Húsnæðisstofnun ríkisins
Þriðjudaginn 16. maí 1989

     Júlíus Sólnes:
    Virðulegi forseti. Ég bið forláts á meðan ég kem gögnunum fyrir á borðinu, ég er reyndar ekki viss um hvort ég kem þeim öllum fyrir.
    Virðulegur forseti. Ég hef lagt mikla vinnu í það að setja mig inn í húsbréfakerfi, bæði húsbréfakerfi nágrannalandanna og það húsbréfakerfi sem hér liggur fyrir hinu háa Alþingi.
    Nú er það svo að á föstudaginn var stóð til að þessi umræða hæfist og hafði ég hugsað mér að flytja hér ítarlega ræðu, reyndar að tala a.m.k. tvisvar við 1. umr. til þess að miðla alþingismönnum í hv. Ed. að nokkru þeim fróðleik sem hér liggur fyrir í þessum gögnum. Um það náðist samkomulag að við mundum reyna að stytta þessa umræðu gegn því að henni yrði frestað fram til dagsins í dag, þ.e. 1. umr. málsins. Mun ég að sjálfsögðu standa við það samkomulag sem þá var gert og reyna að takmarka mína ræðu, þ.e. geyma þá væntanlega eitthvað af þeim fróðleik sem hér er saman kominn til 2. og 3. umr. málsins.
    Ég tel engu að síður nauðsynlegt að þetta mál fái mjög ítarlega umfjöllun í hv. Ed., ekkert síður en það fékk í hv. Nd. því þetta er það mikilvægt og stórt mál sem hér er á ferðinni að það er algerlega fráleitt að við notum ekki allan þann tíma sem við þurfum til þess að setja okkur eins rækilega inn í þetta mál og framast er unnt. Hér er um mikið alvörumál að ræða. Öll mistök sem hér munu eiga sér stað geta orðið okkur dýrkeypt og reyndar er stór hætta á því að við séum kannski að stíga hér spor sem gæti haft alvarlegar afleiðingar á fjármagns- og peningamörkuðum þjóðarinnar.
    Nú verð ég að segja eins og er að ég efast ekki um vilja hæstv. félmrh. til þess að koma á umbótum í húsnæðismálum þjóðarinnar. Ég held að ég geti sagt það hér, og er viss um að fleiri hv. þm. eru mér sammála, að hæstv. félmrh. hefur sýnt húsnæðismálum meiri áhuga en velflestir þingmenn sem eiga sæti á hinu háa Alþingi. Ég efast ekki um vilja hæstv. ráðherrans til þess að láta gott af sér leiða í því embætti sem hún nú gegnir að koma einhverjum skikk á húsnæðislánamál þjóðarinnar sem eru búin að vera í hálfgerðum lamasessi eins lengi og ég man eftir mér. Hins vegar er það ekki það sama og að ætla sér að keyra hér í gegn mjög flókið mál og viðamikla breytingu á húsnæðislánalöggjöfinni með þeim gauragangi sem verið hefur í kringum þetta mál a.m.k.
    Sérstaklega vil ég vekja athygli á því að það er nauðsynlegt og nánast algjört grundvallaratriði, þegar við erum að gera jafnviðamikla breytingu á húsnæðislánalöggjöfinni og hér er lagt til, að samkomulag og friður sé meðal stærstu launþegahreyfinga landsins og nánast allra þeirra sem þetta mál varðar. Bæði launþegahreyfingarnar, vinnuveitendur og fleiri hagsmunahópar í þjóðfélaginu verða að vera sæmilega sammála um þær breytingar sem lagðar eru til á húsnæðislánalöggjöfinni. Ef svona mál er keyrt í gegn gegn vilja stórra hagsmunahópa í þjóðfélaginu og í beinni andstöðu við, næst ekki sá friður sem þarf að ríkja í sambandi við

húsnæðislánamál og húsnæðismál landsmanna. Þetta er lykilatriði, þetta er grundvallaratriði.
    Því þarf að sjálfsögðu að undirbúa allar meiri háttar kerfisbreytingar á húsnæðismálum okkar mjög vandlega. Ég hefði því talið eðlilegt að sú breyting sem hér er lögð til hefði verið vandlega ígrunduð nú í sumar og tekin síðan aftur upp næsta haust. Ég hefði talið skynsamlegt að sýna þetta frv. á þinginu hér í vetur en leggja það síðan aftur fyrir næsta haust. Leyfa þjóðinni að melta þetta mál og fá fram þær breytingar sem menn verða sammála um þannig að næsta haust hefði væntanlega verið hægt að leggja þetta frv. fram á nýjan leik þá með þeirri samstöðu sem ég tel algerlega nauðsynlega til þess að áfram ríki friður um húsnæðismál þjóðarinnar.
    En ég vil ítreka það að ég efast ekki um góðan vilja hæstv. ráðherra. Kannski má varpa fram ýmsum spurningum í þá veru hvort hæstv. ráðherra og/eða embættismennirnir, sem hér hafa verið að verki, hafi skilið nægjanlega vel þá grundvallarhugmynd sem hér liggur að baki.
    Áður en ég geri tilraun til þess að reyna að skýra út málið eins og það blasir við frá mínum bæjardyrum séð, þá langar mig til þess að spyrja hæstv. félmrh. nokkurra spurninga. Það er í fyrsta lagi varðandi samkomulag það sem hæstv. félmrh. gerði við Kvennalista um stuðning Kvennalista við framgang þessa máls. Í fjölmiðlum hefur verið rætt um að þessi stuðningur hafi kostað 600 millj. kr., þ.e. 100 millj. kr. fyrir hvern þingmann Kvennalistans, og skyldi þessum fjármunum varið til þess að byggja félagslegar íbúðir, þ.e. til þess að efla félagslega íbúðakerfið. Út af fyrir sig er ég mjög sammála öllum þeim aðgerðum sem mega verða til þess að efla félagslega íbúðakerfið. Nú er það svo að samkvæmt fjárlögum 1989 skal varið 150 millj. kr. til nýframkvæmda hvað varðar félagslegar íbúðir. Nú er mér tjáð, og ég vildi gjarnan fá skýringar hæstv. ráðherra á því, að þessum 150 millj. kr. muni sennilega verða varið til þess að halda áfram nýframkvæmdum sem voru þegar hafnar á árinu 1988. Þá langar mig líka til að spyrja hæstv. félmrh. um það samkomulag sem var gert milli Alþýðusambands Íslands og hæstv. ríkisstjórnar í tengslum við nýgerða kjarasamninga en þar er því lofað að byggðar verði 200 íbúðir í
félagslega íbúðakerfinu. Lætur nærri að þar þurfi að koma til fjármagn upp á einar 800--900 millj. kr. Þá langar mig enn fremur til að spyrja hæstv. félmrh.: Eru þær 600 millj. sem Kvennalistanum voru lofaðar til framkvæmda í félagslega íbúðakerfinu inni í þessum 800--900 millj. kr. sem var lofað í tengslum við þetta samkomulag sem var gert við Alþýðusamband Íslands? Er verið að kaupa bæði Kvennalista og Alþýðusamband Íslands fyrir sömu fjármuni?
    Það er búið að tala mikið um ,,gamla`` húsnæðislánakerfið, gamla innan gæsalappa því það er nú ekki eldra en svo að það er aðeins orðið tæpra þriggja ára gamalt. Samkomulag það sem var gert við einmitt Alþýðusamband Íslands og

