Guðrún Agnarsdóttir:
Virðulegi forseti. Kvennalistinn hefur frá upphafi stutt hugmyndina um húsbréfakerfi en jafnframt sett ákveðna fyrirvara við ýmsa þætti þess. Við undirbúning málsins í sérstakri nefnd og umfjöllun þess á Alþingi komu enn frekar í ljós ýmsir óvissuþættir sem valda því að erfitt er að taka eindregna afstöðu með þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins. Og vegna þeirrar umræðu sem orðið hefur um stuðning Kvennalistans við þetta frv. þá tel ég ástæðu til þess að vitna sérstaklega í nokkra kafla úr bókun Kristínar Ástgeirsdóttur sagnfræðings sem sat fyrir hönd Kvennalistans í þeirri nefnd um almenna húsnæðismálakerfið sem skilaði af sér 12. des. 1988 og vann þetta frv. En Kristín skilaði sérstakri bókun þann 15. nóv. 1988. Þar rakti hún grundvallarstefnu Kvennalistans í húsnæðismálum og ég vil vitna til orða hennar, með leyfi forseta:
,,Það er grundvallarstefna Kvennalistans í húsnæðismálum að fólk eigi að geta valið um það í hvers konar húsnæði það býr, valið um að kaupa eða leigja. Við tökum ekki undir það sjónarmið að það sé genetískt séreinkenni á Íslendingum að vilja eiga húsnæði enda sýna nýjustu kannanir annað.
Það er einnig skoðun kvennalistakvenna að húsnæðiskerfið eigi að taka mið af aðstæðum fólks, tekjum og fjölskyldustærð. Styðja ber þá sem þurfa á aðstoð að halda vegna lágra tekna og fjölskyldustærðar. Þeir sem betur mega sín ættu að geta bjargað sér án niðurgreiddra vaxta.
Kvennalistinn telur mesta þörf á því að byggja leiguhúsnæði og ekki síst að tryggja námsfólki, öldruðum og öryrkjum hentugt húsnæði. Með slíkum aðgerðum mundi draga verulega úr spennu á húsnæðismarkaðnum og væntanlega yrði komið í veg fyrir að fólk reisti sér hurðarás um öxl með ótímabærum húsnæðiskaupum.
Veruleikinn sem við okkur blasir er sá að félagslega húsnæðiskerfið getur aðeins sinnt hluta umsækjenda. Skortur á leiguhúsnæði er verulegur um allt land og almenna húsnæðiskerfið, sem síðast var breytt 1986, er orðið að botnlausri hít.
Með breytingunum 1986 var hleypt af stað skriðu sem enn sér ekki fyrir endann á. Umsóknir eru margfalt fleiri en afgreiðslur lána og biðröðin lengist sífellt. Lánakjörin eru umsækjendum hagstæð, ef þeir á annað borð ráða við þau, en þau boða gjaldþrot Byggingarsjóðs ríkisins verði ekki að gert. Biðtíminn reynist mörgum erfiður enda í fá hús að venda önnur en að leita eftir kaupum á húsnæði. Það er því augljóst að grípa verður til aðgerða. Þær verða annars vegar að hjálpa umsækjendum um húsnæðislán og stytta biðtímann en hins vegar að draga úr lánum til þeirra sem ekki þurfa á þeim að halda og létta þar með á ríkissjóði.``
Nokkru síðar segir hún, með leyfi forseta, þegar hún ræðir ýmsa þá óvissuþætti sem augljósir voru strax í byrjun við húsbréfakerfið þó að við, eins og ég sagði áðan, styddum hugmyndina. Og ég held áfram
að vitna, með leyfi forseta:
,,Það verður þó að benda á ýmsa óvissuþætti hvað varðar húsbréfakerfið. Í fyrsta lagi er óljóst hvaða svigrúm er á verðbréfamarkaðnum fyrir húsbréfin, ekki síst þar sem nú virðist fram undan samdráttur í efnahagslífinu. Ef kaupgeta reynist lítil fellur kerfið um sjálft sig og eftir stendur að vextir hafa verið hækkaðir á lánum Byggingarsjóðs ríkisins. Þá er verr af stað farið en heima setið. Eins og nú horfir í efnahagsmálum er ástæða til að hafa áhyggjur af lífslíkum húsbréfakerfisins en þær velta m.a. á því hvort lífeyrissjóðirnir fjárfesta í húsbréfum. Til þess að svo verði þurfa þau að vera girnilegur kostur til ávöxtunar fjármagns. Þá er óljóst hvaða áhrif húsbréfakerfið hefur á íbúðaverð og skiptar skoðanir um það hvort það muni verka til hækkunar eða lækkunar. Það mun ráðast af framboði, eftirspurn og efnahagsástandinu en hætt er við að verðið hækki ef íbúðaeigendur þurfa að selja bréf sín með afföllum.
