Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég vil láta það koma fram að ég er að mörgu leyti mjög sammála ýmsum athugasemdum í síðustu ræðu hv. 7. þm. Reykn. Ég tel í fyrsta lagi að bóknámsáherslan hafi verið allt of mikil í okkar skólakerfi á undanförnum árum og þess vegna er það sem við erum nú með í gangi vinnu í ráðuneytinu sem ég hef greint frá hér í þinginu nokkrum sinnum í vetur um breytt inntak framhaldsskólans þar sem gert er ráð fyrir því að um verði að velja margvíslegar brautir, stuttar og langar, allt niður í eina önn, eitt ár eða tvö ár, þar sem fólk geti lokið námi og fengið tiltekin réttindi út á störf í atvinnulífinu líka. Í þeirri nefnd sem er að vinna að þessum verkum á vegum ráðuneytisins eru fulltrúar atvinnulífsins. Og forsenda þess að unnt sé að ná upp verknáminu hér í landinu með myndarlegum hætti er að mínu mati sú að atvinnulífið verði dregið inn í þessa hugsun, menntunarhugsun með vaxandi þunga.
Við höfum miklar áhyggjur af því unga fólki sem reynir aftur og aftur við mjög þungar og erfiðar bóknámsbrautir inni í framhaldsskólunum, enda er niðurstaðan sú að á fyrsta ári framhaldsskólans eru núna um 40% nemenda vegna þess að fólk kemur inn í skólann og stólar á fyrsta árið án þess að komast neitt þar áfram. Og það er mjög alvarlegur hlutur. Okkur er auðvitað skylt í menntmrn. að leggja á það áherslu að halda vel utan um það fólk sem er í skólakerfinu sjálfu og reyna að hjálpa þar til eins og við getum.
Hitt er auðvitað ekki síður áhyggjuefni að verulegur fjöldi ungs fólks hrekst út úr skólakerfinu og þorir aldrei þangað inn aftur. Þetta fólk er oft dæmt til þess um ára og áratuga skeið að vera í láglaunastörfum af margvíslegum toga. Þetta er þess vegna að mörgu leyti manneskjufjandsamlegt kerfi eins og það hefur verið og ég get tekið undir orð hv. þm. í þeim efnum.
Varðandi framhaldsskólann, þá er einmitt meiningin með þessu frv., ef hv. þm. les það, að stuðla að samnýtingu skóla á viðkomandi svæðum og það er að mínu mati úrslitaatriði í þessu frv. þannig að þeirrar tilhneigingar sem hefur verið uppi, að stofna framhaldsskóla svo að segja út um allt, gæti ekki lengur í ákvörðunum menntamálayfirvalda í þessu landi. Enn fremur er í frv. gert ráð fyrir því að það verði heimilt að starfrækja framhaldsdeildir við grunnskólana. Það verði í raun og veru bara fyrsta árið eða fyrsta og annað árið, en ég er alveg sammála hv. þm. um það að það er alveg fráleitt að fara að setja niður framhaldsskóla án þess að kanna í leiðinni hvort til eru kennslukraftar til þess að skila þessu fólki með myndugum hætti út í þjóðlífið og atvinnulífið.