Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga
Föstudaginn 12. maí 1989

     Hjörleifur Guttormsson:
    Herra forseti. Ég met mikils þá samþykkt sem hér var gerð með samþykkt brtt. frá félmn. við 47. gr. varðandi eftirlit og umsjón með tónlistarfræðslu o.fl. Ég tel hins vegar að sú skipan mála sem verið hefur varðandi sameiginlega kostnaðarþátttöku ríkis og sveitarfélaga varðandi tónlistarskóla hafi reynst mjög vel og ástæðulaust sé að breyta frá því sem þar hefur verið og segi því já.