launþegahreyfinguna árið 1986 varð til þess að húsnæðislöggjöfinni var breytt og það kerfi í húsnæðislánamálum sem við nú búum við varð til. Það hefur verið gagnrýnt mjög, einkum hvað varðar langar biðraðir sem hafa myndast í kerfinu, sem er kannski ofur eðlilegt þegar horft er til þess að um er að ræða hagstæð lán með niðurgreiddum vöxtum sem öllum þeim sem eru félagar í einhverjum lífeyrissjóði, sem hefur gert samkomulag við Húsnæðisstofnun ríkisins um að kaupa skuldabréf af stofnuninni, er boðið upp á.
    Ýmsar spurningar hafa vaknað, sérstaklega núna á síðustu mánuðum um það hvernig sé með þessar biðraðir í raun. Svo er að heyra að talsmenn Húsnæðisstofnunar og talsmenn félmrn. með hæstv. félmrh. í broddi fylkingar hafi reynt með öllum ráðum að láta líta svo út að þessar biðraðir séu að stækka og lengjast og það sé raunverulega um það að ræða að ,,gamla`` kerfið sé hrunið. Nú hafa þær upplýsingar fengist kannski frá öðrum aðilum að það megi setja stórt spurningarmerki við það hvað þessi biðröð sé í reynd löng. Á það hefur verið bent að frá því að gamla húsnæðislánakerfið var tekið upp á árinu 1986 hafi borist rúmlega 17 þús. umsóknir að mig minnir til febrúarloka 1989. Þar af er búið að afgreiða um 7000 umsóknir með lánsloforðum og reyndar búið að afgreiða lán til rúmlega 7000 aðila í þessari löngu og stóru biðröð en talið að um 10 þúsund manns muni nú bíða í biðröðinni. Þegar farið er betur ofan í þessa biðröð þá kemur í ljós að um veruleg afföll er að ræða því að það eru margir sem eru með tvö- eða jafnvel þrefaldar umsóknir í biðröðinni. Það eru margir lánsumsækjendur sem sækja bæði um hjá Byggingarsjóði verkamanna, þ.e. um lán til byggingar félagslegra íbúða, og sömuleiðis um lán í almenna húsnæðislánakerfinu. Síðan er þess að sjálfsögðu að gæta, þegar sótt um lán til kaupa á eldri íbúð, þá eru oft og tíðum áhvílandi á henni húsnæðislán sem koma þá til frádráttar þannig að mér hafa tjáð fróðir menn að biðröðin sé í reynd aðeins um 4000--5000 manns. Reyndar virðist allt benda til þess að biðröðin fari nú hægt og rólega minnkandi og það sé í reynd séð fyrir endann á þessari löngu biðröð. Með smáþolinmæði og með því kannski að beita núverandi húsnæðislöggjöf til hins ýtrasta megi losna við þessa biðröð á tiltölulega stuttum tíma.
    Þá hafa mér borist upplýsingar um það að þessa stundina sé rúmlega milljarður kr. í sjóði hjá Húsnæðisstofnun ríkisins, þ.e. í Byggingarsjóði ríkisins og í Byggingarsjóði verkamanna. Ég vil því spyrja hæstv. félmrh.: Ef þetta er rétt, því er þessum peningum ekki nú þegar veitt út til húsnæðislána? Því eru ekki lánsloforð afgreidd hraðar en ella ef svona miklir fjármunir liggja inni í sjóði og bíða hreinlega eftir því að vera notaðir? Nú kann að vera að það eigi sér aðrar skýringar, en ég vildi gjarnan heyra svör hæstv. ráðherra við þessu.
    Sá grunur læðist að manni að það sé vísvitandi verið að reyna að koma óorði á ,,gamla`` húsnæðislánakerfið til þess að tryggja framgang þessa

frv. sem liggur fyrir hinu háa Alþingi. Nú get ég að mörgu leyti tekið undir með þeim sem hafa gagnrýnt það húsnæðislánakerfi sem við höfum búið við sl. þrjú ár. Það er meingallað að minni hyggju og því mjög tímabært að fara vel ofan í saumana á húsnæðiskerfinu í heild sinni og gera á því gagngerar breytingar. Ég get þess vegna tekið undir með hæstv. félmrh. að það er nauðsynlegt að stokka þetta kerfi upp og finna leið út úr þeim ógöngum sem við erum lengi búnir að vera í með húsnæðiskerfi þjóðarinnar. En ég tel að það hefði mátt hafa meiri aðdraganda og undirbúa þá breytingu eilítið betur.
    Þá er annað atriði sem mig langar rétt til að koma inn á hérna í máli mínu, en það eru svokallaðir forgangshópar og víkjandi hópar. Nú er það rétt, og það kom fram reyndar í máli hæstv. ráðherra í framsögu hans með frv., að hv. Nd. felldi út úr frv. nokkrar tillögur til þess að skerpa á heimildum til handa húsnæðismálastjórn að skerða lánsrétt þeirra sem eru í svokölluðum víkjandi hóp, þ.e. þeir sem eiga ýmist íbúðir fyrir eða miklar eignir. Nú er það hárrétt að þetta gerðist nóttina sem þessi mál voru til umræðu í hv. Nd. og hef ég grun um að margir hv. þm. hafi ekki almennilega áttað sig á því hvað þá gerðist, þ.e. hverjar þær breytingar voru sem þar lágu fyrir og hvað af því leiddi að það var samþykkt tillaga þess efnis að fella þær í burtu. Eftir sem áður eru víðtækar heimildir til handa húsnæðismálastjórn að skerða lánsrétt þeirra sem eru í víkjandi hópum. En svo virðist sem þessar heimildir séu ekki notaðar eins og hægt er. Þannig skilst mér að það hafi verið verklagsregla sem hafi verið tekin upp hjá húsnæðismálastjórn fyrir rúmlega ári síðan að það
skyldi vera um það bil hálfs árs munur á afgreiðslu lána til forgangshópa, þ.e. til þeirra sem eru í félagslega íbúðakerfinu og/eða þeirra sem eru að byggja eða kaupa sína fyrstu íbúð, og svo hinna sem eru í víkjandi hópunum, þ.e. þeirra sem eiga íbúðir fyrir eða eiga miklar eignir.
    Nú er mér tjáð að það sé nánast ekki lengur neinn munur orðinn á í biðröðinni þannig að það sé farið að afgreiða lán til umsækjenda úr víkjandi hópum nánast til jafns við umsækjendur úr forgangshópunum. Þetta eru að vísu sögusagnir sem mér þætti vænt um að fá álit hæstv. félmrh. á, hvort þetta geti verið rétt.
    Mig langar þá til þess að víkja aftur að sjálfum húsbréfunum og efnisatriðum frv. og rifja upp forsögu þessa máls. Þetta er kannski þrátt fyrir allt eitt af því sem við höfum látið af okkur leiða, þ.e. þingmenn Borgfl., og er mjög í samræmi við það sem ég hef oft haldið áður fram hér á hinu háa Alþingi að með nýjum þingmönnum frá nýrri stjórnmálahreyfingu er þess að vænta að komi einhverjar nýjar hugmyndir. Það er a.m.k. mjög merkilegt að það er ekki fyrr en við þingmenn Borgfl. í hv. Ed. flytjum frv. til laga um sérstakar húsnæðislánastofnanir haustið 1987, þar sem við leggjum til að þær fjármagni útlán sín með svokölluðum húsbréfum, að þingmönnum gömlu flokkanna dettur yfirleitt í hug að skoða slíkt lánsform, að taka það til athugunar hvort þarna sé á