Enn eitt sem benda verður á er að breytingin stendur og fellur með því að þeir sem bera þunga vaxtabyrði fái hana bætta í gegnum skattakerfið. Stjórnvöld freistast æðioft til að skera niður upphæðir sem eiga að koma fólki til góða og jafna lífskjörin. Sú upphæð, sem reiknað er með til vaxtabóta, er sú sama og fór á þessu ári til húsnæðisbóta eða um 1100 millj. 1988 sem þýðir að í raun verður um lækkun að ræða þar sem ýmsir skattgreiðendur fá greiddan vaxtafrádrátt samkvæmt gamla kerfinu. Upphæðin til niðurgreiðslu á vöxtum lækkar því þegar á heildina er litið. Það verður því að krefjast þess að vaxtabæturnar verði ekki skertar eigi fyrirhugaðar breytingar á húsnæðiskerfinu að fá stuðning Kvennalistans.
Hvað varðar lækkun á lánum til ákveðinna hópa umsækjenda hefur undirrituð sérstaklega varað við því að skerða til muna lán til einhleypra sem eru að kaupa í fyrsta sinn.`` --- Og ég legg sérstaka áherslu á þennan kafla, hæstv. forseti, vegna þeirra aðdróttana sem hafa verið gerðar í garð Kvennalistans eftir að kvennalistakonur studdu brtt. sem lagðar voru fram í Nd. og ég mun víkja að síðar. Ég vil sérstaklega draga athygli hv. þm. að þeirri áherslu sem hér er lögð á aðstæður einhleypinga til þess að afla sér húsnæðis:
,,Hvað varðar lækkun á lánum til ákveðinna hópa umsækjenda hefur undirrituð sérstaklega varað við því að skerða til muna lán til einhleypra sem eru að kaupa í fyrsta sinn. Við breytinguna 1986 kom í ljós uppsafnaður vandi. Stór hópur einhleypra sá sér nú loks fært að kaupa húsnæði, um 20% umsækjenda. Það er ekkert ódýrara fyrir einn að kaupa húsnæði en tvo einstaklinga ef miðað er við húsnæði af hæfilegri stærð enda eiga tekjur eins að standa undir sama kostnaði og ella deilist á tvo. Það eru mannréttindi að hafa þak yfir höfuðið hvernig sem fjölskyldumálum er háttað.
Þá skal bent á að ekki kann góðri lukku að stýra að umbylta húsnæðiskerfinu á fárra ára fresti. Slík vinnubrögð skapa óvissu, óeðlilega þenslu og oft ótímabær húsnæðiskaup þegar fólk veit ekki hvers er
að vænta. Það er því brýn þörf á að skapa festu í húsnæðiskerfinu með framtíðarstefnumörkun.``
Og að lokum segir Kristín Ástgeirsdóttir og ég vitna áfram, með leyfi forseta:
,,Það er sem sagt margt að athuga þegar á allt er litið. Húsbréfakerfið hefur greinilega marga kosti ef vel tekst til.`` --- Og hún hefur reifað þá kosti sérstaklega í bókun sinni. --- ,,En undirrituð ber ugg í brjósti vegna ástandsins í þjóðfélaginu. Húsbréfakerfinu þarf að fylgja rækileg kynning meðal almennings og öflug ráðgjöf til að tryggja að enn einn hópurinn reisi sér ekki hurðarás um öxl en þeir njóti góðs af sem eiga heima í húsbréfakerfinu.
