir að með frv. er dregið úr sjálfstæði skólanna og horfið frá þeirri stefnu sem hvarvetna hefur gefist vel að láta sveitarstjórnir skipa meiri hluta skólanefnda og treysta þannig samstarf skólanna við borgarana.
Frv. var seint fram komið og hlaut ekki þá faglegu umfjöllun í nefnd sem nauðsynleg er, m.a. vegna verkfalls kennara í Hinu íslenska kennarafélagi. Auk þess er eðlilegt að sveitarfélögin fái nokkurn tíma til að glöggva sig á þeim atriðum frv. sem þau varða. Með hliðsjón af framansögðu leggur 2. minni hl. til að frv. verði afgreitt með svohljóðandi rökstuddri dagskrá:
Þar sem ekki hefur fengist reynsla af lögum um framhaldsskóla og frv. það, sem hér liggur fyrir, hefur hvorki fengið nægilegan undirbúning né þá faglegu umfjöllun sem ætlast er til af þingnefndum er frv. vísað frá og næsta mál tekið á dagskrá.``
Ég þarf ekki, herra forseti, að fara mörgum orðum um það hversu mjög hefur dregið úr áhrifum þingnefnda á lagasetningu. Í því sérstaka máli sem við erum nú að ræða um var gengið svo langt af hæstv. menntmrh. að hann sendi sérstakan fulltrúa sinn til fundar við nefndina áður en hún hafði í raun og veru hafið störf sín að athugun frv. til þess að enginn misskilningur gæti komist inn í hugum stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar í nefndinni hver væru skilaboð ráðherrans til nefndarmanna. Það vakti athygli að meðal nefndarmanna sjálfra var lítill áhugi fyrir málinu og það vakti líka athygli á fundi sem ég sat í forföllum formanns þingflokks Sjálfstfl. með forsrh., þingforsetum og öðrum formönnum þingflokka hér í þinghúsinu fyrir tveim eða þrem vikum eða svo, að þá tiltók hæstv. forsrh. tvö eða þrjú mál sem hann
hafði vissar efasemdir um að hefði í raun og veru tilgang að næðu fram að ganga á þessu þingi. Það kom mér vitaskuld ekki á óvart að eitt af þessum málum var frv. til l. um breyting á lögum um framhaldsskóla.
Ástæðan fyrir því er vitaskuld sú að hæstv. forsrh., fyrirmynd hæstv. menntmrh., hafði gert sér grein fyrir því að frv. hafði fengið takmarkaðan undirbúning. Hæstv. forsrh. hafði ugglaust orðið var við það að ekki stóð til að leggja málið undir sveitarfélögin eins og venja er til þegar um samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga er að ræða og hæstv. forsrh. hefur e.t.v. einnig gert sér grein fyrir því að vegna þeirrar kjaradeilu sem nú er uppi milli ríkisins og framhaldsskólakennara voru engin tök á því að athuga frv. með þeim faglega hætti sem krefjast verður áður en Alþingi lögfestir eða breytir lögum um framhaldsskóla eða skólamál yfirleitt. Þetta er einhver viðkvæmasti málaflokkur sem fyrir Alþingi kemur. Ef mistök eru gerð verða þau ekki auðtekin til baka. Ef unglingur missir eitt ár af námsferli sínum, þá er það ekki aðeins eitt ár af námsferli, þá er það eitt ár af æviferli um leið þannig að auðvitað verðum við að kappkosta það á hverjum tíma að lögin um grunnskólann og um framhaldsskólann, lögin um Háskólann og menntakerfið í heild séu sem nútímalegust og séu í fullkomnu samræmi við þá stjórnunarhætti sem við vitum að farsælastir eru og í samræmi við þær kröfur sem við hljótum að gera til menntunar og fræðslu í landinu.
Af öllum þessum ástæðum er það auðvitað dapurlegt að hinn nýi menntmrh. skuli kjósa gömlu kommúnistavinnubrögðin, tala ekki við einn eða neinn, neita sveitarstjórnarmönnum um eðlilegt samstarf og láta sig engu skipta þótt Hið íslenska kennarafélag komi hvergi að málinu. Það má segja að þetta eigi ekki að koma okkur sjálfstæðismönnum á óvart, allra síst sá þáttur í frv. sem lýtur að því að taka vald af sveitarfélögunum. Samkvæmt núgildandi lögum skipa sveitarfélögin meiri hluta skólanefnda, en því er auðvitað breytt. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem þessi andúð Alþb. á lýðræðislegum stjórnarháttum gægist fram. Alþb. á auðvitað mjög litlu fylgi að fagna nú á þessum dögum.
Flokkurinn hefur sjaldan verið jafnlítill og núna og hæstv. menntmrh. gerir sér grein fyrir því að flokkurinn muni bíða mikið afhroð í næstu sveitarstjórnarkosningum vegna slaklegrar frammistöðu fulltrúa hans hér á Alþingi og ég tala nú ekki um í ríkisstjórninni og þess vegna er hæstv. menntmrh. að neyta síðustu kraftanna til þess að reyna að hrifsa völdin frá sveitarfélögunum og reyna að finna einhverja þá leið að áhrif Alþb. í skólakerfi landsins megi verða sem mest.
Við getum rakið sögu skólamálanna. Við getum rifjað það upp þegar Brynjólfur Bjarnason gegndi störfum menntmrh. Ég veit ekki hvort hæstv. forseti getur rifjað það upp með mér hvort fröken Halldóra Bjarnadóttir, sá mikli skörungur, fékk að lafa, kannski eini skólanefndarmaðurinn á landinu, þegar Brynjólfur
Bjarnason skipaði skólanefndirnar, eða hvort hún var látin fjúka líka. Mér finnst hálfpartinn að fröken Halldóra Bjarnadóttir hafi verið látin fjúka líka. Þannig var nú gengið að þessum málum. Og eins er það núna, hæstv. menntmrh. getur ekki stillt sig nýkominn í ráðuneytið og neytir allra ráða og ýtrustu krafta til þess að koma í veg fyrir að lögin um framhaldsskóla gangi í gildi og af þeim fáist nokkur reynsla áður en hlaupið er til og þeim breytt.
Ég tók eftir því í viðtali við Þjóðviljann í dag að hæstv. menntmrh. sagðist hafa setið stutt í stólnum, 6--7 mánuði. Það er kannski leiðinlegt að menntmrh. skuli ekki geta talið hversu lengi hann hefur setið í sæti menntmrh. þegar blessuð börnin sem eru að byrja að læra að telja og byrja að læra að leggja saman uppgötva það að menntmrh. ruglast jafnvel í samlagningunni innan við 10 þó enginn sé aukastafurinn, þá má vera að þau sjái lítinn tilgang í því að ná langt í menntuninni e.t.v. En við skulum vona að blessuð börnin lesi ekki viðtalið við menntmrh. í Þjóðviljanum þannig að þau geri sér ekki grein fyrir samlagningarvillunni.
Jón Böðvarsson, sem a.m.k. í eina tíð var flokksbróðir hæstv. menntmrh., átti sæti í þeirri nefnd sem að lokum gekk frá framhaldsskólafrv. og var þar fulltrúi skólameistara. Það vitum við allir þingmenn að Jón Böðvarsson hefur verið og er einn af merkustu skólamönnum landsins, hefur vakandi og lifandi áhuga á því að reyna að koma framhaldsskólamálunum í það besta horf sem verða megi. Jón Böðvarsson er um leið einn þeirra manna sem er fljótur að átta sig á röksemdum annarra og hefur glöggan skilning á því í skólastarfi hversu þýðingarmikið það er að reyna að samræma sjónarmið.
Jón Böðvarsson hafði samband við nefndina og óskaði að fyrra bragði eftir því að fá að hitta hana þar sem hann taldi það, eins og ég skildi það, samviskumál fyrir sig að hann reyndi að koma fram þeim sjónarmiðum sem hann hefði starfað eftir í framhaldsskólanefndinni og voru ábendingar hans auðvitað mjög vel þegnar af okkur öllum sem á hann hlýddum. Ég varð ekki var við annað á þessum fundi en að einstakir nefndarmenn menntmn. hlustuðu með athygli á það sem þessi merki skólamaður hafði að segja og ég hafði satt að segja reiknað með því eftir að menn höfðu kynnt sér þau gögn sem hann lagði fyrir nefndarmenn að það gæti náðst samkomulag um það í nefndinni, annað tveggja að málið yrði látið bíða næsta þings eða að nefndin yrði sammála um að vísa frv. á nýjan leik til ríkisstjórnarinnar.
Það kom mér þess vegna mjög mikið á óvart þegar á næsta fundi nefndarinnar komu skilaboð frá formanni, sennilega frá ráðherranum í gegnum formanninn, um það að við ættum að samþykkja frv. óbreytt. Ég vildi ekki una því og vegna erindis sem nefndinni hafði borist frá Skólameistarafélagi Íslands taldi ég nauðsynlegt að Ingvar Ásmundsson kæmi til fundar við nefndina og líka vegna þeirra athugasemda sem Jón Böðvarsson hafði gert í sambandi við fornám, áformaðar breytingar á 16. gr.
framhaldsskólalaga, sem er 9. gr. frv. eins og það er í þriðju prentun. Bréf Skólameistarafélagsins hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
,,Almennur félagsfundur í Skólameistarafélagi Íslands, haldinn í Menntaskólanum við Hamrahlíð 17. apríl 1989, samþykkir að lýsa stuðningi við frv. til laga um breyting á lögum um framhaldsskóla, nr. 57/1988, sem lagt var fram 10. apríl sl. gegn því að eftirfarandi breyting nái fram að ganga.