ferðinni eitthvað sem megi nota. ( SalÞ: Borgfl. fer nú að verða einn af þessum gömlu því það er kominn einn nýr.) Það er svo kannski önnur saga, hv. þm. Salome Þorkelsdóttir, og ekki kæmi mér á óvart þó að einhvern tíma seint á næstu öld verði Borgfl., sem þá verður kannski orðinn stærsti flokkur á þingi, talinn einn af gömlu flokkunum. Það er svo allt annað mál. En a.m.k. sem stendur hlýt ég að telja Borgfl. til nýrri stjórnmálahreyfinga. Við erum nú ekki búin að vera hér á Alþingi nema í rétt tæp tvö ár, þingmenn Borgfl. Það er einkennilegt að samt sem áður virðast margar þær hugmyndir, sem við höfum komið með á hinu háa Alþingi, hafa haft töluverð áhrif og er þetta húsbréfafrv. mjög gott dæmi um það.
    Hins vegar held ég að það fari ekki fram hjá neinum að sú útfærsla og sú niðurstaða sem fæst með húsbréfafrv. hæstv. félmrh. er afar óheppileg. Ég held að eina skýringin þar á sé sú að menn hafa ekki gefið sér tíma til þess að setja sig nægilega vel inn í þetta kerfi og ekki gætt þess að skoða vandlega þá undirstöðu, sem húsnæðislán með húsbréfum byggja á. Þess vegna langar mig nú til að fá að fræða hæstv. félmrh. og þingheim lítillega með um sögu húsbréfakerfis. Ég hef alltaf verið mikill sögumaður og haft gaman af því að glugga í gamlar skræður. Ég held að það geri ekkert til þó að ég grípi til sögulegrar upprifjunar, við höfum góðan tíma til þess --- eins og ég gat um í upphafi máls míns hef ég lofað að taka aðeins einu sinni til máls við þessa umræðu og fyrir mitt leyti stuðla að því að koma málinu til nefndar í dag og við það mun ég standa --- en mig langar til þess að segja hér í örstuttu máli sögu húsbréfa eins og hún er best þekkt úr mannkynssögunni. Það er mjög fróðlegt að rifja þessa sögu upp.
    Það er athyglisvert að það er hugmyndaríkur kaupmaður og trjávörusali frá Amsterdam, hr. Buhring, sem fyrstur manna fær þá hugmynd að það sé hægt að fjármagna húsnæðislán með útgáfu húsbréfa. Hann átti heima í Amsterdam fram til 1760 en þá ákvað hann að flytjast til Berlínar. Þar var mikið vandræðaástand ríkjandi eftir sjö ára stríðið sem Friðrik mikli háði við pilsin þrjú þannig að mikið uppbyggingarstarf var þá í vændum, sérstaklega þó í Slésíu sem var nánast öll í rúst eftir mjög grimmúðugar orustur sem Friðrik mikli hafði einkum háð við heri Maríu Theresíu, keisaradrottningar í Austurríki.
    Buhring þessi kom með mjög nákvæmlega útfærðar hugmyndir um húsnæðislán með húsbréfum og lagði fyrir Friðrik mikla. Friðrik mikli sem var ákaflega víðsýnn og merkilegur stjórnmálamaður sá strax að hér var um mög góða hugmynd að ræða og fól embættismönnum sínum að skoða þetta nánar og koma því í framkvæmd. En merkilegt er að velta því fyrir sér hvað nú gerist: nákvæmlega það sama og því miður virðist hafa gerst hér á Íslandi, að embættismennirnir skildu hvorki upp né niður í þessari hugmynd og út úr þessu kom því miður ekkert af viti. Friðrik mikli skildi þetta og var fljótur að átta sig á

því í hverju þessi hugmynd er fólgin, en embættismennirnir náðu henni því miður ekki þannig að Buhring varð ekkert ágengt með þessa hugmynd sína að svo stöddu. Það voru þó aðrir aðilar sem tóku eftir þessu og héldu málinu áfram. Það var þannig forsætisráðherra Slesíu, Von Carmer, sem tók málið upp á nýjan leik eftir ábendingu frá Friðriki mikla. Það er talað um að það hafi fyrst og fremst verið 22 ára gamall lögfræðistúdent, Carl Svarez, sem tók að sér að undirbúa þetta mál og búa til löggjöf um fyrstu húsnæðislánastofnun sem talið er að hafi byggt lánveitingar sínar á útgáfu húsbréfa. Þessi stofnun var Die Schlesische Landschaft og hún var staðfest af Friðriki mikla þann 21. ágúst 1769.
    Það er athyglisvert að á næstunni komu fjórar aðrar slíkar húsnæðislánastofnanir sem notuðu húsbréf til þess að fjármagna útlán sín, en
þær voru einungis hugsaðar til þess að veita jarðeigendum af aðalsættum lán. Bændurnir fengu fyrst að vera með töluvert síðar eða ekki fyrr en 1849.
    Danir fylgdust nokkuð vel með því sem gerðist í Þýskalandi á þessum árum og eftir brunann mikla í Kaupmannahöfn 1795 leituðu Danir ráða til þess að koma á húsnæðislánakerfi til að auðvelda uppbyggingu Kaupmannahafnar eftir brunann. Eftir fyrirmyndum frá Þýskalandi varð þá til 1797 Kreditkassen for husejere í Köbenhavn og þar hófu Danir að veita húsnæðislán með útgáfu húsbréfa. Því var haldið áfram óslitið frá 1797--1971, en þá var þetta ágæta fyrirtæki, Kreditkassen for husejere i Köbenhavn, leyst upp. Það heldur að vísu áfram undir nýju nafni, Byggeriets realkreditfond sem er ein stærsta húsnæðislánastofnun Danmerkur. Ekki var þó um það að ræða að þessar fyrstu dönsku húsnæðislánastofnanir nýttu sér möguleikana á þann hátt sem Þjóðverjarnir höfðu upphaflega gert ráð fyrir, þ.e. að vera með útgáfu húsbréfa í þeim skilningi sem nú tíðkast, en þetta var aftur tekið upp á nýjan leik af hálfu danskra stjórnvalda í kringum 1830. Þá tók danska ríkið það til bragðs að ungum þjóðhagfræðingi, A. F. Bergsöe, var veittur styrkur til þess að ferðast um Evrópu og kynna sér húsbréfakerfi bæði í Þýskalandi og víðar þar sem þau voru komin á laggirnar.
    Ég hef oft velt því fyrir mér hvort það hefði ekki verið skynsamlegra að gera eitthvað í þessa veru, að senda nokkra unga menn út í heim til þess að kynna sér húsnæðislánakerfi nágrannaþjóðanna og koma með upplýsingar til okkar, og með þeim hætti fá e.t.v. einhvern botn í húsnæðislánamál þjóðarinnar.
    Það er mjög fróðlegt að athuga framhald sögunnar. Þegar Bergsöe kemur heim 1839 þá skrifar hann mjög ítarlega skýrslu um ferðalag sitt og það sem hann hefur orðið áskynja í för sinni og semur uppkast að nýrri húsnæðislöggjöf sem hann kallar á dönsku ,,Motiveret udkast til en kreditforening for danske grundbesiddere``. Þar er um að ræða fullkomna húsnæðislöggjöf eins og hún er lögð til grundvallar enn þann dag í dag fyrir danskar húsnæðislánastofnanir sem byggja á útgáfu húsbréfa til

