Pálmi Jónsson:
    Herra forseti. Frv. þetta er nú komið til 2. umr. í síðari deild og virðist ætlan hæstv. ráðherra að ná afgreiðslu á málinu á þessu þingi. Telja verður að þar sé um allmikla fyrirhyggjusemi að ræða þar sem eigi er gert ráð fyrir gildistöku þessara laga ef afgreidd verða fyrr en 1. júlí 1992.
    Nú er það kunnugt að þó að ekki hafi risið miklar deilur um þetta mál á þessu þingi standa um þetta mál miklar deilur í þjóðfélaginu. Með tilliti til þess er mér auðvitað nokkur spurn hvort ástæða sé til að ganga fast fram í því að afgreiða þetta mál á lokadögum þessa þings í því horfi sem það er í stað þess að fresta afgreiðslu þess til að mynda til næsta þings og væri þó ekki afhættis með tilliti til þess rúma tíma sem er til gildistöku laganna ef afgreidd verða. Ætla mætti að með því að hafa þann hátt á og það vinnulag mætti takast að vinna bug á þeim deilum sem um þetta mál standa í þjóðfélaginu og þann mikla skoðanamun sem er á þessum málum víða hvar og þá ekkert síður á meðal lagamanna en leikra.
    Nú er það kunnugt að ég er ekki lögfræðingur og telst á engan máta sérfræðingur í slíkum efnum. Það er hæstv. dómsmrh. ekki heldur þannig að sem þingmenn erum við nokkuð jafnt á vegi staddir hvað þetta snertir. Hæstv. dómsmrh. hefur auðvitað ýmsa lagamenn í sinni þjónustu en það má leiða að því getum að það velti nokkuð á því hvaða lagamenn það eru sem hann hefur sér mest til ráðuneytis og leggja til að málið sé afgreitt vegna þeirra deilna sem um málið standa af hálfu lögfróðra manna. Ég hef því tilhneigingu til þess að spyrjast enn fyrir um það hjá hæstv. forseta, með tilliti til þessarar stöðu málsins, hvort eigi sé nú ráð að taka tíma Alþingis til annarra starfa og kannski brýnni en að hefja umræðu um mál sem ætlað væri að afgreiða með þeim formerkjum að gildistaka væri 1. júlí 1992. Væri mér þökk á að fá að heyra svör hæstv. forseta. ( Forseti: Einhvers staðar stendur í bókum að ekki sé ráð nema í tíma sé tekið, en ekki ætlar forseti að tengja það við þetta mál sérstaklega. Það liggur ekkert fyrir um það af hálfu forustu þingsins, að mér vitanlega, hvort þetta mál skuli fram ganga eða leitast verði við að það nái samþykki eða ekki. Umræðunni er fram haldið og ræðumaður hefur orðið. Það verður haldið áfram umræðu um málið um hríð.)
    Hæstv. forseti, ég þakka svör. Þau voru á þá lund að umræðan héldi áfram enda þótt engin stefna væri um það af hálfu hæstv. ríkisstjórnar eða þess meiri hluta sem hér fer með völd hvort málið eigi fram að ganga eða ekki. Þetta fannst mér nú vera einkennileg svör. ( Forseti: Forseti vill taka fram að hann talaði fyrir munn forustu þingsins eftir bestu vitund þar að lútandi en ekki varðandi ríkisstjórnina og vilja hennar.) Já, svo sem rétt er talar hæstv. forseti auðvitað fyrir hönd forustu þingsins. Miðað við þessi svör hafa forsetar þingsins ekki haft það á forgangslista að þetta mál gengi fram.
    Ef það væri svo, nú þegar kominn er 16. maí, að forsetar þingsins og hæstv. ríkisstjórn hefðu lagt ráð

sín saman um málatilbúnað á hinu háa Alþingi og framgang mála fyrir þinglok og hefðu haft tóm til þess að bera saman bækur sínar um það hvaða mál það eru sem skyldu ganga fram áður en þingi lyki væri það náttúrlega stórkostlega virðingarvert. En miðað við þessi svör er það ekki enn þá svo. Enn þá virðist það vera algerlega í lausu lofti hvaða mál það eru á hinu háa Alþingi sem ætlunin er að afgreiða. Mál eru bara tekin af handahófi til umræðu án þess að forusta þingsins, hæstv. forsetar, hafi hugmynd um það hvort þau eigi að ná fram að ganga eða ekki. Þetta er mjög sérkennilegt vinnulag. Þetta lýsir ekki mikilli einbeitni í stjórn þingsins og ekki miklu sambandi á milli hæstv. ráðherra og hæstv. ríkisstjórnar annars vegar og forseta þingsins hins vegar. Ég er búinn að sitja á hinu háa Alingi nokkuð lengi eða yfir 20 ár. Oft hefur það verið svo að býsna mikil málaþröng hefur verið fyrir þinglok og oft hefur það verið svo að orðaskak og orðasennur hafa verið fyrir þinglok. En ég man aldrei eftir því að það væri jafnmikið stjórnleysi og ráðleysi í þingstörfum og er nú fyrir lok þessa þings, ef það er þá meiningin að ljúka þessu Alþingi nú á vordögum og það standi ekki langt fram á sumar.
