Kristín Halldórsdóttir:
Virðulegi forseti. Stundum hvarflar að manni sú hugsun í hvaða leikriti maður sé eiginlega staddur. Mér finnst svo örstutt síðan við stóðum hér og ræddum fram og aftur um tekjuöflun af ýmsu tagi til þess að mæta sameiginlegum útgjöldum landsmanna. Það var reiknað fram og til baka og þráttað m.a. um áhrif aukinnar skattlagningar á verslunar- og skrifstofuhúsnæði og lántökugjald, sem kvennalistakonur reyndar studdu í trausti þess að slíkir skattar kæmu ekki niður á almennu launafólki. Það var tekist á um breikkun vörugjaldsstofns með mishárri prósentu sem við vorum andvígar og töldum heimskulega aðgerð með tilliti til hagsmuna neytenda, framleiðenda, seljenda og á endanum ríkissjóðs. Ekki skal heldur gleymt skoðanaskiptum um þá afleitu ráðstöfun ríkisstjórnarinnar að seilast í lögboðin framlög ríkisins til Atvinnuleysistryggingasjóðs, en í frv. er enn aukið við skyldur Atvinnuleysistryggingasjóðs. Það er eins og ráðamenn hafi ekki áttað sig á þeirri einföldu staðreynd að sama krónan verður ekki notuð oftar en einu sinni.
Nú er svipt burtu lántökugjaldi og skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði lækkaður til fyrra horfs. Svo mikill sem ákafinn var að sannfæra þingheim um það fyrir fjórum til fimm mánuðum að þessir tekjupóstar mættu engan veginn missa sín er ekki orð um það hvað á að koma í staðinn þegar þeir skila ekki tekjum lengur nema að því leyti sem jöfnunargjaldið gefur af sér. Er nema von að maður spyrji sjálfan sig stundum í hvaða leikriti maður er staddur og heldur ekki nema von að maður spyrji sig þeirrar spurningar hvort þessi gjöld hafi fyrst og fremst verið ætluð sem skiptimynt þegar þau voru lögð á.
Í 1. gr. frv. er enn einu sinni brugðið á gamla ráðið með heimild til lántöku til þess að gera Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins kleift að greiða verðbætur. Þessi sveiflujöfnunarsjóður, sem svo átti að verða, hefur nefnilega miklu fremur verið notaður til að jafna niðursveiflur en uppsveiflur og á sjaldnast til peninga fyrir niðursveiflum. Í niðurlagi greinarinnar birtist svo óskhyggjan í rósrauðum bjarma þar sem segir að lánið skuli endurgreitt af tekjum Verðjöfnunarsjóðs af viðkomandi afurðum á næstu þremur árum eftir að það er tekið. Síðan kemur náttúrlega varnaglinn: ,,Það sem þá kann að vera ógreitt fellur á ríkissjóð.`` Heiðarlegra væri nú að viðurkenna strax að þessi skuld fellur vitanlega á ríkissjóð og við hljótum að spyrja: Hverjum dettur í hug að hér sé um varanlega aðgerð að ræða? Þegar þessir peningar verða uppurnir skapast þörf fyrir nýja aðgerð, nýjar ráðstafanir. Þá er það afleitt að með aðgerðum af þessu tagi er sífellt verið að mismuna greinum sem getur sannarlega verið réttlætanlegt um stundarsakir þegar sérstaklega stendur á en má ekki vera viðvarandi. Það flokkast einfaldlega undir það að berja höfðinu við steininn.
Því má auðvitað ekki gleyma sem ekki stendur í frv. en það er sú gengisbreyting sem varð fyrir viku
og er nú kölluð því fína nafni gengissig og meira að segja sveigjanleiki í kaupbæti. Sú aðgerð dugði auðvitað skammt í því skyni að rétta hlut fiskvinnslunnar og gerði ekki annað en draga lítillega úr tapinu. Þannig er fjarri því að ríkisstjórnin hafi með þessari aðgerð efnt loforð sitt við fiskvinnslufyrirtækin um að skapa þeim viðunandi rekstrarskilyrði. Hins vegar tókst henni að svíkja loforð sitt gagnvart launafólki um stöðugt gengi. Þannig fer þeim sem tala tungum tveim. Í þessum efnum sem öðrum virðast hæstv. ráðherrar ekki vita í hvorn fótinn þeir eiga að stíga, enda sannleikurinn auðvitað sá að gengið verður að laga að breyttum aðstæðum en um leið þarf að gera ráðstafanir til að taka áfallið af launafólki og heimilunum þegar genginu er breytt. Ætli ég þurfi nokkuð að nefna hinn margumrædda matarskatt.