þess að fjármagna útlán sín.
    Svo kemur hér eitt atriði sem er mjög athyglisvert, og ég vildi biðja hæstv. félmrh. að hlusta vel á. Með hliðsjón af þeim straumum frjálslyndis sem þá fóru um alla Vestur-Evrópu þá var kjarninn í tillögum Bergsöes að ríkið ætti þarna hvergi að koma nærri heldur ætti að stofna sjálfstæðar húsnæðisstofnanir án þátttöku ríkisins. Það ættu að vera lántakendur og hagsmunaaðilar sjálfir sem ættu að hafa frumkvæði að því að koma slíkum lánastofnunum á fót. En í Danmörku var einveldi þessi árin, konungur var einráður og hann var nú ekkert á því að gefa slíkt eftir, að leyfa þegnunum að taka frumkvæði í máli sem þessu og þessum hugmyndum var hafnað. Það var ekki fyrr en frjálslyndari öfl komu til valda í Danmörku eftir breytingarnar sem urðu, og urðu reyndar um alla Evrópu 1848, og eftir að Danir fengu nýja stjórnarskrá, stjórnarskrána frá 1849, að það opnaðist leið á nýjan leik fyrir þessar hugmyndir.
    Ég held að ég fari kannski hraðar yfir sögu heldur en ég hefði viljað því ég ætlaði, eins og ég sagði, ekki að tefja hér tímann um of en ég held að það sem ég er þó að segja hér sé mjög þýðingarmikið og nauðsynlegt að fá þetta inn í umræðuna.
    Fyrstu lögin um danskar húsnæðislánastofnanir sem fjármagna útlán sín með húsbréfum eru frá 20. júní 1850. Það má benda á ýmislegt sem er athyglisvert í þessum lögum. Það er t.d. ákvæði um það að húsbréfin skuli vera án stimpilgjalds. Það er ákvæði um að það megi ganga að veðinu, þ.e. þeirri fasteign sem er veðsett fyrir húsbréfaláninu, og það er ákvæði um það --- það verður nú að segjast eins og er að hæstv. félmrh. hefur nú hitt nokkuð vel á það --- það er ákvæði um það í þessum gömlu lögum frá 1850 að ekkert lán megi fara yfir 60% af verðmæti viðkomandi fasteignar.
    Síðan kemur ákvæði sem hefur alltaf verið kallað jöfnunarákvæðið og er mjög þýðingarmikið, þ.e. að öll þau húsbréf sem eru í umferð hverju sinni, þ.e. nafnverð allra húsbréfa, má ekki vera meira en sem nemur samanlagðri skuld sem kemur fram á þeim fasteignaveðbréfum sem liggja á bak við húsbréfin.
    Annað höfuðatriði er að lántakendurnir skulu hafa samábyrgð. Þetta er lykilatriði sem því miður hefur ekki verið hugað neitt að í sambandi við undirbúning að því frumvarpi sem hér liggur fyrir. Það er þessi samábyrgð lántakendanna. Bæði Þjóðverjar og Danir fóru þá leið að reka húsnæðislánastofnanirnar samkvæmt þessum lögum sem félög lántakenda. Þ.e. um leið og viðkomandi lántakandi fær húsnæðislán hjá einhverri húsnæðislánastofnun, þá gerist hann um leið félagi í hinni sömu stofnun. Þessar lánastofnanir eru því raunverulega ekkert annað en félagsskapur lántakenda. Lántakandinn tekur á sig samábyrgð þannig að eins og lögin hafa þróast í gegnum árin þá er þessi samábyrgð með þeim hætti að 2 / 3 hlutar af því veði sem lántakandinn hefur sett fyrir húsbréfaláninu fara inn í sameiginlega samábyrgð lánastofnunarinnar á bak við húsbréfin.
    Nú gerist það að sjálfsögðu þannig, ef einhver

lántakandi stendur ekki í skilum, að þá getur húsnæðislánastofnunin gengið að veðinu, þ.e. í samræmi við ákvæði þess veðskuldabréfs sem lántakandinn hefur skrifað undir. (Gripið fram
í.) En það er meira en það. Á bak við húsbréfin hins vegar eru öll fasteignaveðbréfin sem segja má að séu sú fjárhagslega undirstaða sem húsbréfin hvíla á. Það þýðir að ef húsbréfin fást ekki greidd þá getur lánastofnunin gengið að hvaða veði sem er, hvaða fasteign sem vera skal hjá hinum ýmsu lántakendum en þó ekki nema allt að 2 / 3 hlutum veðs. Þannig eru lögin og búin að vera allar götur frá 1850.
    Til viðbótar þessu er krafa um það að allar húsnæðislánastofnanir sem eru reknar á þessum grunni, að lántakendur eru með þessa samábyrgð, verða að eiga varasjóð sem nemur 2,5% af heildarskuld þeirri sem er á öllum fasteignaveðbréfunum sem stofnunin liggur með inni á bak við húsbréfin.
    Þessi samábyrgð hefur aldrei komið til vandræða, þ.e. hún hefur aldrei orðið þess valdandi að það hafi þurft að ganga að neinu veði. Það hefur aldrei í allri sögu húsnæðislánastofnana í Danmörku frá 1850 þurft að ganga að veði nokkurs lántakanda vegna þess að húsbréf einhverrar stofnunar fengust ekki greidd. Það sem einna helst hefur gerst þar sem um hefur verið að ræða að húsnæðislánastofnanir hafa lent í vandræðum með að greiða af húsbréfum er að það hefur þurft að krefja lántakendur um smávægileg viðbótarframlög til varasjóðs. En þannig er að þegar þessi lán eru tekin þá eru í upphafi greidd lántökugjöld og framlag til varasjóðs viðkomandi húsnæðislánastofnunar.
    Í dönsku lögunum er enn fremur gert ráð fyrir því að það megi reka húsnæðislánastofnanir á öðrum grundvelli, t.d. sem hlutafélög þar sem lántakendur eru ekki félagar í viðkomandi stofnun og eru þar af leiðandi ekki samábyrgir fyrir húsbréfunum eins og í flestum hinna stofnananna. Það er athyglisvert að Danir eru yfirleitt aðeins með fyrra formið, þar sem um er að ræða félagsskap lántakenda. Fyrir húsnæðislánastofnanir sem t.d. eru hlutafélög er krafa um það að varasjóðurinn verður að vera helmingi stærri heldur en í þeim húsnæðislánastofnunum þar sem lántakendur hafa tekið á sig þessa samábyrgð.
    Í frv. til laga um húsnæðislánastofnanir sem við þingmenn Borgfl. lögðum fram fyrst haustið 1987 á 110. þingi og svo aftur í haust sem leið, þá einmitt gerðum við ráð fyrir því að notfæra okkur þessa möguleika og töldum reyndar eðlilegra að reyna seinna formið, þ.e. að reka sjálfstæðar húsnæðislánastofnanir sem yrðu hlutafélög. Við skilgreindum þar af leiðandi þessa tvo möguleika, þ.e. bæði lánastofnanir þar sem lántakendur mynduðu félagsskap og hefðu þessa samábyrgð og um leið þyrfti varasjóður slíkrar stofnunar að vera 2,5% og svo hlutafélög. Seinna formið er kannski heppilegra ef við vildum fara inn á þessar brautir á Íslandi vegna þess að við höfum ekki þessa gömlu sögu að baki. Einhverra hluta vegna höfum við ekki borið gæfu til þess að nýta okkur þetta öfluga danska