    Þegar það liggur ekki fyrir nú af hálfu hæstv. forseta annars vegar og af hálfu hæstv. ríkisstjórnar hins vegar hvort þetta mál eða hitt skuli ganga fram eða ekki held ég að það sé þeim mun meiri ástæða til þess að óska eftir að slíkum málum sé frestað og fundarhlé tekið til þess að hæstv. forsetar og hæstv. ráðherrar nái að tala saman og koma sér saman um það hvaða mál það eru sem eiga að ganga fram og hver ekki. Ég minnist þess að kynnt var starfsáætlun fyrir þetta þing á haustdögum og þar var gert ráð fyrir að Alþingi lyki 6. maí. Ég man líka að á þeirri stundaskrá var gert ráð fyrir að til að mynda síðari umræða um vegáætlun færi fram 28. apríl. Nú er liðinn mánuður án þess að það hafi verið að heita má fjallað um vegáætlun í fjvn. Hæstv. forsetar og hæstv. ráðherrar hafa allan þennan tíma ekki virst ná að tala saman um það hvaða mál eigi að ganga í gegn. Síðan var sagt að ljúka ætti þingi fyrir hvítasunnu og hefði einhverjum þótt eðlilegt. Nú veit enginn hvenær þingi á að ljúka. Það skal engan undra með þessu háttalagi, þessu stjórnleysi hér á hinu
háa Alþingi, sameiginlega af hálfu hæstv. ráðherra og hæstv. forseta. Þetta ráðslag er valdhöfunum hér til vanvirðu og með því að haga vinnubrögðum á þann hátt sem stjórnvöldum í landinu er til vanvirðu eru þeir líka að draga sjálft Alþingi niður á hið sama plan. Það er hið alvarlega. Ég sé ekkert eftir því þótt þessi hæstv. ríkisstjórn verði sér til minnkunar. En við sjáum eftir því ýmsir hverjir að hv. Alþingi sé um leið minnkun gerð. Þetta liggur fyrir með þessum hætti og er býsna alvarlegt.
    Við 1. umr. þessa máls gerði ég litla athugasemd, en þó nokkuð veigamikla, sem var sú að með þessu lagafrv. fylgdi ekki, svo sem lög kveða á um, kostnaðaráætlun Fjárlaga- og hagsýslustofnunar ríkisins um það hvaða kostnaðarauki hlytist af samþykkt þessa

frv. Ég vakti á því athygli að hæstv. núverandi ráðherrar virðast láta sér í léttu rúmi liggja þó að þeir vanvirði þau lög sem eru í landinu um þetta efni og flytji hvert frv. á fætur öðru án þess að þeirri lagaskyldu sé fullnægt að kostnaðaráætlun fylgi frv. frá ríkisstjórninni. Ég hef þurft að minna hæstv. ráðherra Framsfl. á þetta hvern á fætur öðrum og það er kannski einkennilegra fyrir það að þau lagaákvæði sem hér er verið að minna á eru í lögum nr. 13/1979 og þau lög hafa alla jafna verið kölluð Ólafslög og eru kennd við Ólaf heitinn Jóhannesson, þann merka mann og fyrrum foringja Framsfl. Það er auðvitað margt breytt í þessum Framsfl. sem nú er við lýði. En ef þeim þætti það þess virði að gæta sóma sinna fyrri foringja ættu þeir að hirða um að hafa í heiðri þau lög sem við Ólaf Jóhannesson eru kennd, fyrir svo utan að það er auðvitað alger óhæfa að á sjálfu Alþingi, sjálfri löggjafarsamkomunni, hlýði menn ekki lögum. Það er auðvitað óhæfa.
