Eyjólfur Konráð Jónsson:
Hæstv. forseti. Hæstv. fjmrh. hefur beint alvarlegum aðvörunarorðum til hv. Ed. Ég hygg að þó að dvöl hans á hinu háa Alþingi hafi ekki verið mjög löng viti hann að þessi deild starfar vel. Hann þarf ekkert að óttast um það að þetta mál verði ekki nægilega vel athugað í hv. fjh.- og viðskn. Mér fannst það að vísu dálítið ósmekklegt að hnýta því í fjh.- og viðskn. Nd. að hún hefði unnið málið illa eða a.m.k. látið ýmsar hliðar þess órannsakaðar og hann hefði sannfærst um það af einkaviðræðum við einstaka nefndarmenn. Það er hans mál að halda þeirri staðhæfingu fram. Mitt mál hér er eingöngu það að leggja til að málið fari nú þegar í stað til nefndar.
Ég þarf ekkert að munnhöggvast við hæstv. ráðherra um efni frv. Ég held að hv. Nd. hafi komist að réttri niðurstöðu þegar hún samþykkti þetta mál einróma. Það er rétt sem hæstv. ráðherra sagði að það er gert ráð fyrir að ljúka þingi innan fárra daga hvort sem það tekst eða ekki og hitt er líka sjálfsagt að verða við óskum hans um að athuga mál þetta vel í hv. fjh.- og viðskn. Ég á nú reyndar sæti í hv. fjh.- og viðskn. og mun ég leggja til að það verði gert strax í fyrramálið.
Það var nefnt sérstaklega að verkalýðshreyfingin legði áherslu á trausta innheimtu skatta. Það gerum við auðvitað öll. En sitt er nú hvað að innheimta skatta með venjulegum hætti eða það að láta bráðsaklausa menn gjalda þess að einhverjir aðrir hafi ekki staðið í skilum.
Efnislega umræðu ætla ég að spara mér til 2. umr. um þetta mál einmitt til þess að málið komist strax til hv. fjh.- og viðskn. og verði þar þegar tekið fyrir á fundi í fyrramálið. Af því að hv. formaður nefndarinnar stendur hér fyrir framan mig, hv. þm. Eiður Guðnason, og heyrir væntanlega mál mitt þá vildi ég óska eftir því að gefnu tilefni að fulltrúi frá verkalýðsfélögum kæmi í fyrramálið, einhver frá Alþýðusambands Íslands ... ( EG: Í fyrramálið höfum við 45 mínútur og ...) Já, reyndar var ég búinn að biðja um að fá fulltrúa annarra samtaka líka til að koma og ég efast ekkert um að það verði gert.
En ég legg megináherslu á að mál þetta fái góða umfjöllun í nefndinni og það komist helst þegar í stað eða innan fárra mínútna í gegnum þessa umræðu og til nefndar.