húsnæðislánakerfi á meðan við vorum þó undir danskri stjórn. Það má vera að það stafi m.a. af því að í húsnæðislögum þeim sem nú eru í gildi í Danmörku eru ákvæði þess efnis að lögin gilda ekki fyrir Færeyjar og Grænland og ég geri þá ráð fyrir því að svipað ákvæði hafi verið inni í lögunum áður en sambandsslitin urðu á milli Íslands og Danmerkur, að lögin giltu ekki fyrir Færeyjar, Ísland og Grænland. Það væri fróðlegt að fletta því upp en ég geri ráð fyrir að svo hafi verið.
    Ég sé fyrir mér að hefðum við farið inn á þá braut sem við þingmenn Borgfl. lögðum til með þessu frv. okkar, þá hefðu lífeyrissjóðirnir fengið allt frumkvæði í hendurnar. Þá hefði verið settur lagarammi um sérstakar húsnæðislánastofnanir sem mætti þá stofna sem hlutafélög. Ég ímyndaði mér að það gerðist með þeim hætti að lífeyrissjóðirnir mundu hafa frumkvæði um að koma upp slíkum húsnæðislánastofnunum, hugsanlega í samvinnu við tryggingafélög og banka, en að mínum dómi áttu lífeyrissjóðirnir að hafa þarna algert frumkvæði. ( GHG: Það vilja ekki stjórnmálamennirnir.) Það má vel vera, hv. þm., en ég tel einmitt að með þeim hætti hefði verið hægt að nýta bæði hina gífurlegu fjármuni sem hafa safnast saman í lífeyrissjóðunum og notfæra sér þá reynslu og þau beinu tengsl sem lífeyrissjóðirnir hafa við sjálfa lántakendurna sem í flestum tilvikum eru jú félagar í lífeyrissjóðunum. Þess vegna tel ég enn þá að það sé allt sem mæli með því að það séu einmitt lífeyrissjóðirnir sem eigi að hafa þetta frumkvæði en ekki ríkisvaldið.
    Ég ætlaði að þessu sinni ekki að fara mjög nákvæmlega út í þau gagnrýnisatriði sem hafa komið fram varðandi þá útfærslu sem liggur fyrir í þessu frumvarpi til laga um Húsnæðisstofnun ríkisins. En mig langar engu að síður til að lesa upp tvær umsagnir, með leyfi hæstv. forseta. Ég leitaði til Þjóðhagsstofnunar og óskaði eftir því að fá lauslegt álit stofnunarinnar á því frv. til laga sem við þingmenn Borgfl. höfum lagt fram um húsnæðislánastofnanir og húsbanka og lauslegan samanburð á því kerfi sem þar er lagt til við þetta kerfi sem er lagt fram í húsbréfafrv. Þetta lauslega álit hljóðar svo, með leyfi virðulegs forseta:
    ,,Minnispunktar: Að mínu mati er grundvallarmunur á þessu húsbréfafrv. og því frv. sem nú liggur fyrir Alþingi. Meginútfærsla þess samræmist vel þeim kröfum sem gerðar eru til peninga- og fjármálakerfis hverrar þjóðar, en það
síðarnefnda gerir það hins vegar ekki. Grundvallarmunurinn liggur í eftirfarandi:
    Samkvæmt frv. Borgfl. er gert ráð fyrir að hinir svonefndu húsbankar fjármagni útlán til fasteignakaupanda með útgáfu sérstakra húsbréfa (obligasjoner) með öruggri tryggingu sem seld er á frjálsum markaði. Þannig fást peningar til útlána. Með þessari útfærslu er fyrst höfðað til sparnaðarins í þjóðarbúinu með sölu á húsbréfum, síðan er sparnaðinum ráðstafað til fasteignakaupa. Þannig verður fjárfestingin aldrei meiri en sparnaðurinn gefur

tilefni til miðað við skynsamlega og eðlilega vaxtaþróun.
    Í frv. ríkisstjórnarinnar er ekki gert ráð fyrir að húsbréf verði seld í fyrstu umferð á frjálsum markaði fyrir peninga sem síðan eru lánaðir til fasteignakaupenda, heldur er gert ráð fyrir að fasteignakaupandinn greiði íbúðina að hluta til með húsbréfum. Með þessari útfærslu á fjárfestingin sér fyrst stað, síðan er látið reyna á hvort sparnaðurinn í þjóðarbúinu verði nægilegur til að mæta þeirri fjárfestingu miðað við skynsamlega og eðlilega vaxtaþróun. Hér vantar því nauðsynlega takmarkandi þætti í útfærslu húsbréfakerfisins sem draga eiga úr líkum á afföllum og verðbólguáhrifum sem geta komið til ef fjárfestingin verður of mikil miðað við sparnaðinn.
    Hér er um grundvallaratriði að ræða í útfærslunni. Góður ásetningur um hóflegt framboð á húsbréfum samrýmist engan veginn þeim ströngu kröfum sem gerðar eru til peninga- og fjármálakerfis í þróaðri ríkjum. Engum er fengið slíkt útgáfuvald nema það samræmist vel viðurkenndum leikreglum því allar líkur benda til þess að það verði misnotað fyrr eða síðar.
    Vert er að nefna eftirtalin atriði sem eru nokkuð vandasöm í framkvæmd og er því ástæða til að huga vel að þeim. Samkvæmt frv. Borgfl. er gert ráð fyrir að raunvextir veðlána skuli vera breytilegir í samræmi við mismunandi sölugengi húsbréfa. Þetta hefur í för með sér verulega óvissu um vaxtabyrðina af veðskuldabréfum. Með hliðsjón af þessu er rétt að benda á að mikil ábyrgð og siðferðisleg krafa er lögð á húsbankana sem beinist að þeim aðilum sem þegar hafa gefið út veðskuldabréf um að útgáfa húsbréfa verði ekki of mikil miðað við eftirspurn þeirra. Slíkt offramboð hefði í för með sér hærri afföll og meiri kostnað á þann stokk veðskuldabréfa sem þegar hefur verið gefinn út. Hægt er að komast hjá þessari óvissu varðandi vaxtabyrði veðskuldabréfanna með því að hafa verðtryggingu og fasta vexti yfir ákveðið vaxtatímabil eins og bent er á í frv. En með því móti verður vaxtabyrðin mun ljósari, þá gefst einnig tækifæri til að semja að nýju ef aðstæður breytast.``
    Ég vil aðeins staldra við og skýra þetta nánar út. Það sem við lögðum til, og ég tel að ætti mikið erindi inn í íslenska peningamálaumræðu, eru svokölluð vaxtaaðlögunarlán. Ég mundi vilja nota tækifærið og benda á að að mínum dómi er hér verið að leggja áherslu á rangt atriði, þ.e. sjálf húsbréfin. Þau eru gerð að aðalatriði í frv. hæstv. félmrh. í stað þess að fara ofan í saumana á lánastofnununum og þeim ramma sem þær starfa eftir svo og útlánunum sjálfum, þ.e. útlánsforminu, með hvaða hætti er útlánið skipulagt og skilgreint. Við höfum í seinni tíð fyrst og fremst notað svokölluð lánskjaravísitölulán með ,,annuiteti``. Það er ekkert annað lánsform til hjá Húsnæðisstofnun ríkisins. Bankakerfið og Húsnæðisstofnun hafa ekki lyft litla fingri í þá átt að skoða aðra möguleika, kynna sér annars konar lánsform. Í öllum nágrannalöndunum, Bandaríkjunum og víðar, eru þeir sem fást við húsnæðislánamál allar