Í stað 7. mgr. í 11. gr. komi: Við gildistöku laganna skal gerður samningur milli menntmrn. og hvers skóla um tilhögun á greiðslum til skólanna af fjárlagalið þeirra í þeim tilgangi að skólarnir taki á sig aukna rekstrarábyrgð og að vaxandi hluti fjárveitingar verði greiddur beint til þeirra. Rekstrarframlag, annað en kennslulaun, laun fastra starfsmanna og meiri háttar viðhalds- og stofnkostnaður, skal greitt hverjum skóla fyrir fram. Heimilt er menntmrh. að semja við hvern skóla um aðra tilhögun ef aðilum þykir ástæða til.``
Þar sem hér er talað um 11. gr. þá er átt við 10. gr. frv. eins og það liggur fyrir í þriðju prentun, en ég hygg að Skólameistarafélagið hafi fengið frv. í fyrstu útgáfu án þess að ég þori neitt um það að fullyrða.
Það er margt sem vekur athygli í þessu bréfi. Það er í fyrsta lagi þetta orðalag hér: ,,samþykkir að lýsa stuðningi við frv. gegn því að eftirfarandi breyting nái fram að ganga.`` Það er greinilegt að skólameisturunum hefur ekki
litist á. Orðalagið ,,gegn því að eftirfarandi breyting nái fram að ganga`` sýnir auðvitað glöggum lesara að skólameistararnir hafa verið í vörn. Þeir vissu að hæstv. menntmrh. hafði tök á stjórnarflokkunum. Þeir gerðu sér grein fyrir því að vinnubrögð í þingnefndum nú eru með þeim hætti að það skiptir ekki máli hvaða athugasemdir, ábendingar og leiðréttingar koma fram á nefndarfundum. Þingnefndirnar taka ekki sjálfstæða afstöðu til slíkra breytinga, heldur er sendur sendiboði upp í ráðuneyti til að spyrja hvort það megi breyta frv. og skólameistararnir vissu það enn fremur að engin tök voru að ná til Hins íslenska kennarafélags vegna þess verkfalls sem nú stendur yfir. Í nauðvörn sinni féllust þeir á að lýsa yfir stuðningi við frv. gegn því að eftirfarandi breyting næði fram að ganga. Þessu var síðan haldið að manni.
Jón Böðvarsson hafði verið fulltrúi Skólameistarafélagsins í þeirri nefnd sem gekk frá frv. sem lagt var fyrir síðasta Alþingi og síðar varð að lögum, en gegnir þeirri stöðu ekki lengur nú þannig að hann gat ekki talað fyrir munn skólameistaranna. En það var enginn vafi á því, og nefndarmenn fundu það glöggt á Jóni Böðvarssyni, að hann hafði fyrir því sterka tilfinningu að hugur skólameistaranna hafði verið blendinn þegar þeir samþykktu þá skilmála, þá úrslitakosti sem menntmrh. gerði þeim og leiddi til þeirrar samþykktar og þess bréfs sem ég hef nú lesið upp. Þessu var síðan haldið að manni að Skólameistarafélagið væri samþykkt því að frv. yrði lagt fram. Síðan ætlaði formaður nefndarinnar, og mér skildist meiri hluti nefndarinnar, að knýja fram samþykkt frv. án þess að nokkurt tillit væri tekið til
bréfs skólameistara og án þess að nokkur brtt. yrði gerð við frv. sem yrði í samræmi við ábendingar skólameistaranna.
Það var á þeirri stundu sem ég krafðist þess að Ingvar Ásmundsson kæmi á fund nefndarinnar og þar lagði ég fyrir hann þessa spurningu, hvort hann treysti sér til þess að mæla með samþykkt frv. ef ekkert tillit yrði tekið til óska skólameistaranna. Hann brást ókvæða við, kom af fjöllum og taldi sig hafa orð menntmrh. fyrir því að gengið yrði að skilyrðum skólameistaranna. Og athugasemdir formanns Skólameistarafélagsins á þeirri stundu ollu því að formaður menntmn. treysti sér ekki til að afgreiða málið á þessum fundi eins og þó hafði verið ákveðið og tók sér frest til næsta fundar til að ganga frá málinu og gerði þá væntanlega hæstv. menntmrh. grein fyrir því að þeir nefndarmenn sem eru fulltrúar stjórnarflokkanna gætu ekki fallist á að mæla með samþykkt frv. án þess að komið yrði til móts við óskir skólameistaranna. Síðar þann sama dag fengum við svo fréttir af því í stjórnarandstöðunni að fyrirheit hæstv. menntmrh. til skólameistaranna hafi rifjast upp, en eins og ég sagði áðan, þá er tekið lántökugjald af fyrirheitum ráðherra Alþb., 6% og 6,6% lántökugjald. Og lántökugjaldið sem ráðherrann tók af fyrirheitinu við skólameistarana var þetta: Að ekki mætti standa í brtt. meiri hl. ,,og að vaxandi hluti fjárveitinga verði greiddur beint til þeirra``, þ.e. skólanna. Setningin hljóðar svo í heild sinni, herra forseti:
,,Við gildistöku laganna skal gerður samningur milli menntmrn. og hvers skóla um tilhögun á greiðslum til skólanna af fjárlagalið þeirra í þeim tilgangi að skólarnir taki á sig aukna rekstrarábyrgð.`` Og síðan fellur niður ,,og að vaxandi hluti fjárveitinga verði greiddur beint til þeirra``. Þetta er auðvitað mikil efnisbreyting. Og það liggur auðvitað alveg ljóst fyrir að skólameistarar hafa ekki sagt neitt um það hvort þeir mæli með samþykkt frv. eftir þessa breytingu, eftir að búið er að skera svona og klípa utan af því sem þeim var lofað.
Ég hef kynnst mörgum skólameistaranum og þeir menn sem ég hef kynnst í þeirra hópi eru a.m.k. þeir skapmenn og þeir geðmenn og þeir prinsippmenn að þeir líta á það sem hér er að gerast sem brigð af opinberri hálfu og brigð af hálfu nefndarmanna við það fyrirheit sem þeim hafði verið gefið. Á því leikur enginn vafi. ( EG: Breytingin er flutt í fullu samráði við formann Skólameistarafélagsins.) Hér er talað um samþykkt Skólameistarafélagsins. Í fullu samráði við formann Skólameistarafélagsins.
Herra forseti. Það hefur áður komið fyrir að ráðherrar og þingmenn Alþfl. hafa gripið fram í fyrir mér í ræðum mínum með alls konar upplýsingum sem síðar hafa reynst staðlausir stafir. Ég mun að sjálfsögðu hafa samband við Ingvar Ásmundsson og spyrja hann um þetta. Hitt liggur alveg ljóst fyrir að hann auðvitað féllst ekki á þetta öðruvísi en svo að honum þótti kannski skárra að fá eitthvað af loforðinu heldur en ekki neitt. Þetta er frasinn. Það er gengið gegn óskum og skoðunum embættismanna. Þeir eru
settir upp við vegg, þeim eru settir úrslitakostir. Þeir hafa ríkan þegnskap og vilja ekki efna til illinda og þeir fallast á að gefa svo og svo mikið eftir í fyrstu lotu. Síðan er ekki staðið við það sem lofað er. Og í annarri lotu er sagt: Ef við stöndum nú við eitthvað af því sem við lofuðum þér síðast, viltu þá gefa pínulítið eftir aftur? Viltu þá fyrirgefa mér og láta eins og ekkert sé þó ég standi ekki við allt það sem ég lofaði?
Ég held að það sé alveg nauðsynlegt að það komi skýrt fram hér við þessa umræðu og að hæstv. menntmrh. svari því fullum fetum: Hafði hann gefið
skólameisturum fyrirheit um að frv. yrði breytt nákvæmlega eins frá orði til orðs eins og segir í bréfi skólameistaranna? Hafði hann gefið þeim slíkt fyrirheit og keypt samþykki eða stuðning þeirra við frv. með loforði um að fara að þeirra vilja?
