Halldór Blöndal:
Herra forseti. Það er á þessu stigi málsins og hér við 1. umr. ekki ástæða til þess að segja margt um það frv. sem liggur fyrir. Það er augljóst að Nd. hefur breytt frv. í veigamiklum atriðum þannig að það lýsir ekki lengur þeirri stefnu sem hæstv. ráðherra húsnæðismála vill fylgja. Því er mikil spurning hvort ekki sé skynsamlegt fyrir hæstv. ráðherra að íhuga hvort hann sé ekki bundinn við þá yfirlýsingu sína að segja af sér ef þetta stjfrv. nær ekki fram að ganga. Ég sé ekki í fljótu hasti hvernig hæstv. ráðherra getur skotið sér hjá því ef hann á annað borð vill standa við þau digru orð sem hann lét falla fyrr á þessum vetri.
Nú hlýtur frv. í sinni breyttu mynd að fá mjög rækilega skoðun í félmn. og af þeim sökum skal ég ekki fara efnislega út í einstaka þætti. En um leið og ég gagnrýni þá meðferð sem hæstv. ráðherra hefur haft á húsnæðismálunum fram að þessu og hvernig hæstv. ráðherra hefur unnið eftir þeim lögum sem nú eru í gildi vil ég spyrja hæstv. ráðherra einnar spurningar. Nú stendur svo á að umsóknir liggja fyrir varðandi erfiðleikalán sem nema 100 millj. kr. Það vantar á þessari stundu 100 millj. kr. upp á að hægt sé að sinna því fólki sem er að missa íbúðir sínar og á í hvað mestum erfiðleikum. Ég hygg að sú fjárhæð sé ekki fjarri sanni, þetta var sú fjárhæð sem ég fékk upplýsingar um í Húsnæðisstofnun í síðustu viku. Þess vegna vil ég spyrja hæstv. húsnæðisráðherra: Hvaða ráðstafanir mun hann gera til þess að nægilegt fé verði í Byggingarsjóði fram að áramótum þannig að hægt sé að sinna því fólki sem á í hvað mestum erfiðleikum í sambandi við húsnæðismál sín?
Ég man eftir því að þegar hæstv. ráðherra var í stjórnarandstöðu lét hann sér mjög annt um þennan málaflokk og vil ég því spyrja hann hvort hann hafi gert einhverjar ráðstafanir til þess að útvega þessar 100 millj. kr. og til viðbótar fé sem dugir til áramóta. Ef það kemur í ljós að hæstv. ráðherra hefur gert tilraunir til að útvega féð væri fróðlegt að fá upplýsingar um það á hverjum stendur í ríkisstjórninni til að hægt sé að sinna þessu fólki.