Í 2. gr. er lagt til að fella niður lántökugjald af erlendum lánum frá 1. júlí en því var breytt í 1. júní í meðförum Ed. Þetta var skynsamleg breyting og skiptir áreiðanlega ekki máli fyrir ríkissjóð því lántakendur hefðu einfaldlega haldið að sér höndum til 1. júlí og tekjutap því í rauninni ekkert fyrir ríkissjóð við þessa breytingu. Það er hins vegar hætt við að þessi ráðstöfun komi eitthvað misjafnt niður og ástæða til þess að inna eftir því hvaða aðilar hafi þegar greitt þetta gjald, þ.e. lántökugjald, á þessu ári. Ýmsir aðilar hafa vafalaust þegar ráðstafað slíkum lántökum en einhverjir kunna að sitja uppi með lán sem þeir eru ekki búnir að útdeila. E.t.v. væri ástæða til að íhuga hvort eigi að létta því gjaldi af þeim sjóðum sem sitja uppi með lán sem þeir hafa þegar greitt gjaldið af en eiga eftir að útdeila.
Eins og ég sagði áðan studdi Kvennalistinn framlengingu þessarar gjaldtöku á sínum tíma, rétt eins og hækkun sérstaks skatts á verslunar- og skrifstofuhúsnæði, á þeim forsendum að ríkissjóður þyrfti á auknum tekjum að halda sem skárra væri að taka af þessum póstum en að ganga harðar að almennu launafólki. Því miður tókst ekki að hindra þá aðför þar sem skattar á almennt launafólk voru engu að síður auknir. Því miður verð ég að segja að fátt er um bætur fyrir almennt launafólk í loforðasjóði hæstv. ríkisstjórnar sem hellt var úr í tengslum við kjarasamninga Alþýðusambandsins og Vinnuveitendasambandsins.
Hins vegar studdum við ekki vörugjaldsruglið sem er nú leiðrétt að hluta í 4. gr. frv. Það var slík endemisvitleysa að menn eru ekki einu sinni enn þá eftir fjóra mánuði búnir að átta sig á framkvæmdinni og sem er í rauninni ógerleg fyrir flest smáfyrirtæki og smáa aðila. Áður en þessar breytingar voru gerðar á vörugjaldinu voru vörugjaldsskyldir aðilar í kringum 40 talsins en um það bil 800 gjaldskyldir aðilar bættust við um síðustu áramót og um 600 þeirra munu vera fyrirtæki með fimm starfsmenn eða færri. Áður var um að ræða gjald á vörur sem voru að meiri hluta framleiddar erlendis en um áramótin bættist við fjöldi vara sem fyrst og fremst eru framleiddar hérlendis. Með þeim breytingum sem
lagðar eru til í 4. gr. frv. er sannarlega fengin mikilvæg leiðrétting á þessum mistökum sem a.m.k. sumir hæstv. ráðherrar hafa viðurkennt sem slíka og þar vil ég nefna hæstv. viðskrh. sem er nýgenginn úr salnum. Hitt er svo annað mál hversu heimskulegt það er og fáránlegt að gera breytingar sem þessar á fárra mánaða fresti svo að menn hafi ekki undan að aðlagast breytingunum. Slíkur hringlandi er til gífurlegs óhagræðis fyrir viðkomandi og fyrirsjáanlegar lækkanir hafa ekki síður áhrif á starfsemi fyrirtækja en fyrirsjáanlegar hækkanir. Í þessu tilviki er afar bagalegt t.d. fyrir alla innréttingasmíði að þessi niðurfelling komi ekki strax til framkvæmda. Þar er um að ræða samninga sem gerðir eru langt fram í tímann og nú blasir ekki annað við slíkum aðilum en hálfgert verkfall í sumar. Það er því ófært að láta þetta ekki taka gildi fyrr en 1. sept. Það væri enn fremur freistandi að reyna að fá fram frekari breytingar á vörugjaldsstofninum en vafalaust hefur það litla þýðingu úr þessu.
Í 5. gr. er kveðið á um hækkun jöfnunargjaldsins. Ég ætla ekki að segja mikið um það á þessu stigi en bendi aðeins á að með þessari hækkun er verið að stækka þann bita sem kyngja verður þegar virðisaukaskattinum verður komið á.
6. og 7. gr. taka til Atvinnuleysistryggingasjóðs sem enn á að taka á sig skuldbindingar á sama tíma og ríkissjóður stendur ekki við lögboðin framlög heldur veitir þeim í annan farveg. Þarf ekki að minna á hvert þau fara. Ákvæði þessarar greinar eru hins vegar að mínu mati sjálfsögð og til hagsbóta fyrir launafólk sem sjálfsagt og nauðsynlegt er að reyna að verja fyrir afleiðingum ástandsins í atvinnumálum. Góð vertíð í vetur dró verulega úr þeim samdrætti og því atvinnuleysi sem menn óttuðust svo mjög auk þess sem minnkandi þenslu hefur verið mætt t.d. með minni yfirvinnu. Hins vegar skulum við ekki gleyma því að á þessari góðu vertíð var verulega gengið á heildarkvóta ársins og hlýtur það að kalla á samdrátt á síðari hluta ársins nema kvótinn verði aukinn. Á það verður vafalaust gríðarlegur þrýstingur. Þannig má segja að samdrátturinn sem allir bjuggust við og óttuðust hafi að nokkrum hluta frestast. Og hvað sem líður þeirri speki að frestur sé á illu bestur má ekki loka augum fyrir þessari staðreynd, þ.e. minnkandi aflamagni og samdrætti í atvinnulífinu þar af leiðandi sem að öllum líkindum mun dynja yfir okkur á síðari hluta ársins.