Það er nauðsynlegt, herra forseti, að rifja upp hver sé veigamesta breytingin í sambandi við 10. gr. frv. sem ég hef nú fjallað um, veigamesta breytingin frá núgildandi lögum. Samkvæmt núgildandi lögum er rekstrarkostnaði framhaldsskóla skipt í tvo meginþætti, þ.e. launakostnað sem nánar er skilgreindur og annan rekstrarkostnað. Gert er ráð fyrir að launakostnað greiði ríkissjóður beint til starfsmanna, en rekstrarframlagið greiðist fyrir fram til skóla ársfjórðungslega. Að mati okkar sjálfstæðismanna er hér um mjög veigamikið atriði að ræða til að tryggja fjárhagslegt sjálfstæði skólanna og gera skólastjórnendur ábyrga fyrir hinum fjárhagslega rekstri. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef frá fyrrv. menntmrh., Birgi Ísl. Gunnarssyni, sem jafnframt hafði starfað og verið formaður framhaldsskólanefndarinnar, var gríðarleg áhersla lögð á þetta atriði af skólameisturum og skólastjórnendum. En nú á að kippa þessu fjárhagslega sjálfstæði af skólunum og eins og málið er í frv. var gert ráð fyrir óbreyttu fyrirkomulagi en pínulítið hefur náðst í áttina með brtt. og þó er það ógnarlítið eftir að á brott hefur fallið ,,og að vaxandi hluti fjárveitinga verði greiddur beint til þeirra``.
Ég tel nauðsynlegt, herra forseti, að lesa úr álitsgerð Jóns Böðvarssonar það sem lýtur að 3. gr. frv. en hann segir, með leyfi hæstv. forseta:
,,Breyting sú sem ráðgerð er á 6. gr. laganna er í aðalatriðum til bóta þótt óþarft sé að tilgreina í lögum verkefni samstarfsnefndar ef setja á reglugerð um verksvið hennar og starfshætti. Að vísu væri nægilegt að menntmrh. setti nefndinni starfsreglur eða erindisbréf. Athuga ber að eðli reglugerða er að flytja vald frá löggjafa til framkvæmdarvalds, í reynd til stjórnarráðsstarfsmanna [og er þessi síðasta málsgrein undirstrikuð]. Þeir ættu aldrei [og aldrei er undirstrikað] að sitja í nefndum er semja reglugerðir vegna þess að enginn á að semja þær starfsreglur sem hann á sjálfur að hlíta.``
Ég verð, herra forseti, að taka mjög undir þessa skoðun Jóns Böðvarssonar og hlýt í því sambandi að rifja upp að alþingismenn hafa því miður þá reynslu að lítið verður úr samstarfinu við þingnefndir þá
sjaldan einstakir ráðherrar fást til að gefa fyrirheit, oftast óljóst, um það að þingnefndir fái að fylgjast með smíði reglugerða og hvernig mál gangi fram. Mjög glöggt dæmi um þetta er t.d. Tryggingasjóður fiskeldis sem lögfestur var í miklum hasti nú eftir áramótin. Við ýmsir þingmenn héldum því þá fram að sú uppbygging sem hugsuð var í þinginu af hæstv. ráðherra væri röng og höfðum miklar efasemdir um að sjóðurinn kæmi að tilætluðum notum. Ekki mátti þingið þó velta því máli fyrir sér í einn eða tvo daga og upp komu þessir alþýðubandalagsfuglar og kratar og töluðu um það hér hver í kapp við annan að ef þingið tæki sér 2--3 daga til að athuga frv. yrði allt fiskeldið í hættu. Síðan dróst það svo vikum skiptir ef ekki mánuðum að ganga frá lítilli reglugerð í ráðuneytinu. Og enn er það svo að Tryggingasjóðurinn gegnir engan veginn því hlutverki sem honum er ætlað að gegna. Reglugerðin er síður en svo fullkomin og lögin stórgölluð. Eins er það um það frv. sem hér liggur fyrir. Það er flýtisverk annars ráherrans í Alþb. og auðvitað þykist hann ekkert þurfa að spyrja að því, t.d. sveitarstjórnarmennina í þeim byggðarlögum þar sem framhaldsskólarnir eru hvort þeir telji eðlilegt að það almenna stjórnvald sem þar er, kosið af fólkinu á viðkomandi svæði, fái að skipa meiri hlutann í skólanefndunum. Það er ekki áhyggjuefni þessa hæstv. ráðherra, enda ítök Alþb. minnkandi og hverfandi hvarvetna á landinu.
Jón Böðvarsson skólameistari heldur áfram um þessa grein, með leyfi hæstv. forseta:
,,Skipting landsins í framhaldsskólasvæði væri skýlaust til bóta [undirstrikað]. Gert var ráð fyrir þeirri tilhögun í frv. Ragnars Arnalds og fleiri alþýðubandalagsmanna sem ekki náði fram að ganga. Í framhaldsskólanefndinni sem samdi núgildandi lög benti ég á að slík skipan felst í grunnskólalögum og var í iðnfræðslulögum sem féllu úr gildi við samþykkt núgildandi laga. Sá háttur var á hafður við undirbúning laga nr. 57/1988 að fyrst var vandlega undirbúið frv. lagt fram til kynningar og sent umsagnaraðilum. Einn þeirra, Jón Fr. Hjartarson, skólameistari á Sauðárkróki, sendi menntmrh. vel útfærða tillögu um svæðaskiptingu. Ég studdi hana en enginn annar nefndarmaður var henni samþykkur. Mótrök meðnefndarmanna minna voru einkum þau að sú hætta fylgdi svæðaskiptingu að framhaldsskólar yrðu í kjölfar hennar settir undir valdsvið fræðslustjóra. Eftir það yrðu þeir naumast sjálfstæðar rekstrareiningar. Ég var svo bjartsýnn að halda að engin breyting yrði gerð á lögunum fyrr en þau hefðu verið reynd í nokkur ár og sýnt væri hvernig þau gæfust. Ljóst er nú að þar var ég skammsýnn.`` --- Ég sé ástæðu, herra forseti, til að endurtaka þessi ummæli Jóns Böðvarssonar vegna þess að ég efast um að hæstv. menntmrh. geti hrósað sér af því að annar maður
sem betra skynbragð ber á skólamál en Jón Böðvarsson sé í hans flokki. En Jón Böðvarsson segir, með leyfi hæstv. forseta, og ég endurtek: ,,Ég var svo bjartsýnn að halda að engin breyting yrði gerð á
lögunum fyrr en þau hefðu verið reynd í nokkur ár og sýnt væri hvernig þau gæfust. Ljóst er nú að þar var ég skammsýnn.`` Þetta segir Jón Böðvarsson og snertir ekki ráðherra menntamála þó hann fái slíka aðvörun, kemur ekki við hann, lætur sig það engu skipta, en er í bjánalegum mannjöfnuði við fyrri menntmrh. og hagar sér eins og krakki í matrósafötum.
Enn segir Jón Böðvarsson um 3. gr. frv.:
,,Verði lögð fram [undirstrikað] brtt. við 6. gr. laganna hygg ég að best væri að orða hana svo:
,,Samstarfsnefnd framhaldsskóla skipuð skólameisturum (rektorum) undir forsæti menntmrh. eða staðgengils hans fjallar um sameiginleg málefni framhaldsskóla og samræmir störf þeirra. Samstarfsnefnd skal halda a.m.k. einn fund árlega. Menntmrh. setur nefndinni starfsreglur og tilgreinir þar verksvið hennar og starfshætti. Menntmrh. skiptir landinu í framhaldsskólasvæði og setur starfsreglur í samráði við skólameistara og sveitarstjórnir á hlutaðeigandi svæðum.`` Síðan heldur Jón áfram með leyfi hæstv. forseta: ,,Af framansögðu má sjá að ég tel ekki tímabært að leggja fram brtt. við núgildandi framhaldsskólalög, en verði það gert tel ég að einungis eigi að leggja fram kynningarfrv. er sent verði umsagnaraðilum og síðan um fjallað í nefnd sem ráðuneytisstarfsmenn eiga ekki fulltrúa í.`` Ég endurtek: ,,sem ráðuneytisstarfsmenn eigi ekki fulltrúa í.``
Hvernig skyldi nú, herra forseti, standa á því að þessi reyndi skólamaður og flokksbróðir núv. menntmrh. leggur svo þunga og ríka áherslu á þetta atriði? Ég væri auðvitað að gera Jóni Böðvarssyni upp skoðanir ef ég héldi að ástæðan væri sú að starfsmenn ráðuneytanna töluðu fyrir munn ráðherrans, héldu fram skoðunum ráðherrans og væru fulltrúar ráðherrans í þeim nefndum sem þeir sætu í fyrir hönd viðkomandi ráðuneytis. Ekki er ég viss um að Jón Böðvarsson, og raunar veit ég að Jón Böðvarsson hugsar málið ekki þannig að allt frumkvæði komi endilega frá ráðherranum sjálfum. En á hinn bóginn munum við það sem sátum á fundi menntmn. með Jóni Böðvarssyni að hann lagði mjög ríka áherslu á að erfitt hefði verið að samræma þau sjónarmið sem framhaldsskólanefndinni var falið að vega og meta. Ég man ekki hvort athugasemdir höfðu borist um framhaldsskólafrv. frá 20 aðilum eða eitthvað svo, ítarleg álit frá mörgum hverjum og Jón Böðvarsson sagði að það hefði verið mjög erfitt verk að ná fram þeim málamiðlunum sem nauðsynlegar voru til þess að ná fram heillegu frv. að framhaldsskólalögum sem skólarnir geta vel starfað eftir og menn sætta sig vel við að starfa eftir.