stundir að velta fyrir sér með hvaða hætti sé hægt að breyta lánsforminu, gera greiðslubyrðina auðveldari fyrir lántakendur og tryggja betur báða aðila, bæði lántakandann og lánastofnunina. Hér höfum við slysast inn á lánsform, eins og ég gat um, lánskjaravísitöluformið, sem hefur orðið þess valdandi að því miður stefnir hraðbyri í þá átt að velflestar íbúðir landsmanna séu algerlega í eigu Byggingarsjóðs ríkisins vegna þess að höfuðstóll lánanna er skrifaður upp með lánskjaravísitölu. Afborganir af lánunum eru mjög hægfara vegna þess að hér er um langtímalán að ræða. Það hefur a.m.k. borið á því undanfarin ár að söluverðmæti þessara íbúða hefur ekki haldið í við uppfærslu lánanna. Ég get orðað það einhvern veginn þannig að flestir íbúðareigendur væru í raun og veru orðnir leiguliðar hjá Byggingarsjóði ríkisins, þeir eiga ekkert í íbúðunum sínum lengur.
    Eitt aðalatriði sem mér finnst að þurfi að athuga er einmitt sjálft lánsformið. Með hvaða hætti megi koma með nýjar hugmyndir til þess, eins og ég sagði, að tryggja betur lántakandann og í sjálfu sér líka lánveitandann. (Gripið fram í.) Vaxtaaðlögunarlánin sem hafa rutt sér rúms í seinni tíð bæði á Norðurlöndunum og í Þýskalandi eru hugsuð þannig að þá er langtímaveðlán, við skulum segja til 40 ára, sett upp með þeim hætti að það er byrjað á því að skipta því niður í vaxtaaðlögunartímabil sem geta verið allt niður í eitt ár, en oft á tíðum er talað um fimm ára vaxtaaðlögunartímabil. Lántakandinn semur við húsnæðislánastofnunina um fasta vexti fyrir fyrsta vaxtaaðlögunartímabilið og á þeim grundvelli er skuldabréf keypt af lántakandanum með afföllum. Þau fara eftir því hvaða vaxtastig hann velur. Hann getur valið hátt vaxtastig og þar af leiðandi fengið skuldabréfið keypt á jafnvel meira en nafnvirði. Það er
til í dæminu á lánamarkaði í Frankfurt að ef vaxtastig sem lántakandinn velur er mjög hátt þá seljist skuldabréfið á yfirverði, kannski 105--106% en ekki á nafnverði. En oftar og algengara er að lántakandinn velji lægra vaxtastig og verður þá að taka á sig einhver afföll sem geta farið niður í kannski 80% af nafnverði. Þarna ræður lántakandinn sjálfur. Hann á völina, en auðvitað leitar hann ráðgjafar hjá viðkomandi stofnun um hvað hann gerir. Síðan byrjar hann að borga af láninu eins og um 40 ára veðlán sé að ræða. Eftir að fyrsta vaxtaaðlögunartímabilinu er lokið, þá kemur hann á nýjan leik og semur aftur um fasta vexti til næstu fimm ára eða til skemmri tíma ef um það er að ræða að vaxtaaðlögunartímabilið er haft styttra, t.d. jafnvel eitt ár. --- Kannski væri ekki vanþörf á því hér á Íslandi þar sem peningamarkaðir eru miklu hreyfanlegri og viðkvæmari en í öðrum löndum. --- Þá er gefið út nýtt skuldabréf og það er keypt á nýjan leik og gamla skuldabréfinu rutt út. Þannig er búið til lán þar sem lántakandi og lánastofnunin semja sín á milli fyrir hvert vaxtaaðlögunartímabil fyrir sig en lánið er jafnhagstætt báðum. Það sem er kannski aðalatriðið er það að með þessum hætti greiðist höfuðstóll skuldarinnar betur

niður án þess að það komi mjög illa við lántakandann. Hann getur reyndar hagrætt þessu eins og honum hentar fyrir hvert vaxtaaðlögunartímabil. Þetta hefur gefið mjög góða raun og virðist vera að húsnæðislán nágrannalandanna og í Evrópu færist í æ ríkara mæli yfir í þetta form.
    Þá höfum við þingmenn Borgfl. vakið athygli á svokölluðum afkomutryggingalánum. Ég fjallaði í nokkru máli um þau í ræðu minni í eldhúsdagsumræðunum um daginn en ég tel að það væri mjög brýnt að athuga þau betur því þau gætu átt mjög vel við hér á Íslandi þar sem það hefur oft viljað brenna við að lántakendur hafa lent í greiðsluerfiðleikum. Afkomutryggð lán eru einfaldlega orðin til þannig að bankastofnanir eða húsnæðislánastofnanir í samvinnu við líftryggingafélög bjóða afkomutryggð lán sem gerist þá með þeim hætti að það er í upphafi samið um hver sé greiðslubyrði lánsins og hvert sé greiðslumark, þ.e. greiðsluþol lántakanda. Í upphafi er það að sjálfsögðu stillt saman. Lántakandi hefur ákveðið greiðsluþol og greiðslubyrði lánsins er stillt af í samræmi við það. Síðan gerist það á lánstímanum að lántakandi getur orðið fyrir einhverju áfalli. Hann getur misst vinnuna, hann getur misst heilsuna, hann getur misst maka eða hann af öðrum óviðráðanlegum orsökum hefur ekki þær tekjur milli handanna sem hann hafði við upphaf lánsins og getur þar af leiðandi ekki staðið í skilum. Hann hefur ekki það greiðsluþol sem hann hafði við upphaf lánsins. Þá borgar líftryggingafélagið mismuninn á greiðsluþoli lántakandans á þeim tíma þar sem hann er með skertar tekjur og greiðslubyrðinni af láninu. Ég held að þetta sé mjög athyglisverð hugmynd sem við ættum að skoða betur. Nú skilst mér að við höfum þó komið því til leiðar að húsnæðismálastjórn hefur haft frumkvæði að því að verða sér úti um þessi bandarísku lög sem liggja til grundvallar afkomutryggðum lánum og þau munu nú í fyrsta sinn vera komin í athugun hjá húsnæðismálastjórn og er það vel.
    Ég ætla svo að ljúka við að lesa þessa minnispunkta sem ég fékk hjá einum fulltrúa Þjóðhagsstofnunar. Seinni hluti þessarar umsagnar hljóðar svo, með leyfi virðulegs forseta:
    ,,Að sjálfsögðu er ekki hægt að galdra neinar biðraðir burt á skömmum tíma. Fjárfestingin í landinu hlýtur alltaf að taka mið af sparnaðinum í þjóðfélaginu ef gert er ráð fyrir að ekki séu tekin erlend lán. Því er ekki hægt að lána hærri fjárhæð en sala húsbréfa gefur tilefni til. Ef framboð fasteignakaupenda á veðskuldabréfum til húsbanka er mun meiri en eftirspurn eftir húsbréfum á hinum frjálsa markaði miðað við skynsamlega og eðlilega vaxtaþróun verða biðraðir að sjálfsögðu til staðar. Með tímanum koma biðraðirnar til með að styttast en það eru fyrst og fremst niðurgreiddir vextir í núverandi kerfi sem hafa skapað þær. Auðvitað er hægt að uppræta biðraðir á mjög skömmum tíma með mjög háum raunvöxtum. En það er ekki markmiðið. Það þarf að vinna sig hægt og sígandi út úr því ójafnvægi

sem ríkir á fasteignamarkaðnum með skynsamlegri og eðlilegri vaxtaþróun að leiðarljósi.
    Varðandi erlent lánsfjármagn, þá er að sjálfsögðu mjög mikilvægt að hafa í huga að ekki má auka peningamagnið í hagkerfinu nema forsendur leyfi þar sem slíkt ýtir undir þenslu og verðbólgu. Að síðustu varðandi lánskjör og verðtryggingar þá tel ég eðlilegt að þannig sé bundið um hnútana að jákvæðir raunvextir verði greiddir af útlánum húsbanka.``
    Hér er önnur umsögn eftir sama aðila, sem er Jóhann Rúnar Björgvinsson þjóðhagfræðingur, þar sem fjallað er um húsbréf og spariskírteini. Ég held að þessi umsögn hafi ekki verið komin þegar málið var á dagskrá í Nd. og tel því rétt að fá einnig að lesa hana upp. Hún hljóðar svo, með leyfi virðulegs forseta:
    ,,Húsbréf og spariskírteini. Hver er munurinn á húsbréfum og spariskírteinum? Ef litið er á eiginleika þessara bréfa, þá er munurinn sáralítill. Þau eru bæði ríkistryggð og stöðluð. Húsbréfin eru að vísu til 25 ára en spariskírteinin til mun skemmri tíma. Þó er líklegt að húsbréfin verði
almennari, verðgildi þeirra þekktara og markaður þeirra virkari. En það eru ekki eiginleikar þessara bréfa sem gera þau frábrugðin, heldur það hvernig þau eru notuð eða hvernig þau koma inn á markaðinn. Ríkissjóður selur sparifjáreigendum spariskírteini fyrir peninga sem hann síðan notar til greiðslu á útgjöldum sínum. Ef ríkissjóður seldi sparifjáreigendum húsbréf fyrir peninga sem hann síðan lánaði fasteignakaupendum væri munurinn á þessum bréfum enn þá sáralítill. En ríkissjóður hefur ekki í hyggju að selja húsbréf fyrir peninga heldur fyrir veðskuldabréf. Hér er um grundvallarmun að ræða. Hugsunin er sú að handhafi húsbréfa hafi síðan getað gert eitt af þrennu:
    1. átt bréfin sem hvern annan öruggan sparnað,
    2. látið þau ganga upp í næstu íbúðakaup sín eða
    3. innleyst bréfin á markaði.
    Til þess að húsbréfin geti sinnt því hlutverki sem felst í lið 2 þá þarf í fyrsta lagi verðgildi þeirra að vera þekkt og er því gert ráð fyrir að það verði ætíð skráð oinberlega. Í öðru lagi verður að vera virkur markaður fyrir slík bréf svo að seljendur fasteigna samþykki þau sem greiðsluform. Því er gert ráð fyrir að Seðlabanki gegni veigamiklu hlutverki viðskiptavaka á þeim markaði til að auka virkni hans og grípi inn í ef verulegt misræmi skapast, sem sé ef afföllin aukast verulega.
    Hugsum okkur nú ef ríkissjóður léti spariskírteini sín koma mað svipuðum hætti inn á markaðinn og húsbréfin, þ.e. að í stað þess að ríkissjóður reyni að selja spariskírteinin á opnum markaði fyrir peninga, eins og hann gerir nú með misgóðum árangri, þá greiddi hann hluta af útgjöldum sínum, sem sé fjárfestingarútgjöldin beint með spariskírteinum. Jafnframt auglýsti hann að viðtakandi gæti gert eitt af þrennu: Átt bréfin sem hvern annan öruggan sparnað, látið þau ganga upp í einhver viðskipti sín eða innleyst bréfin á markaði. Ríkissjóður tryggði síðan að