Jafnframt því sem að framan segir ber að benda á nauðsyn þess að líta á húsnæðiskerfið sem heild. Verði reyndin sú að fyrirhugaðar breytingar komi illa við hina tekjulægri, sem reyndar verður ekki séð af fyrirliggjandi upplýsingum, undirstrikar það aðeins nauðsyn þess að félagslega húsnæðiskerfið verði eflt. Innri fjármögnun húsbréfakerfisins ætti með tíð og tíma að losa um fjármagn sem hiklaust ber að veita þangað sem þörfin er mest, til byggingar leiguíbúða og félagslegra íbúða, til þeirra sem nú búa við alls óviðunandi aðstæður og þurfa á aðstoð að halda.
Vegna þess hve óvissuþættirnir eru margir og stórir er erfitt að taka eindregna afstöðu með fyrirhuguðum breytingum. Húsbréfakerfið er vænlegur kostur fyrir ákveðinn hóp kaupenda og mun ef vel tekst hafa í för með sér jákvæðar breytingar. Því tel ég rétt að láta á það reyna. Spurningin er hins vegar sú hvort viðbót á einum stað í húsnæðiskerfinu og niðurskurður á öðrum kemur nógu mörgum til góða. Að mínum dómi er mikil þörf á endurskoðun á húsnæðiskerfinu þar sem horft verður á það sem heild en hætta að greina það niður í tvo afmarkaða hluta. Slík endurskoðun þarf að miðast við framtíðina ekki síður en nútíðina þannig að koma megi í veg fyrir endalausar smábyltingar og neyðarúrræði þegar allt er komið í óefni. Aðeins þannig verður tryggt að allir sitji við sama borð og húsnæðiskerfið þjóni þeim sem það á að þjóna.``
Þetta er undirritað af Kristínu Ástgeirsdóttur 15. nóv. 1988.
Mér fannst nauðsynlegt að þessi sjónarmið kæmu hér fram vegna þess að þau voru skýrt tekin fram í þessari bókun. Það var bæði fjallað um kosti og lesti þessa kerfis en niðurstaðan varð sú að fulltrúa okkar í nefndinni þótti rétt að láta á þetta kerfi reyna. Við höfum komist að sömu niðurstöðu hér á Alþingi þrátt fyrir það að skiptar skoðanir hafi reynst meðal sérfræðinga um áhrif húsbréfakerfisins t.d. á íbúðaverð, fasteignamarkaðinn, lánamarkaðinn og á efnahagskerfið í heild, enda hafa þær umsagnir og óvissuþættirnir verið ítarlega raktir, bæði í umræðum í Nd. og eins hér í Ed. nú þegar.
Stór hópur fólks ræður ekki við þau kjör sem nú bjóðast til húsnæðiskaupa. Hærri vextir munu gera þessum hópi enn erfiðara fyrir. Því er ljóst að þrýstingur á félagslega íbúðakerfið mun aukast verulega en hann er ærinn fyrir og því er skjótra
úrbóta þörf. Kvennalistinn telur jafnframt óhjákvæmilegt að mæta sívaxandi þörf fyrir leiguhúsnæði eins og kom fram í orðum Kristínar Ástgeirsdóttur og hefur lengi vel verið stefna okkar. Slíkt mundi koma þeim sem þurfa eða vilja leigja til góða, jafnframt sem það mundi létta mjög á almenna húsnæðiskerfinu.
Kvennalistinn hefði viljað efla og bæta félagslega húsnæðiskerfið, bæði fyrir þá sem vilja leigja og kaupa, áður en ráðist væri í fyrirhugaða breytingu á almenna kerfinu. En með tilliti til alls þessa taldi Kvennalistinn að ekki væri unnt að styðja þetta frv. nema ríkisstjórnin mundi tryggja og lýsa yfir þeim skilyrðum sem Kvennalistinn setti fyrir stuðningi við frv. og þau koma fram í fskj., bæði við nál. frá 4. minni hl. félmn. á þskj. 1037 sem er undirritað af Kristínu Einarsdóttur, fulltrúa Kvennalistans í félmn. Nd., og einnig í nál. 2. minni hl. félmn. á þskj. 1031 sem er undirritað af Jóni Sæmundi Sigurjónssyni, Guðrúnu Helgadóttur og Jóni Kristjánssyni. Ég vil vitna til þess, með leyfi forseta, en það er samkomulag um húsnæðismál milli Kvennalistans og ríkisstjórnarinnar:
,,Athuganir innan ríkisstjórnarinnar og viðræður við Kvennalistann hafa leitt til þeirrar niðurstöðu að samþykkt frv. til laga um húsbréfakerfi verði tengt húsnæðismálum í stærra samhengi.