Ég er að vísu ósammála Jóni Böðvarssyni um það að rétt sé að skipta landinu upp í fræðsluumdæmi á framhaldsskólastigi eins og gert er á grunnskólastigi. Ástæðan fyrir því að skólamenn höfnuðu þeirri hugmynd var sú að þeir töldu ástæðulaust að flækja svo mjög stjórnsýslu hinna tiltölulega fáu framhaldsskóla í landinu og vil ég í því sambandi aðeins rifja upp hvaða afleiðingar það getur haft þegar
mikil miðstýring er á slíku starfi og skólunum ekki gert kleift að starfa sem sjálfstæðast. Vil ég í því sambandi rifja upp þær umræður sem voru á sínum tíma hér um húsmæðraskólana og húsmæðrafræðsluna í landinu. Við sjálfstæðismenn héldum því þá fram að það væri það sama og að drepa þessa starfsemi, ef um hana yrði sett heildarlöggjöf, heildarnámsskrá sem allir skólarnir yrðu að fylgja í stóru sem smáu í staðinn fyrir að reyna að breyta hlutverki þeirra og markmiði í samræmi við þau nútímalegu sjónarmið sem voru að ryðja sér til rúms í skóla- og atvinnumálum um 1970 og árunum þar á eftir sem að síðustu leiddu til þess að húsmæðraskólana dagaði uppi.
Ég ítreka sem sagt að það er kannski ekki aðalatriðið, herra forseti, hvor okkar hefur rétt fyrir sér, Jón Böðvarsson eða ég, eða hvort reynslan eigi eftir að skera úr um það að skynsamlegt hafi verið að skipta framhaldsskólunum upp í fræðsluumdæmi. Aðalatriðið er hitt að þeir sem ábyrgðina bera og skólastarfið hvílir á úti um landið þeir telja nauðsynlegt og æskilegt að reynsla fáist á framhaldsskólalögin. Þegar formaður menntmn. segir að formaður Skólameistarafélagsins hafi fallist á breytingu sem hann gerir á tillögum skólameistarans þá þýðir það í raun og veru að skólameistari sættir sig við að fá því ekki ráðið hvernig meiri hl. menntmn. leikur þau erindi sem fyrir nefndina eru lögð.
Um 4. gr. segir Jón Böðvarsson, með leyfi hæstv. forseta:
,,Brtt. frv. við 7. gr. laganna tel ég fráleita og vek athygli á að hún er afar efnisólík tillögu um skipan skólanefndar í áðurnefndu frv. Ragnars Arnalds o.fl. sem mjög raunhæf er að mati mínu. Aðalhlutverk skólanefnda hlýtur að vera stefnumótun og fjármálastjórnun. Það hlutverk á að vera í höndum kjörinna fulltrúa kjósenda á hverju skólasvæði sem annaðhvort eru kjörnir beinni kosningu, sbr. frv. Ragnars o.fl., eða valdir af sveitarstjórnum þar. Fráleitt er að tveir fulltrúar starfsmanna sitji í
skólanefnd og séu þannig settir yfir skólameistara. Slík tilhögun sýnist þeim mun lakari sem starfsmenn skóla eru færri. Verði þetta ákvæði frv. samþykkt hygg ég að fáir dugandi menn fengjust til þess að gegna skólameistarastarfi.`` Ég endurtek, herra forseti, þessi síðustu orð Jóns Böðvarssonar: ,,Verði þetta ákvæði frv. samþykkt hygg ég að fáir dugandi menn fengjust til þess að gegna skólameistarastarfi.``
Áfram heldur Jón, með leyfi hæstv. forseta: ,,Fyrirhuguð skipan skólanefnda er að auki hin mesta óvirðing við sveitarstjórnir. Ég tel að hvorki sveitarstjórnarmenn né almenningur geti unað því ofurvaldi starfsmanna sem í tillögunni felst. Eðlilegt er að kennarar meti allar hugsanlegar breytingar á stefnumótun og kennsluháttum með hliðsjón af hvaða áhrif breytingarnar muni hafa á kjör þeirra. Tækninýjungar og breytt starfaskipan í þjóðfélaginu kalla á framvindu í skólamálum sem hlýtur að koma mörgum kennurum illa. Þeir gætu brugðist við nýjungum á starfssviði sínu líkt og prentarar á Bretlandseyjum. Öðru máli gegnir um nemendur.
Hagsmunir þeirra eru fyrst og fremst að skóli þeirra sé sem bestur. Mér hefur jafnan fundist nemendur miklu ábyrgari en kennarar í málum sem falla undir skólanefndir. Kennarar eru hins vegar allra manna hæfastir til þess að ákveða kennsluskipan innan þeirrar umgerðar sem sett er hverjum skóla.
Sú tilhögun að kennarar og aðrir starfsmenn velji tvo fulltrúa í skólanefnd en nemendur einn er mjög ólýðræðisleg. Eigi skólaþegnar að kjósa menn í skólanefndir ættu þeir allir að hafa jafnan atkvæðisrétt, nemendur, kennarar, húsverðir, ræstingakonur o.s.frv. Eigi launaðir starfsmenn að hafa margfaldan atkvæðisrétt á við nemendur kemur mér í hug stjórnarfar í Suður-Afríku. Nemendur eru þar í hlutverki negraminnihlutans. Hvernig fyndist mönnum ef kjósa ætti verksmiðjustjórn t.d. í Héðni, ef verkstjórar og aðrir yfirmenn ættu að hafa margfaldan atkvæðisrétt á við verkamenn? Verði ákveðið að breyta tilhögun skólanefnda er lágmarkssanngirni að nemendafulltrúar séu a.m.k. jafnmargir og starfsmannafulltrúar sem í reynd yrðu kennarar eða bókaverðir en ekki starfsmenn í mötuneytum, gangaverðir eða ræstingafólk.
Vakin skal athygli á að vel hefur gefist sú tilhögun að fulltrúar kennara og nemenda séu áheyrnarfulltrúar á skólanefndarfundum. Ekki tíðkast þó að þeir sitji fundi meðan ræddar eru starfsmannaráðningar.``
Hv. þingdeildarmönnum til glöggvunar er nauðsynlegt að gera grein fyrir því hvernig skólanefnd er skipuð lögum samkvæmt, en 7. gr. núgildandi laga hljóðar svo:
,,Menntmrh. skipar skólanefnd við hvern framhaldsskóla. Í skólanefndum skulu sitja fimm menn. Skulu fjórir tilnefndir af hlutaðeigandi sveitarfélagi eða sveitarfélögum. Þegar um er að ræða skóla sem annast starfsmenntun skal af hálfu sveitarstjórna gætt við tilnefningu að fulltrúi viðkomandi starfsgreina eigi sæti í skólanefnd. Skipunartími skólanefnda skal vera fjögur ár og miðast við kjörtímabil sveitarstjórna.
Menntmrh. skipar formann skólanefndar án tilnefningar. Tilnefningaraðilar greiða þóknun og annan kostnað vegna starfa fulltrúa sinna í skólanefnd. Skólanefndir við skóla, sem ríkið rekur nú eða kunna að verða stofnaðir án þátttöku sveitarfélaga, sbr. 5. mgr. 3. gr., skulu skipaðar af menntmrh. samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð.
Skólameistari situr fundi skólanefndar með málfrelsi og tillögurétt. Hann er framkvæmdastjóri nefndarinnar.``
Þannig voru lögin samþykkt og frá þeim gengið 9. maí 1988. En ef ég man rétt krukkaði ríkisstjórnin eitthvað í þessa grein fyrir áramótin.
2. og 3. mgr. 7. gr. laganna, ég er því miður ekki með útgáfuna á lögunum eftir að þeim var breytt fyrr í vetur. (Gripið fram í.) Fyrir vangá. Ég bað um framhaldsskólalögin og fékk þau þannig í hendur en gleymdi því að þeim hafði verið breytt. En það snertir ekki efni þeirrar ræðu sem ég er að tala um. Hér segir í frv.:
,,Menntmrh. skipar skólanefnd við hvern framhaldsskóla til fjögurra ára í senn. Í skólanefnd skulu sitja sjö menn: tveir fulltrúar starfsmanna kosnir á starfsmannafundi, einn fulltrúi kosinn af nemendum skólans, þrír fulltrúar tilnefndir af hlutaðeigandi sveitarfélagi eða samtökum sveitarfélaga í viðkomandi landshluta og einn fulltrúa skipar ráðherra án tilnefningar. Fulltrúi nemenda skal þó kosinn til eins árs. Varamenn skulu valdir með sama hætti. Nefndin velur sér formann til tveggja ára í senn.
