Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Þriðjudaginn 16. maí 1989

     Forseti (Kjartan Jóhannsson):
    Eins og sumum deildarmönnum er væntanlega kunnugt hefur verið gert ráð fyrir hálftíma hléi fyrir þingflokksfundi fyrir kl. hálffimm. Nú er mér ekkert í mun að ljúka þessari umræðu umfram það sem forseta er venjulega í mun. Því vil ég spyrja hv. 1. þm. Vestf. hvort hann hafi hugsað sér að segja fáein orð eða muni ætla sér meiri tíma til ræðuhaldanna því að ... ( MB: Það eru tiltölulega fá orð.) Ef útlit er fyrir að umræðunni ljúki á fáeinum mínútum mundi ég nú kjósa það frekar og gefa þá hv. 1. þm. Vestf. orðið.