Samkomulag er um eftirfarandi:
1. Skipan nefndar á vegum félmrh. til að endurskoða hinn félagslega hluta húsnæðiskerfisins. Nefndin skili niðurstöðu fyrir 1. nóv. nk. Hlutverk nefndarinnar er að leggja fram tillögur um endurbætur á fyrirkomulagi lánveitinga til félagslegra íbúðabygginga með það fyrir augum að einfalda lánafyrirkomulag og auka skilvirkni félagslega íbúðalánakerfisins. Nefndinni er falið að gera tillögur um breytt fyrirkomulag á stjórnun og úthlutun á félagslegri aðstoð í húsnæðiskerfinu. Jafnframt er nefndinni falið að gera tillögur um framkvæmd ráðstafana og leita leiða til að auka framboð leiguhúsnæðis og til að jafna húsnæðiskostnað leigjenda til samræmis við húseigendur.
2. 600 millj. kr. raunaukningu á framkvæmdafé til félagslega hluta íbúðakerfisins.`` --- Og ég verð nú að segja að mér fannst það fáránleg samlíking hjá hv. 7. þm. Reykn. þegar hann talaði um 100 millj. kr. á hverja þingkonu Kvennalistans. Mér fannst það fáránlegt fyrst og fremst vegna þess að þetta fé rennur auðvitað ekki til kvennalistakvenna heldur til félagslega íbúðakerfisins og það er ósanngjarnt og rangt að gera þannig tengingar á milli atriða sem ekki eiga saman. Ég held áfram að vitna, með leyfi forseta: ,,Á árinu 1989 verði 100 millj. kr. raunaukning á framlögum auk þess sem felst í bréfi ríkisstjórnarinnar til Alþýðusambandsins í tengslum við kjarasamninga 1. maí 1989. Á árinu 1990 verði svo 500 millj. kr. raunaukning framkvæmdafjár.
3. Vextir á lánum, sem úthlutað hefur verið úr Byggingarsjóði ríkisins, verði ekki hækkaðir þegar húsbréfakerfið kemst í framkvæmd.
4. Þingflokkur Kvennalistans mun taka þátt í undirbúningi gildistöku húsbréfakerfisins og fylgjast með þeirri reglugerðarsmíð sem fram þarf að fara.
Samkomulag er um ofangreind atriði milli ríkisstjórnarinnar og Kvennalistans og munu þau koma fram í nefndarálitum félagsmálanefnda við afgreiðslu húsbréfamálsins á Alþingi.`` --- Undirritað 1. maí 1989.
Síðan komu fram, eins og ég sagði, brtt. við 1. og 2. gr. frv. í Nd. Þær miðuðu við það að aflétta skerðingu og kostnaðarsamasta breytingin miðaði sérstaklega að því að aflétta skerðingum sem lagðar höfðu verið á einhleypt fólk. Eins og kom fram í orðum Kristínar Ástgeirsdóttur höfum við allt frá byrjun --- og þetta var ítrekað strax í ræðu hv. þm. Kristínar Einarsdóttur í Nd. við 1. umr. þessa máls þar --- verið mótfallnar þeirri skerðingu sem lögð hefur verið á einhleypinga af þeim ástæðum sem ég rakti hér áðan. Það var því í samræmi við stefnu okkar að styðja slíka brtt. en sá þáttur brtt. sem þar kom fram í 2. gr. var sá kostnaðarsamasti. Hinir höfðu mun minni kostnað í för með sér og þá einkum sú breyting sem gerð var á 1. gr. og varðaði þá sem eiga íbúðarhúsnæði og atvinnutæki. Að áliti Húsnæðisstofnunar mundi hún ekki valda neinum aukakostnaði. Ég tel því að þær aðdróttanir sem voru gerðar vegna afstöðu Kvennalistans hafi verið tilefnislausar rangfærslur eða e.t.v. byggðar á misskilningi.
Ég mun ekki hafa fleiri orð um þetta mál í 1. umr. Afstaða Kvennalistans er óbreytt frá því sem var í Nd. og munum við styðja þetta frv. hér í Ed. á sama hátt og við gerðum í Nd. Ég hef lokið máli mínu, herra forseti.