Tveir skólar eða fleiri í sama kjördæmi eða landshluta geta sameinast um eina skólanefnd.``
Nú sé ég engan framsóknarmann hér í deildinni nema hæstv. forseta, sem raunar á sæti í menntmn., þannig að það er kannski rétt að beina orðum sínum til hæstv. forseta í von um að hann geti fengið annan hvorn varaforseta til að setjast í hinn háa stól stuttan tíma ef hann kýs að svara athugasemdum mínum. En mér finnst mjög athyglisvert ef Framsfl. er þeirrar skoðunar núna að rétt sé að sveitarfélögin séu í minni hluta í skólanefndum framhaldsskóla. Framsfl. hefur í mörgum sveitarfélögum mjög sterk ítök og ég vissi ekki betur en í
Framsfl. leyndust ýmsir hörðustu fylgismenn þess að reyna í lengstu lög að halda í hina gömlu hreppaskipan og sýsluskipan og vissi ekki betur en einmitt framsóknarmennirnir skildu líka að til þess að hægt sé að viðhalda byggðunum sé ekki síst nauðsynlegt að skólarnir vaxi þannig upp og dafni, innra starf þeirra sé þannig skipulagt að þeir geti komið sem mest til móts við það fólk sem býr í kringum þá.
Það er af þessum sökum sem ég hélt í barnaskap mínum að Sjálfstfl. gæti einmitt fengið stuðning frá Framsfl. við þá stefnu að reyna að standa á rétti sveitarfélaganna gagnvart ráðuneytisvaldinu og gegn Reykjavíkurvaldinu. En nú er svo komið að það á að taka þennan rétt af sveitarfélögunum, að kjósa meiri hluta skólanefnda framhaldsskólanna, án þess að sveitarfélögin fái í raun og veru svigrúm til andsvara.
Þetta frv. er lagt hér fram undir lokin. Mig minnir að það hafi verið lagt fram síðasta daginn sem heimilt var að leggja fram frv. án þess að sérstaklega þyrfti um það að fjalla hvort þingdeild samþykkti að það væri tekið til umfjöllunar. Síðasta daginn. Og eins og ég sagði áðan andaði þannig til frv. hér innan þingsins að hæstv. forsrh. sá enga ástæðu til að afgreiða það á þessu þingi. Þess vegna hefði maður kannski haldið að einmitt Framsfl. mundi standa með okkur sjálfstæðismönnum að því að veita sveitarfélögunum svigrúmið. ( Gripið fram í: Framsóknarflokkurinn?) En við því er ekki að búast að Framsfl. standi við það. Það hentar þeim ekki nú í þessu samhengi að þykjast vera byggðaflokkur, enda formaður flokksins kominn til Suðurnesja, auðvitað fyrir hagkvæmni sakir því að hvergi á hæstv. forsrh. betur heima en í því kjördæmi þar sem millilanda- og alþjóðaflugvöllurinn er.
Um 5. gr. frv. segir Jón Böðvarsson, með leyfi hæstv. forseta:
,,Eigi skólastjórn [og nú er stjórn skrifað með upphafsstöfum] skipuð starfsmönnum skóla að ,,vera skólameistara til aðstoðar við stjórnun skóla og rekstur``, hvert er þá hlutverk skólanefnda? Eiga skólanefndir og skólastjórn að fást við sömu verkefni?``
Þessara tveggja spurninga spyr Jón Böðvarsson. Nú vil ég, herra forseti, spyrja hæstv. menntmrh. sömu spurninga og Jón Böðvarsson varpar fram í sínu bréfi: Eigi skólastjórn skipuð starfsmönnum skóla að vera skólameistara til aðstoðar við stjórnun skóla og rekstur, hvert er þá hlutverk skólanefnda? Og í öðru lagi: Eiga skólanefndir og skólastjórn að fást við sömu verkefni? Það er nauðsynlegt að fá þessu svarað svo skýrt sé. Það væri líka fróðlegt að fá að vita hver er skoðun formanns menntmn. á þessu máli, en hann gerði sig ekki líklegan til þess í framsöguræðu sinni hér áðan að svara þessum efnisatriðum, þessum veigamiklu spurningum skólamannsins Jóns Böðvarssonar.
Enn heldur Jón Böðvarsson áfram: ,,Mér virðast tillögur í 4. og 5. gr. frumvarpsdraga þessara fram settar í því skyni að kippa til baka því takmarkaða lýðræði sem náðist með samþykkt núgildandi framhaldsskólalaga. Raunverulegt lýðræði samkvæmt stjórnarskrá og íslenskum lögum felst hins vegar í margnefndu frv. Ragnars Arnalds o.fl. Önnur aðgengileg lýðræðistilhögun fælist í þeirri tilhögun að allir skólaþegnar hefðu jafnan atkvæðisrétt. Benda má á að vel hefur reynst það fyrirkomulag sem lengi hefur verið við lýði í framhaldsskólum að skólanefnd sé ákvörðunaraðili um stefnumótun, svo sem hvaða námsbrautir skuli starfræktar og fjármálastjórnun en skólaráð [og nú hefur Jón upphafsstafi í ráð] fjalli um innri málefni t.d. fjarvistarreglur, agamál, kennslutilhögun og prófaskipan. Nafnið skólaráð var sett í núgildandi lög vegna þess að sú stofnun er og á að vera ráðgjafar- en ekki stjórnunaraðili.``
Um 6. gr. segir Jón Böðvarsson: ,,Þessi brtt. gerir ráð fyrir þriðja stjórnunaraðila. Hinir tveir eru skólanefnd og skólastjórn [stjórn með upphafsstöfum.] Hver á að vera valdaskipting milli þessara aðila?`` spyr skólamaðurinn og ég spyr hæstv. ráðherra hinnar sömu spurningar.
Enn segir Jón Böðvarsson, með leyfi hæstv. forseta: ,,Er ætlunin að ákveða hana með reglugerðum sem áreiðanlega hefðu að geyma ákvæði þess efnis að menntmrn. skæri úr ágreiningsmálum. Athygli skal vakin á að á kennarafundum eiga seturétt fastir kennarar. Meginþorri þeirra skólaþegna sem annast miðlun fræðslu en ekki aðrir, ekki einu sinni stundakennarar sem lítið kenna. Því tel ég rétt að valdsvið kennarafunda takmarkist af starfssviði þeirra sem þar eiga sæti. Skoðun mín er sú að vel megi auka vald kennarafunda frá því er nú tíðkast varðandi námsefnisval, kennslu og prófatilhögun. Á hinn bóginn finnst mér fráleitt að kennarafundir hafi ákvörðunarvald um málefni er nú falla undir skólanefndir eða skólameistara. Kennarafundir geta að sjálfsögðu verið umræðuvettvangur um nánast hvað
sem er en kjaramál kennara og önnur hagsmunamál eiga betur heima á kennarafélagsfundum. Sökum þeirrar sérstöðu kennarafunda sem á er drepið hér að framan þótti nefndinni sem samdi núgildandi framhaldsskólalög eðlilegt að valdsvið kennarafunda væri ákvarðað og afmarkað í reglugerð þótt nefndin hafi yfirleitt ekki verið hlynnt reglugerðartilhögun. Því tel ég þá breytingu sem fyrirhuguð er í 6. gr. vera í lagi,,, segir Jón Böðvarsson og eins og þingmenn rekur minni til gerði ég ekki athugasemd við hana þegar ég fór yfir frv. hér við 1. umr. málsins.
Ég vil vekja athygli hæstv. forseta á því að senn líður að því, innan kannski 5 mínútna, að lokað verður fyrir málsverð hér niðri í matsal þingsins, en fundir munu halda áfram til kvöldmatar þannig að þeir menn sem hér hafa verið í deildinni eiga af þeim sökum rétt til matarhlés að minni hyggju. Ég hafði hugsað mér að vera við umræður í Sþ. eftir að þær hefjast nú kl. 2 þannig að ég hef af þeim sökum ekki svigrúm til að skjótast heim og gá hvort kona mín eigi eitthvað heitt að bjóða mér ef ekki ynnist tími til að fá sér snarl hér niðri núna. Hvað segir hæstv. forseti um þetta? Finnst honum það í samræmi við eðlilegar vinnureglur hér í þinginu að ræðumenn fái matarhlé ef svo háttar til vegna þess máls sem til umræðu er að þeir geta ekki brugðið sér frá þann hálfan annan tíma sem hægt er að fá að borða hér í eldhúsi? ( Forseti: Ég hygg að það sé nú eitthvað lengur sem matur verður framreiddur hér niðri þannig að ég vil reyna að þurfa ekki að slíta í sundur ræður ræðumanna áður en hlé er gert.) Ég er mjög þakklátur hæstv. forseta ef hann hefur gert ráðstafanir til þess að halda matnum heitum hér niðri fram eftir degi og veit að frú Þórdís hefur tekið því vel því allt vill hún fyrir okkur gera hér. En þetta er meiri fyrirhyggja hjá hæstv. forseta en ég hafði satt að segja búist við eða vænst. En ég hlakka til að njóta þess.
