Umhverfismengun af völdum einnota umbúða
Þriðjudaginn 16. maí 1989

     Frsm. iðnn. (Hjörleifur Guttormsson):
    Virðulegur forseti. Á þskj. 1165 liggur fyrir nál. frá iðnn. um frv. til laga um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. á mörgum fundum. Til viðræðu um málið komu eftirtaldir á fund nefndarinnar: Halldór Kristjánsson frá iðnrn., Ingimar Sigurðsson frá heilbrmrn., Ólafur Davíðsson frá Félagi ísl. iðnrekenda, Ólafur Pétursson frá Hollustuvernd ríkisins, Pálmi Gíslason frá UMFÍ, Tryggvi Felixson frá samtökum skáta, Þórður Þorbjarnarson frá sorpeyðingu höfuðborgarsvæðis og Þóroddur Þóroddsson og Davíð Egilsson frá Náttúruverndarráði.
    Fram kom hjá fyrrgreindum aðilum stuðningur við markmið frv. Flestir töldu rétt að frv. yrði sem fyrst að lögum þótt þeir hefðu kosið að sjá gerðar á því nokkrar breytingar.
    Fulltrúi iðnrn. gerði nefndinni grein fyrir undirbúningi að stofnun hlutafélags skv. 2. gr., en fyrirhugað er að það verði stofnað fyrir lok þessa mánaðar. Ráðgert er að móttaka á umbúðum til endurvinnslu geti hafist í júnímánuði nk.
    Nefndin telur að til greina hefði komið að ákvæði frv. væru víðtækari og tækju til fleiri tegunda umbúða, m.a. pappaumbúða um drykkjarvörur. Einnig telur nefndin að athugandi hefði verið að taka inn í frv. ákvæði um umhverfisgjald til að örva skil á einnota umbúðum til endurvinnslu eða förgunar líkt og tillögur voru gerðar um af endurvinnslunefnd iðnaðarráðuneytis. Nefndin hvetur til þess að á næstunni verði unnið að því að koma svo sem frekast er unnt í veg fyrir mengun af völdum einnota umbúða.
    Nefndin telur að með lögfestingu þessa frv. og framkvæmd á ákvæðum þess náist markverður áfangi til að draga úr umhverfismengun. Vegna aðstæðna flytur nefndin ekki brtt. við frumvarpið og mælir með því að það verði samþykkt óbreytt.``
    Þetta er gjört á Alþingi 10. maí 1989 og undir nál. rita allir nefndarmenn í iðnn. deildarinnar.