Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Vegna þessara orða vil ég upplýsa að ég hygg að það hafi ekki verið almennt gert að raða þeim sem beðið hafa um orðið eftir flokkum nema við fjárlagaumræðu og aðra slíka umræðu. Ég hef yfirleitt við aðrar tegundir af utandagskrárumræðum raðað mönnum í þeirri röð sem þeir hafa beðið um orðið. Ég vil hins vegar nota tækifærið og harma þetta. Mér skildist að hv. 6. þm. Norðurl. e. hefði talið sig hafa beðið um orðið. Nú veit ég ekki hvort ég var þá sjálf í forsetastóli, en ég harma það ef hv. þm. telur hafa verið á sér brotið. Að öðru leyti hefur mælendaskrá verið tekin eftir þeirri röð sem fólk bað um orðið. Ég vil upplýsa að næsti ræðumaður er hv. 3. þm. Reykv. og síðan hv. 7. þm. Reykn.