9. gr. frv. hljóðar svo:
,,Síðari málsl. fyrri mgr. og 2. málsl. síðari mgr. 16. gr. laganna falli brott.``
Þannig hljóðar 16. gr. sem fjallar um inntökuskilyrði, VI. kafli framhaldsskólalaga:
,,Allir, sem lokið hafa grunnskólanámi eða hlotið jafngilda undirstöðumenntun, eiga rétt á að hefja nám í framhaldsskóla að fullnægðum kröfum um starfsþjálfun þar sem hennar er krafist.`` Síðan leggur meiri hl. nefndarinnar til að niður falli: ,,Nemendum er skylt að stunda fornám í einstökum námsgreinum samkvæmt ákvæðum í námsskrá hafi þeir ekki náð tilskildum lágmarksárangri.``
Meiri hl. nefndarinnar var sammála um að fella þetta niður. Síðari mgr. um inntökuskilyrði hljóðar svo:
,,Nemandi, sem orðinn er 18 ára gamall, getur hafið nám í framhaldsskóla án þess að fullnægja inntökuskilyrðum samkvæmt þessari grein nema að því er varðar starfsþjálfun.`` Síðan kemur: ,,Heimilt er að setja lágmarkskröfur til inntöku í tiltekna námsáfanga.`` Meiri hl. nefndarinnar er sammála um að fella þetta líka niður, en standa á: ,,Inntaka nemenda í skóla er
á ábyrgð skólameistara.``
Nú skulum við líta á samhengið og nú skulum við veita því athygli að ,,inntaka nemenda í skóla er á ábyrgð skólameistara`` stendur hér í 2. mgr. og á eingöngu við þá nemendur sem orðnir eru 18 ára gamlir. Nemandi sem orðinn er 18 ára gamall getur hafið nám í framhaldsskóla án þess að fullnægja inntökuskilyrðum samkvæmt þessari grein nema að því er varðar starfsþjálfun. Síðan er í lögunum: ,,Heimilt er að setja lágmarkskröfur til inntöku í tiltekna námsáfanga.`` Hver er hugmyndin með því að setja lágmarkskröfur? Ætli það sé alveg út í bláinn?
Það kom til mín ungur maður nú í vetur, orðinn 24 ára gamall, hafði ekki lokið stúdentsprófi en hafði tekið sum þeirra prófa sem falla undir stúdentspróf og var kominn verulega áleiðis í öðrum námsgreinum og spurði mig að því hvort ég teldi ráðlegt að hann sækti um inngöngu í rekstrarbrautina í Háskólanum á Akureyri miðað við þá reynslu sem hann hefði og sýndi mér jafnframt þær einkunnir sem hann hafði fengið á sínum menntaskólaferli. Ég hvatti hann auðvitað mjög til þess að reyna að halda áfram námi. En ég ráðlagði honum einnig að senda Stefáni Jónssyni brautarstjóra bréf með upplýsingum um hans námsferil og reynslu og spyrja hann að því í fyrsta lagi hvort hann ætti kost á inngöngu, í öðru lagi ef svo væri, hvar hann teldi þá að þessi ungi maður ætti helst að reyna að mennta sig eitthvað meir til þess að undirbúa sig undir það nám sem hann ætlaði að takast á hendur þá á næsta hausti, til að búa sig undir það. Auðvitað tók sá reyndi skólamaður, Stefán Jónsson, því vel og gaf honum upplýsingar um þau atriði sem hann taldi að vantaði upp á til þess að hann gæti tileinkað sér með góðum hætti það nám sem hann ætlaði að leggja í þá um haustið. Auðvitað var það í þessu tilviki svo að þessi ungi maður leitaði af eigin hvötum til skólans. Ég get verið sammála um það að auðvitað sé æskilegt þegar nemendur eru komnir til ára sinna að þeir að fyrra bragði leiti upplýsinga um það hvernig náminu sé háttað í þeim framhaldsskóla sem þeir ætla að setjast í og reyni að gera sér grein fyrir því hvar þeirra erfiðleikar liggi einkum miðað við fyrra nám og starfsreynslu.
Ég hef ekki orðið var við það að þær lágmarkskröfur sem settar hafa verið í tiltekna námsáfanga nú á seinni árum séu ósanngjarnar, óbilgjarnar og ýti þeim einstaklingum frá sem maður mætti ætla að lykju prófi að öðrum kosti. Auðvitað má alltaf segja þegar um inntökuskilyrði er að ræða að maður viti ekki hverjir hafi hætt við. Það má auðvitað alltaf segja. En jafnsárt og það er fyrir nemendur á gelgjuskeiði að þurfa að sitja eftir er hitt þó enn þá sárara fyrir
rígfullorðna menn að geta ekki nýtt sér kennsluna, skólagönguna, vegna þess að þeir voru illa undirbúnir.
Ég get þess vegna ekki séð að fyrir því séu nein rök að ekki eigi að vera heimild fyrir framhaldsskólana, einstaka fagskóla, ( Gripið fram í: Það er heimilt.) að setja lágmarkskröfur til inntöku í tiltekna námsáfanga. Eins og 9. gr. liggur hér fyrir, þá
er gert ráð fyrir því að 2. málsl. síðari mgr. 16. gr. falli brott. Hef ég eitthvað misskilið það? (Gripið fram í.) En ber að skilja það svo að hugmynd menntmrh. sé að láta síðari mgr. vera óbreytta kannski? Þá þarf að umorða frv., flytja brtt. við 9. gr. ( Menntmrh.: Hún fellur niður. Það er rétt eins og stendur í frv.) Það er rétt eins og stendur í frv., já. Og þá er það rétt sem ég segi. Ég trúi því nú ekki að ýmsir skólameistarar, ég get t.d. talað um rektor Menntaskólans í Reykjavík, að hann sé sammála því að ekki megi setja inntökuskilyrði í Menntaskólann í Reykjavík, að það eigi kannski bara að varpa hlutkesti um það, draga um það hvaða nemendur settust í þann skóla.
Um þessa grein, 16. gr., segir Jón Böðvarsson, um fyrri liðinn, fornámið:
,,Hætt er við að starfsmenn menntmrn. beiti drottnunarrétti sínum til þess að hindra að fornámsáfangar verði starfræktir ef ákvæði um fornám verður fellt úr núgildandi lögum. Fornámsáfangar eru hagkvæmir þeim nemendum sem ekki hafa nægilegan undirbúning til þess að geta fylgst með öðrum nemendum í byrjunaráföngum á framhaldsskólastigi. Því ætti ekki að fella brott úr lögunum 2. málsl. 1. mgr. 16. gr.``
Um þetta vil ég að öðru leyti segja það að Ingvar Ásmundsson skólameistari upplýsti menntmn. um að í flestum eða öllum framhaldsskólum úti á landi væri nemendum gefinn kostur á fornámi. Hins vegar væri það svo hér í Reykjavík að fornám væri einungis boðið fram í tveim framhaldsskólum, Iðnskólanum í Reykjavík og ég held að ég fari rétt með að Réttarholtsskólinn sé hinn skólinn. Við spurðum hann að því hvort hann teldi að þessi breyting mundi hafa það í för með sér að fornám félli með öllu niður í framhaldsskólunum í Reykjavík og spurðum hann um leið að því hvort hann teldi að fornámið hefði verið gagnlegt. Skólameistari taldi að fornámið hefði verið mjög gagnlegt, taldi reyndar eðlilegt að gefinn væri kostur á fornámi í öllum skólahverfum, í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og annars staðar, að nemendur þyrftu ekki að fara niður í Iðnskóla til þess að sækja fornám, heldur ætti hverfaskiptingin við einnig þar. Hann taldi líka að þó svo að fyrir dyrum stæði að skera mjög niður skólastarfið á næsta hausti, þá var það skoðun Ingvars Ásmundssonar að það mundi ekki bitna á fornáminu í hans skóla. Á hinn bóginn vakti hann athygli nefndarmanna á því að fornámið væri mjög dýrt og kostnaðarsamt sem aftur gefur mér tilefni til þess að spyrja hæstv. menntmrh. beint þeirrar spurningar hvort þessi breyting á fyrri mgr. 16. gr. sé sett inn í frv. til þess að opna möguleika á því fyrir menntmrn. að skera fornám niður í einhverjum þeirra framhaldsskóla sem nú hafa það á þessu skólaári. ( Menntmrh.: Svarið er nei.) Svarið er nei, segir menntmrh. Hver er þá tilgangurinn með breytingunni? ( Menntmrh.: Það stendur í greinargerðinni.) Hver er þá tilgangurinn með greinargerðinni?