ávallt væri virkur markaður fyrir spariskírteinin, að verðgildi þeirra væri ætíð skráð opinberlega og að Seðlabankinn hefði hlutverk viðskiptavaka og kæmi í veg fyrir að verulegt misræmi skapaðist á markaðnum, sem sé óeðlileg afföll. Með þessu móti þyrfti ríkissjóður hvorki að yfirdraga Seðlabanka né að taka erlend lán. En hver yrðu áhrifin?
    1. Ef handhafi bréfanna geymdi bréfin eins og hvern annan sparnað eða innleysti þau á markaði (hóflegt framboð), þar sem þau eru keypt sem sparnaðarform yrðu áhrifin svipuð og ef ríkissjóður hefði sjálfur selt þau á opnum markaði fyrir peninga. Áhrifin yrðu því áþekk og við núverandi fyrirkomulag.
    2. Ef handhafi bréfanna léti þau hins vegar ganga upp í önnur viðskipti sín hefðu þau öðlast hlutverk peninga og kæmu því í stað hlutverks annarra peninga og yrðu því viðbót við peningamagnið. Áhrifin yrðu aukin verðbólga.
    3. Að síðustu á ríkissjóður í mun minni erfiðleikum með að losna við spariskírteinin sín með þessum hætti. Miklar líkur eru því á að um offramboð spariskírteina verði að ræða því engin ríkisstjórn getur staðist þá freistingu sem þetta fyrirkomulag býður upp á. Sömuleiðis hefur ríkissjóður litla hvatningu til að stilla útgáfu spariskírteina í hóf, m.a. vegna þess að með þessu móti dregur úr þörf fyrir óvinsælar skattheimtur og erlendar lántökur. Áhrifin verða í fyrsta lagi hærri vextir þar sem offramboð bréfanna veldur að erfiðara verður fyrir handhafa þeirra að losna við þau nema með einhverjum afföllum. Þá þarf Seðlabankinn að grípa inn í starfsemi markaðarins með kaupum á bréfum ef verulegt misræmi skapast en hann kaupir bréfin fyrir peninga. Líkur eru því á í öðru lagi að peningamagnið aukist og verðbólgan magnist. Ríkissjóður getur því í raun með þessu fyrirkomulagi yfirdregið Seðlabankann að vild með óbeinum hætti.
    Af þessu má ráða að húsbréf sem seld eru á opnum markaði fyrir peninga, sem síðan eru lánaðir til fasteignakaupenda, eru önnur húsbréf en þau sem seld eru fyrir veðskuldabréf. Hér er um grundvallarmun að ræða í hagfræðilegu og efnahagslegu tilliti.
    Að lokum tel ég það skynsemdarmál í ljósi þeirrar umræðu og óvissu sem skapast hefur um áhrif húsbréfakerfisins á efnahagslífið að vel menntuðum erlendum hagfræðingum eða efnahagsstofnunum verði falið að leggja fræðilegt mat á efnahagsleg áhrif þessa frv. þar sem hér er um mjög afdrifaríkt mál að ræða sem getur orðið afar kostnaðarsamt fyrir þjóðarbúið. Væri ekki óskynsamlegt að leita til þekktari fagmanna en annars. Eitt er víst að við státum ekki af mörgum afrekum í hagstjórnarlistinni.``
    Ég mundi nú kannski vilja fylgja þessari ábendingu eilítið eftir og benda hæstv. félmrh. og öðrum flokksbræðrum hennar á það að einn helsti sérfræðingur um húsbréfakerfi í Evrópu í dag er fyrrverandi félags- og íbúðamálaráðherra Danmerkur, Erling Olsen, toppkrati, og væri þannig hægt að sækja

ráðgjöf í herbúðir toppkrata í Danmörku sem enginn gæti amast við eða skammast sín fyrir að þurfa að þiggja.
    Hér er hreyft mjög merkilegu máli, nefnilega samanburði á húsbréfum og spariskírteinum. Ég hef einmitt velt þessu mikið fyrir mér á sama grundvelli.
Er í sjálfu sér nokkuð til fyrirstöðu að ríkisvaldið geti ekki meðhöndlað spariskírteini á nákvæmlega sama hátt og fyrirhugað er með frv. að meðhöndla húsbréfin? Þ.e. að ríkisvaldið gefur út ótakmarkað magn spariskírteina og notar það hreinlega sem greiðslu til verktaka og annarra aðila sem inna af hendi þjónustu við ríkið. Þessir aðilar geta síðan ráðið því hvort þeir eiga bréfin eða hvort þeir þurfa kannski að greiða öðrum verktaka eða öðrum þjónustuaðila, láta hann þá bara hafa hluta af bunkanum. Í síðasta lagi að þessir aðilar hlaupa með bréfin í banka og reyna að selja þau. Þetta er í raun veru og veru nákvæmlega það sama sem verið er að tala um að eigi að gera við húsbréfin.
    Íbúðareigandinn, sem ætlar að selja íbúð sína, fer út í bæ og auglýsir íbúðina hjá einhverjum fasteignasala. Það kemur að lokum kaupandi, það gengur mismunandi fljótt fyrir sig, og það er skrifað undir skuldabréf hjá fasteignasalanum. Gert er ráð fyrir því að þetta verði stöðluð skuldabréf. Það er út af fyrir sig mjög eðlilegt og sjálfsagt að svo verði og þyrfti ekkert húsbréfafrv. til í sjálfu sér til þess að öll veðskuldabréf væru á stöðluðu formi sem væri viðurkennt af félmrn. eða kannski öllu fremur af dómsmrn. sem e.t.v. ætti að vera sá aðili sem ætti að löggilda skuldabréfaform. Um leið og kaupandinn er búinn að skrifa undir þetta fasteignaskuldabréf, þá hleypur seljandinn með það upp í Húsnæðisstofnun og fær þar afhentan bunka af húsbréfum í staðinn. Að vísu er sá varnagli sleginn að Húsnæðisstofnun, þ.e. húsbréfadeildin, muni kanna það hvort veðið sé nægjanlegt. Hún getur væntanlega gert það með einu símtali eða, eins og hefur reyndar komið fram í umræðum um húsbréfafrv., það er hægt að hugsa sér að það verði samið við bankastofnanir um að taka það verkefni að sér. Þá þarf kannski ekki heldur að kanna hvort kaupandinn sé á einhverjum svörtum lista í bankakerfinu þannig að hann sé ekki borgunarmaður. Þetta eru tvö mjög smávægileg atriði sem í flestum tilvikum ættu ekki að vera hindrun. Það þýðir að seljandinn fær þessi húsbréf um leið og hann er búinn að fá undirskrifað fasteignaverðbréfið og þá er hann í nákvæmlega sömu stöðu og var verið að lýsa áðan með verktakann og ríkisvaldið varðandi spariskírteinin, að hann hefur um þessa þrjá valkosti að ræða: Hann getur átt húsbréfin, hann getur keypt sér aðra íbúð og afhent húsbréf sem greiðslu eða hann getur farið og selt þau. Með þessu sé ég ekki að það sé í rauninni neinn munur á spariskírteinunum og húsbréfum. Þetta er nákvæmlega sami pappírinn í reynd. Eini munurinn er kannski sá að spariskírteinin eru yfirleitt til skemmri tíma, það er ekki um 25 ára spariskírteini ríkisins að ræða, en það er gert ráð fyrir því að húsbréfin verði til 25 ára.

