Tekjuskattur og eignarskattur
Föstudaginn 12. maí 1989

     Forseti (Kjartan Jóhannsson):
    Ég veiti því athygli að hæstv. ráðherra er genginn í salinn, seint og um síðir. Ég flyt auðvitað deildinni afsökunarbeiðni hæstv. ráðherra vegna þess hvað hefur dregist að hann hafi komið hingað. Þá heldur áfram máli sínu hv. 17. þm. Reykv. ( Fjmrh.: Hann þrífst ekki öðruvísi en að ráðherrann sé viðstaddur.) Þetta er nú mál sem heyrir undir ráðherrann sem verið er að ræða. ( Fjmrh.: Að sjálfsögðu. Ég var nú bara með gamanmál hérna.)