Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þær ítarlegu umræður sem hér hafa farið fram um ýmsa þætti þjóðfélagsmála undir þessum dagskrárlið. Ég vil víkja aðeins að spurningum sem til mín var beint.
Fyrst varðandi fyrirheit við skólameistara. Svarið er það að ég var og er hlynntur þeim ábendingum sem fram komu frá skólameisturum. Ég tel að sú niðurstaða sem fékkst hjá meiri hl. nefndarinnar sé til bóta og ég er sannfærður um að þar er komið til móts við sjónarmið skólameistara.
Varðandi sparnað í grunnskólanum er gert ráð fyrir því að spara 126 millj. kr. af 4800 millj. kr. útgjöldum. Það er erfitt verk, það er sársaukafullt. Það er ekki síður erfitt fyrir mig en aðra að standa að slíku en ég hélt að það væri líka hlutverk ráðherra að þora að taka ákvarðanir af því tagi. Það eru 126 millj. af 4800 millj. kr.
Varðandi sérkennsluna þá er hún ekki skorin niður. Hún er á sérstökum fjárlagalið sem ekki er nefndur í því bréfi sem hv. þm. las upp hér áðan.
Varðandi verkefni skólanefnda og skólastjórna, sem hv. þm. spurði mig um, er svarið þetta: Það er óbreytt frá því sem er í því frv. sem Jón Böðvarsson samdi á sínum tíma þannig að hann hefði í sjálfu sér getað spurt sjálfan sig í þeim efnum. Það er nákvæmlega engin breyting gerð á því.
Varðandi fornámið og innritunina. Fornáminu er breytt þannig að það er gert ráð fyrir að það verði ekki skylt að hafa það, en það er heimilt og það verður víða og víðar en verið hefur samkvæmt þeim viðræðum sem við erum í við skólameistara um þessar mundir.
Varðandi innritunina að þar megi ekki setja sérstakar nýjar takmarkanir þannig að t.d. framhaldsskóla sé óheimilt að ákveða að nemendur hans megi ekki hafa lægri einkunn að meðaltali á grunnskólaprófi en segjum 6,5 eða 7. Það er rétt. Sú heimild fyrir framhaldsskólana til að takmarka aðgang er felld niður. Það er algjörlega óhjákvæmilegt.
Ég vænti þess að ég hafi svarað þeim spurningum í meginatriðum sem hér hafa verið bornar fram. Ég mundi harma það mjög ef frv. yrði vísað frá, af ýmsum ástæðum. Í fyrsta lagi þeirri að þar með væru framhaldsdeildirnar sem starfræktar hafa verið við grunnskólana í lausu lofti. Í öðru lagi vegna þess að þar með væri fjármálakafli framhaldsskólalaganna ekki með þeim hætti sem óhjákvæmilegt er að breyta honum að mati allra sem komið hafa nálægt málinu. Og í þriðja lagi vegna þess að ég tel mikilvægt að kennarar og starfsmenn skólanna fái aðild að skólanefndunum.