Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga
Föstudaginn 12. maí 1989

     Kristín Einarsdóttir:
    Virðulegur forseti. Fyrri brtt. á þskj. 1121 var ekki samþykkt í atkvæðagreiðslu hér áðan. Hún var flutt til að ekki raskaðist heildarramminn í kostnaðartilfærslu milli ríkis og sveitarfélaga samkvæmt þessu frv. Eftir sem áður tel ég mikilvægt að ekki verði raskað þeirri skipan mála varðandi rekstur tónlistarskóla í landinu sem gilt hefur og gefið góða raun. Ég segi því já.