Ég skil náttúrlega ekki hvað rekur menn til þess að
breyta þeim málsgreinum um inntökuskilyrði með þeim hætti sem hér er lagt til. Þetta er í fullri andstöðu og fullu ósamræmi við skoðanir allra þeirra skólamanna sem ég hef talað við og skiptir þá engu máli hvort ég rifja upp reynslu mína síðan ég var kennari, rifja t.d. upp skólastjórn Jóns Gissurarsonar hér niðri í Lindargötuskóla eða hvort ég rifja upp samræður mínar nú á seinni árum og eftir að þetta frv. kom fram þegar ég hef spurt kennara og skólastjóra hvernig þeim lítist á þá breytingu sem felst í 9. gr. Það er í rauninni sorglegt að þeir menntamálanefndarmenn, sem vilja styðja þessa grein, skuli ekki hafa manndóm í sér til þess að standa upp í deildinni og gera grein fyrir því hvers vegna þeir í fyrsta lagi telja ekki nauðsynlegt að það sé skylt að veita fornám, að nemendum sé skylt að stunda fornám og í öðru lagi hvers vegna þeir telji rétt að heimila ekki að lágmarkskröfur séu settar til inntöku í tiltekna námsáfanga. Um það atriði segir Jón Böðvarsson, með leyfi hæstv. forseta:
,,Nauðsynlegt er að skólar hafi heimild til þess að setja lágmarkskröfur til inntöku í tiltekna námsáfanga. Dæmi: Í MR hefur áratugum saman tíðkast að lágmarkseinkunn í stærðfræði þurfi til þess að nemendur komist í eðlisfræðideildir. Falli 2. málsl. 2. mgr. 16. gr. brott úr lögum hefur sá skóli ekki lengur heimild til slíkrar takmörkunar.``
Ég get líka rifjað upp að í Verslunarskólanum er það skilyrði sett fyrir inngöngu í stúdentadeild að nemandi hafi fengið 6,5 á verslunarprófi. Með því að breyta ákvæðum laganna er því beinlínis verið að koma inn í innri stjórn skólanna, skyndilega eins og þjófur úr heiðskíru lofti og án þess að gefa viðkomandi skólamönnum, starfsmönnum, kennurum þessara skóla og nemendum þessara skóla neinn kost á því að fjalla um þessa efnisbreytingu. Hvaða nauður rekur núv. hæstv. menntmrh. eftir að hann hefur verið eitthvert brot úr skólaári menntmrh. til að koma með þessa breytingu skil ég ekki og hélt ég
satt að segja að metnaður menntmrh. ætti fyrst að standa til þess að reyna að sitja í þessu sæti þannig að eitt skólaár geti gengið sæmilega og misfellulaust fyrir sig áður en hann fer að skipta sér af innra starfi elstu menntastofnana þessa lands eins og Menntaskólans í Reykjavík.
Herra forseti. Það er auðvitað vonum seinna sem skólamálin koma til umræðu hér í deildinni en svo vel vill til að sl. þriðjudag birtist grein í Morgunblaðinu eftir Viktor A. Guðlaugsson, skólastjóra Árbæjarskóla í Reykjavík. Ég tel nauðsynlegt, vegna þess að í þessari grein er fjallað um þann sparnað sem hæstv. menntmrh. hefur fyrirskipað að gerður verði í skólum landsins, að lesa bréf skólastjórans og fá upplýsingar hjá hæstv. menntmrh. nú við þessa umræðu um það í fyrsta lagi hvort rétt sé það sem í bréfinu stendur og óska eftir því líka, herra forseti, að hér við þessa umræðu verði lagt fram samsvarandi bréf, ef til er, eða áætlun, ef til er, um það hvernig eigi að standa að niðurskurði á kennslu í framhaldsskólum landsins.
Við erum hér að fjalla um framhaldsskólalögin.
Hæstv. menntmrh. lætur hafa mikið og digurt viðtal við sig í Þjóðviljanum í dag þar sem hann bólgnar út af metnaði fyrir skólana í landinu, er eins og blöðrukall þegar blásið er í, maður sér það fyrir sér hvernig blaðran smátt og smátt þenst út og bíður bara eftir að hún springi þegar líða tekur á viðtalið. Það er þess vegna nauðsynlegt að við fáum að kynnast eitthvað þessum ríka metnaði hér í deildinni. En þó vitum við það, herra forseti, eins og ég hef margtekið fram, að ráðherrarnir eru hættir að nenna að tala í þinginu vegna þess að þeir geta hlaupið í sjónvarpið þegar þeim sýnist og vegna þess að spyrlarnir í fréttatímanum eru ekki betur inni í málum en svo að þeir kunna ekki að spyrja þeirra spurninga sem nauðsynlegar eru til þess að draga fram staðreyndir eða stöðu mála. Samkvæmt þeim upplýsingum sem skólastjórinn greinir frá í blaðagreininni er sparnaðaráætlun menntmrn. í sex greinum sem gerð er grein fyrir með þessum hætti, með leyfi hæstv. forseta:
,,Í fyrsta lagi: Frestað verður að auka kennslu 6 ára barna sem gert hafði verið ráð fyrir og átti að kosta heilar 10 millj. kr. Þennan mikla sparnað verður að skoða í ljósi þess að menntmrh. hefur á undanförnum mánuðum riðið um héruð og m.a. boðað einsetinn skóla og aukna kennslu, einkum til handa yngri börnum, heimilum í landinu til mikils léttis. Það er heldur ekki útilokað að ráðherrann hafi fengið þessa snjöllu hugmynd þegar hann var búinn að lesa sér til ánægju alla óskalistana sem hann sendi skólum og foreldrafélögum sem jólaglaðning og innihéldu forgangsverkefnin í íslenskum skólamálum.`` --- Svo mörg voru þau orð um fyrsta liðinn.
Nú vildi ég óska þess, hæstv. forseti, eða spyrja hvort þingið geti ekki látið menntamálanefndarmönnum í té óskalistann. Úr því að menntmrh. hafði fyrir því að senda öllum skólum landsins og foreldrafélögunum í jólagjöf forgangsverkefnin í íslenskum skólamálum er þá ekki hægt að fá þetta? ( Menntmrh.: Hann var sendur öllum þingflokkum.) Ég óska eftir því að nefndarmenn menntmn. fái þetta og óska eftir að þingið hafi milligöngu um það.
Ég vil líka minna á það, og væri gaman að rifja upp hversu oft hæstv. menntmrh. meðan hann var óbreyttur þingmaður talaði hér í þinginu eða flokkssystkini hans um nauðsyn þess að auka kennslu sex ára barna. Var þetta ekki á tímabili eitt af helstu baráttumálum Alþb. í skólamálum?
Síðan segir Viktor A. Guðlaugsson í öðru lagi, herra forseti:
,,Dregið verður eins og kostur er úr framlögum til forfallakennslu sérstaklega í 7.--9. bekk. Þetta er mikið snjallræði enda ætlar ráðherrann að spara hvorki meira né minna en 4 millj. með þessu tiltæki. Þetta þýðir í raun að veikist kennari skuli börnin annaðhvort send heim eða þau látin ráfa um skólann milli stunda, e.t.v. án eftirlits hvort sem forfallakennari fæst eður ei. Þetta hlýtur að stórbæta skólastarfið og virkilega vera sinna fjögurra milljóna virði.``
Ég veit ekki, herra forseti, hverju ég hef við þetta að bæta. Þannig stendur á að ég kenndi einmitt á þeim árum fyrst þegar lítið var um forfallakennslu nema veikindi kennara væru mjög alvarleg en á síðustu árum mínum sem kennari var það orðin föst venja ef það brygðist að kennt yrði reyndi skólastjóri að sjá til þess að kennsla félli ekki niður og var þá hlaupið í skarðið. Og auðvitað hafði það mikið að segja til þess að viðhalda festu í skólastarfinu að reynt væri að láta skólann ganga sinn gang.
Í þriðja lagi segir skólastjórinn, með leyfi hæstv. forseta:
,,Svokölluð ,,kvótastörf`` verða skert um 4%. Skerðingin verður meiri seinni hluta ársins þar sem þegar er víðast búið að fullnýta kvótana frá janúar/maí. Á mannamáli merkir þetta að það á að draga úr möguleikum skólanna til að halda uppi félags- og tómstundastarfi meðal nemenda og skerða þjónustu skólasafna og fleira. Með þessu ætlar ráðherrann að spara hvorki meira né minna en 2 millj. Það munar um minna í ríkishítinni og þetta fellur eins og flís inn í meistarastykki félagshyggjuflokkanna um þessar mundir.``
Í fjórða lagi segir skólastjórinn, með leyfi hæstv. forseta:
,,Orðrétt segir í þessum lið bréfsins: ,,Með því að færa sundkennslu inn í viðmiðunarstundaskrá er gert ráð fyrir að spara megi um 18 millj. kr., sjá hjálagt bréf.``
Það er hér sem orðsnilld Svavars Gestssonar rís hæst, svo hátt að jafnvel reyndustu skólamenn líta upp í orðvana hrifningu. Engum sem ekki kann ráðherrareikning gæti dottið í hug að með því einu að breyta staðsetningu umræddra sundtíma á viðmiðunarstundaskránni mætti spara heilar 18 millj. En svo var það þetta hjálagða (hjáróma) bréf sem vitnað er í sem eyðileggur áhrif þessarar hugljómunar. Þar er nefnilega sagt að um leið og umræddir sundtímar eru færðir til á viðmiðunarstundaskránni skuli skera almenna kennslu niður um eina stund á hverja bekkjardeild grunnskólans frá 1.--9. bekk. Jafnframt er skólanum falið að ákveða hvar skorið skuli. Í sparnaðarskyni [feitletrað] hefði því mátt orða þennan fjórða lið svo: Almenn kennsla í grunnskólum skal skorin niður um eina kennslustund á hverja bekkjardeild skóla.
Í öllum þessum orðaflaumi virðist ráðherrann hreinlega hafa verið að drukkna og því gripið til sundtakanna í von um björgun.
