Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Því er til að svara að forseti hefur óskað eftir að svo megi verða. Ekki getur nú forseti gulltryggt að svo fari, en sú ósk hefur verið fram borin að þessi kosning megi fara fram á þessum degi. ( FrS: Til hverra hefur óskinni verið beint?) Formanna þingflokka, hv. 1. þm. Reykv. ( EgJ: Á hverju stendur í þeim efnum?) Nú vil ég biðja menn að hefja ekki samræður við mig úr sætum sínum. Ég lít svo á að þessari umræðu um þingsköp sé lokið.