    Ég tel að eitt grundvallaratriði sem þyrfti að lagfæra í þessu frv. sé einmitt þessi hömlulausu viðskipti. Ég tel að það eigi að fara þá leið sem mér finnst að ætti að vera tiltölulega auðvelt að ná samkomulagi um og það er að það verði allir að sækja um húsbréfalán. Það gerist einfaldlega með þeim hætti að annaðhvort seljandi íbúðar eða kaupandi sækir um lán til húsbréfadeildar. Lánsumsóknin fái þar einfaldlega sína meðferð eins og hver önnur lánsumsókn. Síðan þegar búið er að afgreiða lánsumsóknina, þá fyrst fær annaðhvort seljandinn, ef um eignaskiptalán er að ræða, sem svo er kallað þegar það er seljandinn sem hefur frumkvæðið, eða kaupandinn, ef um kaupalán er að ræða vegna þess að kaupandinn hefur frumkvæðið, afhent húsbréfin til þess að geta komið fasteignaviðskiptunum endanlega um kring. Þetta er hin hefðbundna leið sem allar húsnæðislánastofnanir nágrannalandanna, sem fjármagna útlán sín með húsbréfum, nota. Ég held að þessi svokölluðu skuldabréfaskipti, sem eru ákaflega sérkennileg og furðuleg, séu hvergi tíðkuð. Ég tel að þau fái hreinlega ekki staðist.
    Ég veit ekki hvort ég á að vera að halda hér öllu lengur áfram að svo stöddu. Ég margítreka það að ég hef fallist á það að við reyndum að hafa þessa umræðu í styttra lagi og koma málinu til nefndar. En það er mjög margt fróðlegt í þeim gögnum sem hér eru á borðinu hjá mér sem ég hefði viljað koma á framfæri. M.a. er hér stórmerkileg ræða sem Lars Wohlin, sem er framkvæmdastjóri stærstu húsnæðismálastofnunar Svíþjóðar, flutti á ársfundi húsnæðislánastofnunarinnar Byggeriets Realkreditfond í Kaupmannahöfn 8. mars sl., fyrir sem sagt tæpum tveimur mánuðum, þar sem hann lýsir þeim breytingum sem nú eru að verða á sænsku húsnæðislánalöggjöfinni og hvernig þær breytingar hafa allar orðið til góðs. Þær ganga einfaldlega í þá átt að það stórdregur úr afskiptum ríkisins. Ríkið er hægt og sígandi að draga sig út úr húsnæðislánamarkaðinum. Það er verið að gera þennan markað algjörlega frjálsan þannig að sjálfstæðar húsnæðislánastofnanir, svo og húsnæðislánadeildir sænsku bankanna taka húsnæðislánin algjörlega að sér.
    Ég held að ég bíði með að fara nánar ofan í þessa ræðu og geymi mér það til 2. umr. Það má eins fjalla um efnisinnihald hennar í nefndinni þegar við förum að fjalla um frv., en það er mjög margt fróðlegt og merkilegt sem kemur þarna fram.
    Síðan mundi ég vilja vekja athygli hv. þm. á því að það hefur verið við lýði mjög náið samstarf húsnæðislánastofnana á Norðurlöndunum undanfarin ár og jafnvel áratugi þar sem þessar stofnanir hafa komið saman á samráðsfundum til þess einmitt að fjalla um húsnæðislánamál, í hvaða farvegi þau eru að þróast og hvernig sé skynsamlegt að þau þróist. Því miður virðumst við Íslendingar nánast ekkert hafa sinnt þessu. Ég sé þó að Ingi Valur Jóhannesson, sem er fulltrúi í félmrn., hefur sótt slíkan samráðsfund, líklega fyrstur manna héðan fyrir tæpu ári síðan eða svo og eins sé ég að starfsmaður Seðlabankans hefur í fyrsta

sinn mætt á slíkum samráðsfundi í fyrra.
    En það er kannski ekki nema von að húsnæðislánamál okkar séu í miklum ólestri vegna þess að við höfum leyft þessum málum að þróast hér í farvegi sem er algjörlega fyrir utan allt sem hefur verið að gerast hjá nágrannalöndum okkar. Við höfum ekki haft vit á því að sækja hugmyndir og kynna okkur það sem þar er að gerast. Þar eru að gerast alveg stórmerkilegir hlutir. M.a. er það að gerast að með hinum stóra markaði sem verður kominn á í Evrópu 1992 þá verður starfsemi húsnæðislánastofnana um alla Evrópu nánast frjáls. Það þýðir einfaldlega að ítalskar, franskar, þýskar og portúgalskar húsnæðislánastofnanir geta sett niður útibú sín í Kaupmannahöfn og í Svíþjóð, en Svíar ætla að fara inn á þessa braut hvort sem þeir gerast aðilar að Evrópubandalaginu eða ekki. Sænskar húsnæðislánastofnanir og danskar og aðrar munu að sjálfsögðu leita á erlend mið og setja upp útibú í hinum ýmsu löndum Evrópu og bjóða þar upp á húsnæðislán. Reyndar hafa Danir fetað fyrstu sporin í þessa átt og eru þar miklir brautryðjendur. Þannig lánuðu dönsku húsnæðislánastofnanirnar á árinu 1987 yfir 1 milljarð danskra króna í húsnæðislánum til erlendra aðila, þ.e. Danir hafa veitt húsnæðislán, bæði til Þýskalands, þeir hafa verið með tilraunalán í Wales, þeir hafa verið með tilraunalán í Portúgal og nú í fyrra var samþykkt að veita dönsku húsnæðislánastofnununum heimild til þess að vera með tilraunalán bæði í Frakklandi og Indiana-fylki í Bandaríkjunum. Þannig námu við árslok 1987 heildarútlán danskra húsnæðislánastofnana til lántakenda utan Danmerkur rúmlega 1 milljarði danskra króna. Þá hefði nánast ekkert munað um það að bæta öllu íslenska húsnæðislánakerfinu á sig, ef eftir hefði verið leitað, og farið létt með það.
    Virðulegi forseti. Ég held að ég láti þetta nægja að sinni. En eins og ég segi er ég hér með mikinn fróðleik og mikið af gögnum sem væri vert að fara nánar í en ég vonast til að við höfum tækifæri áfram til að ræða þessi mál nokkra stund svo sem eins og næstu tvær til þrjár vikurnar a.m.k.