Það þarf ekki mikið hugvit til að sjá hvernig þessar aðgerðir ráðherrans falla inn í boðskap hans um samfelldan skóladag. Því styttri sem skólinn er þeim mun auðveldara er að hafa skóladaginn samfelldan. Þetta um lengingu skóladagsins sem ráðherrann hefur boðað á sínum tíðu fundum verður hins vegar ekki skýrt nema setja það í samband við annan lið sparnaðarherferðarinnar, þ.e. að börn og unglingar gangi sjálfala í skólum. Fækkun kennslustunda í grunnskólum hlýtur hins vegar að fara að teljast til einkaframlags Alþb. til íslenskra skólamála því í
ráðherratíð Ragnars Arnalds var einnig gripið til þessa ráðs. Þannig hafa menntamálaráðherrar Alþb. skert kennslu í efri bekkjum grunnskóla um þrjár kennslustundir á viku frá því sem grunnskólalög gera ráð fyrir og viðtekið var. Það þarf því ekki að rækta nema fáein eintök til viðbótar af þessum sérstaka ráðherrastofni til að kennsla í grunnskólum leggist að mestu af. Slíkt yrði þjóðarbúinu veruleg lyftistöng.``
Í fimmta lagi segir skólastjórinn, með leyfi hæstv. forseta:
,,Ráðuneytið ætlar að spara á tilteknum liðum 35 millj. kr. Þetta lofar góðu og er rúmlega helmings aukning á þeim niðurskurði sem þegar hefur verið tíundaður. Við hljótum að bíða í ofvæni eftir þessum nýja félagsmálapakka.``
Í sjötta lagi segir skólastjórinn, með leyfi hæstv. forseta:
,,Fræðslustjórum er ætlað að finna leiðir til að spara 57 millj. til viðbótar því sem að ofan er talið. Fræðslustjórinn í Reykjavík á t.d. að spara 17 millj. Það er auðvitað skiljanlegt að skörð séu komin í blaðið á niðurskurðarhníf ráðherrans eftir að hafa sargað svo grýttan efnivið. Því er brugðið á það ráð að reyna að beita bakkanum. Það er nú svo að möguleikar fræðsluskrifstofanna til sparnaðar eru helst á sviði sérkennslu og sálfræðiþjónustu skóla.`` Ég endurtek: ,,Það er nú svo að möguleikar fræðsluskrifstofanna til sparnaðar eru helst á sviði sérkennslu og sálfræðiþjónustu skóla. Sé það hugmynd félagshyggjustjórnarinnar að leggja þar til atlögu fer nú stjarna hennar fyrst að skína skærast.
Menntmrn. sendi skólunum bréf í marsmánuði þar sem þeir eru beðnir að gera grein fyrir lausum kennarastöðum. Það hlýtur því að vera skólunum mikill léttir að þurfa ekki að sinna þessu bréfi ráðuneytisins fyrr en í maí þegar ákvarðanir þess um kennslumagn liggja loks fyrir. En það er ekki tekið út með sældinni að eiga að spara 126 millj. í grunnskólunum, síst af öllu þegar á sama tíma verður að borga 250 millj. fyrir geymslu á kindakjöti vetrarlangt eða þar til það verður urðað svo eitthvað sé nefnt af þeim félags- og menningarlegu verkefnum sem ein vesæl félagshyggjustjórn þarf að standa straum af.``
Svo mörg voru þau orð, herra forseti, og greinilegt að þessum skólastjóra er mikið niðri fyrir. Og nú skyldi enginn ætla að þessi skólastjóri geti ekki vel talað, hann hafi ekki bakgrunn til þess, því hann hefur mikla reynslu sem slíkur og hefur hvarvetna verið rómuð hans skólastjórn. Ég þekki til hennar meðan hann var í Stóru-Tjarnaskóla. Sérstaklega vakti það athygli mína og margra annarra hvaða umskipti urðu í tónlistarkennslunni, en Viktor A. Guðlaugsson er mikill og góður tónlistarmaður og hafði lag á því að safna til sín öðrum slíkum norður í Ljósavatnsskarð þannig að þar var kennt á fjölmörg hljóðfæri, bæði slaghörpu, strengjahljóðfæri, fiðlu, blásturshljóðfæri og yfirleitt var allt skólastarfið til mikillar fyrirmyndar. Við erum því hér að tala um skólamann sem veit vel hvað hann er að segja og hefur mikinn metnað fyrir
sinn skóla.
En það sem vekur athygli hér er hugmynd hæstv. menntmrh. að skera niður það fjármagn sem nauðsynlegt er til að halda uppi sérkennslu og sálfræðiþjónustu skóla. Er þetta rétt lesið, hæstv. menntmrh.? Ber að skilja það svo, hæstv. menntmrh., að það sé ekki trygging fyrir því að nauðsynlegri sérkennslu verði haldið uppi á hausti komanda? Og á að draga úr sálfræðiþjónustunni? Það er nauðsynlegt að fá þetta upplýst. Ég held að hæstv. félmrh. ætti að kynna sér svör ráðherrans eins og hann gaspraði hér á sínum tíma. En í þetta skipti
treystir menntmrh. sér ekki til þess að tala úr hliðarherbergi. Hann treystir sér ekki til að svara. Ég tek þögnina svo að ráðherrann hafi ekki hugmynd um það hvort hann sé maður til þess að halda sérkennslunni uppi og koma henni í það horf sem nauðsynlegt er, að hægt sé að sjá þeim nemendum sem greindir hafa verið fyrir þeirri sérkennslu sem metin er af sérfræðingum nauðsynleg.
Ég hef hér, herra forseti, dregið fram sparnaðartillögur hæstv. menntmrh. í grunnskólum landsins, en menntmrh. segist hafa mikinn metnað fyrir skólastarfið í landinu. Nú vil ég óska eftir því að hæstv. menntmrh. kynni fyrir deildinni hverjar séu sparnaðarhugmyndir hans varðandi framhaldsskólana svo að við fáum líka að sjá og heyra hverjar þær eru. Við þurfum að fullvissa okkur t.d. um það að menntmrh. sé maður fyrir þeim orðum sínum að ekki verði dregið úr fornáminu heldur að það verði aukið, svo að ég taki eitt dæmi.
Við þurfum líka að fá upplýsingar um það hvort hæstv. menntmrh. hafi í hyggju að draga úr fjármagni til verklegrar kennslu og síðast en ekki síst er nauðsynlegt að hæstv. menntmrh. skýri þau ummæli sín hér í deildinni hvað hann hafi átt við með því í einhverjum sjónvarps- eða útvarpsþættinum að hann muni hafa forgöngu um það að sækja þá nemendur heim sem hrökkluðust frá námi nú á þessum vetri þar sem ekki hefur verið hægt að ljúka skólaárinu með eðlilegum hætti. Er hægt að fá hæstv. menntmrh. til þess að tala um framhaldsskólamálin yfirleitt hér í þinginu eða ætlar menntmrh. okkur þingmönnum að elta fjölmiðlana til þess að fá að vita hvað er að gerast? Það er auðvitað óhjákvæmilegt að þessi ráðherra sem talar með mestri kokhreystinni af þeim öllum gefi þinginu skýrslu, gefi deildinni skýrslu um það hvernig hann ætlar að standa að skólastarfinu á hausti komanda og í öðru lagi auðvitað að hann rökstyðji það betur en verið hefur hvers vegna hann leggur svo mikla áherslu á að fá hér lögfest frv. sem allir þeir sem ég þekki til telja að hafi fengið ónóga efnismeðferð, sé illa undirbúið og raunar út í hött.
Mest mundi ég sakna þess ef fulltrúar Framsfl. í menntmn., sem eru tveir, tækju ekki til máls við þessa umræðu því að ég tel að þeir hljóti að verða að gera grein fyrir stefnu síns flokks í þessum málum. Þeir geta ekki skorast undan því eða að öðrum kosti: þeir verða þá að skýra hvers vegna þeir létu handjárna sig í málinu. Því það er deginum ljósara og var augljóst
í nefndinni að þar var ekki einn einasti nefndarmaður nema kannski fulltrúi Alþb. sem hafði nokkurn áhuga á því að þetta mál næði fram að ganga. Það var bara af því að það var kippt í spotta. Það var bara af því að ríkisstjórnin sagði þeim að gera það. Það er bara vegna þess að það er verið að versla. Ef Alþb. samþykkir ekki húsbréfin, samþykkir ekki Alþfl. framhaldsskólafrv. o.s.frv. Þannig er það. Og hvað er undir? Út á hvað ganga hrossakaupin? Það er námsferill unglinganna og það eru húsnæðismál unga fólksins.
Ég legg áherslu á það, hæstv. forseti, að sú tillaga, sem við sjálfstæðismenn ásamt fulltrúa Borgfl., Guðmundi Ágústssyni, flytjum um rökstudda dagskrá um að vísa málinu frá, er í samræmi við skoðanir þeirra skólamanna sem við höfum rætt við og byggist auðvitað fyrst og fremst á því að það yrði mikið slys ef þetta frv. yrði samþykkt án þess að reynsla fáist af þeim framhaldsskólalögum sem samþykkt voru á sl. vori.