Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Það frv. sem hér er til meðferðar er á ýmsan hátt nokkuð sérstakt að því leyti til að það er mikið einvalalið sem að því eru flm. og málið olli töluverðri umræðu þegar það kom til 2. umr. í hv. Nd. Ég tel óhjákvæmilegt að lýsa því hér við 1. umr. að að vel athuguðu máli hefur það verið niðurstaða fjmrn. og mín að vara þingið við því að samþykkja þetta mál að svo lítt athugðu máli. Mér er það alveg ljóst að þetta mál er sótt af miklu kappi af hálfu 1. flm. og ýmissa annarra. Það er hins vegar óhjákvæmilegt að þingið geri sér skýra grein fyrir því að fjölmargir, sem bera ábyrgð á því að innheimta opinber gjöld í landinu, telja að með þessari breytingu sé verið að gera verk þeirra miklu erfiðari.
Í grófum dráttum búum við hér við tvenns konar skatta í okkar landi. Annars vegar er um að ræða skatta sem eru eins konar vörslufé, t.d. staðgreiðsla af launum starfsfólks fyrirtækja, söluskattur og síðan virðisaukaskattur sem viðkomandi fyrirtæki, rekstraraðilar, eiga í sjálfu sér ekki heldur fara eingöngu í gegnum hendur þeirra frá öðrum og í hinn sameiginlega sjóð landsmanna. Síðan er um að ræða tekjuskatta og eignarskatta sem fyrirtæki eiga að greiða af sínum eigin fjármunum.
Það hefur verið talið eitt af brýnustu verkefnum í íslenska skattakerfinu að bæta þessa innheimtu. Það er t.d. alveg ljóst að þangað til gripið var til aðgerða fyrir nokkrum mánuðum síðan varðandi staðgreiðsluna var þó nokkur hætta á því að það innheimtukerfi gæti brotnað niður vegna þess að ótrúlega mörg fyrirtæki, stór og smá, voru byrjuð að draga skilin á staðgreiðslunni. Sama gildir auðvitað með söluskattinn og enn fremur um virðisaukaskattinn.
Í umræðunni í Nd. voru sett fram þau sjónarmið að það ætti ekki að gera greinarmun á einstaklingum og ríkisvaldinu í þessum efnum og það yrði að tryggja einstaklinga og aðra á sama hátt og ríkisvaldið. Ég hlýt þó hér að setja fram það sjónarmið að það er a.m.k. nauðsynlegt að þingið íhugi mjög alvarlega hvort það ætlar að halda á ný inn á þá braut að gera engan greinarmun á þeim fjármunum sem fyrirtækjum er falið að innheimta hjá öðrum og koma áleiðis og þeim fjármunum sem fyrirtækin hafa til eigin ráðstöfunar. Ég vil í því sambandi vekja athygli þessarar hv. deildar á því að í tæplega hálfa öld, frá 1926 til 1974, var sú skipan í gildi sem nú er lagt til með þessu frv. að afnema. Síðan var þessu breytt, en fyrir nokkru síðan var ákveðið að halda aftur inn á þessa braut.
Flutningsmaður frv. hefur nokkuð lagt út af því að veruleg réttaróvissa mundi skapast ef núgildandi skipan væri áfram við lýði og ef þetta frv. yrði samþykkt yrði þeirri réttaróvissu eytt. Við umræður í Nd. hefur af hálfu flm. einnig verið vikið allmikið að stöðu skiptaréttar. Við umfjöllun málsins í Nd. voru send inn álit frá lögmannafélögum og ýmsum öðrum slíkum aðilum, bönkum, samtökum atvinnurekenda og fleirum sem mæltu með frv. Ég er hins vegar sannfærður um það að frv. hafi ekki vakið nægilega
athygli úti í þjóðfélaginu til að vekja upp umræður og athuganir hjá fleirum. Eftir að málið kom á dagskrá í hv. Nd hafa mér borist skeyti, símhringingar og álitsgerðir frá innheimtumönnum ríkissjóðs, frá lögmönnum og ýmsum öðrum sem mæla eindregið gegn því að frv. verði samþykkt.
Í fullri vinsemd við hv. deild og þó að mér sé ljóst að það liggi ýmsar ástæður að baki því að frv. var samþykkt í hv. Nd. án þess að það hafi fengið ítarlega athugun og allir þættir málsins hafi verið nægilega vel skoðaðir hlýt ég að biðja þessa hv. deild að athuga þetta mál gaumgæfilega áður en hún tekur það til endanlegrar meðferðar við 2. og 3. umr. Í fyrsta lagi vegna þess að viðvaranir innheimtumanna ríkissjóðs, þeirra sem þjóðþingið hefur falið að tryggja góð skil á sköttum, hljóta að vega eitthvað í þinginu, sérstaklega þegar allir stjórnmálaflokkar í landinu, fjöldasamtök, verkalýðsfélög og aðrir hafa lagt á það brýna áherslu að bætt innheimta opinberra gjalda sé eitt mikilvægasta verkefni í okkar samfélagi. Í öðru lagi vegna þess að mér finnst vera að koma skýrt í ljós að meðal lögfræðinga og annarra eru þó nokkuð skiptar skoðanir um þetta mál og mjög mismunandi álit varðandi þann praxis sem skapast gæti í skiptarétti. Og í þriðja lagi vegna þess að það þarf að skoða hvort ekki er hægt að fara aðrar leiðir en hér er lagt til til að eyða þeirri réttaróvissu sem frv. er ætlað að eyða. Ég hefði þess vegna talið skynsamlegra að í sumar yrði skipuð nefnd í þetta mál þar sem allir þættir málsins kæmu til ítarlegrar skoðunar, bæði þeir sem snúa að traustu innheimtukerfi ríkisins og hins vegar þeir sem snúa að starfsemi skiptaréttar og almennum veðböndum.
Ég ætla ekki að vekja langar umræður um þetta mál, þótt vissulega væri hægt að gera það, vegna anna deildarinnar. Ég hefði hins vegar brugðist skyldum mínum við hv. deild ef ég hefði ekki gert grein fyrir þessum sjónarmiðum hér við 1. umr., sérstaklega vegna þess að við athugun málsins í Nd. er alveg greinilegt að af hálfu hv. fjh.- og viðskn. var ekki nægilega vel hugað að þeim þætti þessa máls sem snýr að innheimtukerfi ríkisins. Um það hef ég sannfærst eftir að hafa rætt bæði við formann nefndarinnar og einstaka nefndarmenn.
Ég vil þess vegna beina þeim eindregnu tilmælum til hv. fjh.- og viðskn. að hún skoði þetta mál vandlega, hún kynni sér alla þætti málsins og íhugi hvort ekki kann að vera skynsamlegra að gefa sér einhverja mánuði í að skoða þetta frekar því að ákvörðun þingsins um að veikja innheimtukerfi ríkisins gagnvart opinberum sköttum og gjöldum er að mínum dómi mjög alvarleg aðgerð þegar þingið gerir þá höfuðkröfu til fjmrn., innheimtumanna ríkissjóðs og gjaldheimtumanna að þeir skili miklu árangursríkara starfi en hingað til.