Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga
Föstudaginn 12. maí 1989

     Guðrún Helgadóttir:
    Hæstv. forseti. Það er rétt sem hér kom fram að upphaflega stóð ég að þessari brtt. með hv. 12. þm. Reykv. vegna þess að við vorum mörg í félmn. sem höfðum verulegar áhyggjur af stöðu tónlistarskólanna með þessari breytingu sem frv. sem við fjöllum hér um felur í sér.
    Við nánari athugun gerði ég mér ljóst að með því að fella niður framlög sveitarfélaga til Atvinnuleysistryggingasjóðs væri unnt að jafna heildartölur þannig að sú tillaga truflaði ekki frv. í heild. Þá varð mér ljóst, eftir að hafa borið mig saman við sveitarstjórnarmenn, að sá jöfnuður gilti kannski ekki að sama marki innbyrðis innan sveitarfélaganna. Þannig að þegar fram kom tillaga, sem hv. 2. þm. Austurl. er höfundur að og hefur verið tekin hér inn sem tillaga félmn. um verulega styrkingu á stöðu tónlistarskólanna, taldi ég að ég gæti sætt mig við þá breytingu, ég tel að hún sé mjög til bóta, og dró mig þess vegna út úr þessari tillögugerð um niðurfellingu V. og VI. kafla frv. Ég stend því að þeim tillögum sem hér liggja fyrir á þskj. 1141, tillögum félmn. um breytingu á kaflanum um tónlistarskóla, en mun greiða atkvæði gegn tillögunni sem ég áður var aðili að.