Þá vil ég spyrja um áhrif þessara ráðstafana sem frv. tekur til og þá er ég fyrst og fremst að hugsa um áhrif á lánskjaravísitölu, verðbólgustig, afkomu fiskvinnslunnar, það hefur að vísu lítillega verið á það drepið, og svo vitanlega á afkomu ríkissjóðs sjálfs.
Að lokum. Þær ráðstafanir sem þetta frv. tekur til eru fyrst og fremst í þágu atvinnufyrirtækjanna. Það er fátt eitt hér sem tekur sérstaklega á afkomu launafólks sjálfs eða til réttinda þeirra. Hins vegar er í fylgiskjölum, sérstaklega í fskj. II, drepið á ýmis atriði sem fulltrúar Alþýðusambandsins lögðu fyrst og fremst áherslu á. Þar eru talin upp í 12 liðum ýmis
atriði sem voru tekin fyrir og lofað að taka á af hálfu ríkisstjórnarinnar. Hún mun skipa nefndir og beita sér fyrir einu og öðru, lofar samráði og að beita sér fyrir átaki, kanna, vinna að mótun o.s.frv. Sum þessara loforða eru útlátalítil, svo sem eins og í 12. lið þar sem lofað er framgangi frv. um félagsmálaskóla alþýðu, sem raunar var komið langleiðina gegnum þingið þegar það loforð var gefið.
Um önnur atriði vildi ég spyrja hæstv. iðn.- og viðskrh. sem situr hér til andsvara að hæstv. forsrh. frágengnum. Ég sé ekki ástæðu til þess að telja upp alla þessa liði en vildi þó nefna sérstaklega fyrsta punktinn þar sem ríkisstjórnin lofar að skipa sérstaka nefnd til þess að fjalla um ástand og horfur í atvinnumálum og móta langtímastefnu um atvinnuuppbyggingu í landinu. Ég vildi spyrja hæstv. ráðherra hvort búið væri að stofna þessa nefnd og hver hennar áætlun er t.d. um skil og annað vinnulag.
Ég vil spyrja um framkvæmd 3. liðar þar sem rætt er um að sporna við verðhækkunum á næstu missirum. Það var kannski einn af þessum liðum sem manni þótti ekki sérlega mikið til koma þar sem hæstv. ríkisstjórn var þegar búin að heimila ýmsar hækkanir á opinberri þjónustu. Það er sífellt verið að sækja á um slíkt og er ástæða til að fá fréttir af því hvernig ríkisstjórnin hyggst efna þetta loforð.
Ég vildi líka spyrja um fjórða punktinn sem hlýtur að skipta launafólk mjög miklu máli því þar er lofað samráði við samtök launafólks um úrbætur í
skattamálum. Ég vildi gjarnan fá svör við því við þessa umræðu hvað hafi gerst hvað þetta varðar, hvort búið er að setja einhverja vinnu í gang sem tekur á þessu atriði.
Sömuleiðis er fjallað um vaxtamál í 5. lið og hvort eitthvað sé af því að segja. Þannig mætti auðvitað telja upp hérna alla þessa liði, en ég vildi þó sérstaklega nefna hér tvo liði í viðbót. Hinn fyrri er 8. liðurinn sem fjallar um bætur almannatrygginga. Hvenær er þess að vænta að bætur almannatrygginga hækki í samræmi við almennar launahækkanir á samningstímabilinu? Er búið að taka ákvarðanir um það og hvenær það verði?
Í síðasta lagi er 11. liðurinn sem fjallar um fæðingarorlof og um skipun nefndar sem hafi það verkefni að skoða og útfæra þá stefnumörkun er fram kemur í álitsgerð nefndar sem samdi frumvarp til laga um fæðingarorlof og miðar að því að konur, hvar sem þær eru í starfi, njóti jafnréttis hvað varðar fæðingarorlof. Nú verð ég að viðurenna að ég man ekki nákvæmlega hvað kom fram í álitsgerð þessarar nefndar enda höfðu kvennalistakonur ákveðnar skoðanir á þessum málum, hvernig þeim væri best fyrirkomið og höfðu sett það fram í frumvarpi sem var til umfjöllunar á hverju þingi á síðasta kjörtímabili. En nú er eins og allir vita gerður mismunur á fæðingarorlofsgreiðslum eftir því hvernig vinnu kvenna er háttað, þ.e. hvort hún hefur verið launuð eða ekki. Þær sem t.d. starfa eingöngu inni á heimilum sínum eru lægra settar en aðrar og þess vegna finnst mér ástæða til þess að spyrja eftir því
hvort hæstv. ráðherra skilji þessa setningu, þ.e. að konur, hvar sem þær eru í starfi, njóti jafnréttis hvað varðar fæðingarorlof, þannig að konur sem eingöngu sinna heimilisstörfum inni á sínum heimilum eigi nú að fá að njóta jafnréttis á við konur sem vinna launuð störf úti á vinnumarkaði.