    Hér er nú komin greinargerð Fjárlaga- og hagsýslustofnunar um kostnaðaráætlun við frv. eins og það liggur fyrir. Ber að sjálfsögðu að þakka það þó að það hafi ekki orðið til þess að bæta úr því að lögum skuli fylgt, þ.e. að kostnaðaráætlun eigi að fylgja með þegar frv. eru flutt. Ég hef séð margar greinargerðir frá Fjárlaga- og hagsýslustofnun og er ýmsum greinargerðum þeirra nákunnugur en ég verð að segja það að þessi greinargerð er býsna varfærnisleg. Hér segir að við það að stofna embætti átta nýrra dómstóla í landinu megi reikna með að árleg útgjöld vegna rekstrar dómkerfisins aukist um 50--54 millj. kr. Gert er ráð fyrir því að reikna megi með að stofnkostnaður varðandi þessi embætti verði 112 millj. kr., miðað við tiltekið verð á fermetra húsnæðis, en síðar segir að ofangreind upphæð sé hámark og líklegt kostnaðarverð sé innan við 100 millj. kr. Hér eru auðvitað allt aðrar tölur á ferðinni en látið var í veðri vaka þegar hæstv. dómsmrh. mælti fyrir frv. Þó eru þessar tölur ærið varfærnislegar og lágar. Virðist helst svo að skilja sem hin nýju embætti, þessir nýju dómstólar, geti nærri því þegjandi og hljóðalaust gengið inn í húsnæði sýslumanna og fógetaskrifstofa á landinu án þess að um verulegar breytingar sé að ræða, eða a.m.k. víðast hvar. Þetta dreg ég stórlega í efa.
    Auk þess er í þessum kostnaðaráætlunum hvergi gert ráð fyrir embættisbústöðum. Embættisbústaði vilja þeir embættismenn ríkisins hafa sem settir eru til þess að fara með embætti af því tagi sem hér eru á ferðinni. Ég sé heldur hvergi í þessum gögnum gert ráð fyrir kostnaðarliðum sem nú þykja sjálfsagðir eins og tölvukerfi og annað slíkt. Ég veit ekki hvernig það samrýmist að notað sé tölvukerfi annarra stofnana, sem verður auðvitað ekki heldur munu þessar stofnanir krefjast þess að fá tölvukerfi og annan slíkan tækjabúnað sem sjálfsagður þykir við hvaða stofnun sem er nú á dögum.
    Ég ætla ekkert að gagnrýna þessa skýrslu Fjárlaga- og hagsýslustofnunar að öðru leyti en því að segja það að hún er afar varfærnisleg og má búast við að

verði þeim tölum fylgt sem þar eru á ferðinni muni ekki fækka aukafjárveitingum úr ríkissjóði eða greiðslum umfram heimildir fjárlaga. Sýnilegt er einnig að þar eru a.m.k. sumir stofnkostnaðarliðir vantaldir. Ég held því að kostnaður við að koma á þessu nýja kerfi dómstóla verði ærið meiri en hér er gert ráð fyrir.
    Ég spurði hæstv. dómsmrh. um það við 1. umr. hvaða nauðsyn bæri til þess að koma á þessu nýja kerfi og hvort það væri svo að hið íslenska réttarfar og núverandi dómskipan hefði misboðið réttlætiskennd almennings í landinu eða brotið á fólki sem undir þessa dómstóla þurfa að sækja. Hæstv. ráðherra svaraði því til að svo væri ekki þó að auðvitað gætu verið á því undantekningar. Meginniðurstaðan í hans svari var sú að svo væri ekki og þegar svo er sýnist ástæðan ekki vera ærin að taka upp nýtt og kostnaðarsamt kerfi dómstóla úr því að hinir eldri dómstólar hafa ekki brotið á landslýðnum eða misfarið með sitt vald.
    Ég ætla ekki að fara í lögfræðilegar útskýringar á því að við munum vera kærðir fyrir Evrópudómstól úti í Strasbourg út af því máli sem þar hefur verið til umfjöllunar, máli hjólreiðamanns frá Akureyri. Ég ætla ekki í neinar lagaskýringar á því. En við skulum gæta að okkur. Við erum dvergríki. Við Íslendingar höldum hér uppi dvergríki. Við erum fámenn þjóð, um 250 þúsund manns, og við getum kollsiglt þetta ríki okkar ef við í hverju einasta tilviki
færum okkar kerfi, hvort sem það er dómskerfi eða annað, yfir á sama stig og krafist er hjá þjóðum þar sem fólksfjöldi er milljónatugir ef ekki milljónahundruð. Það hlýtur að vera svo að okkar fámenna þjóð verði að gæta hófs í þeirri yfirbyggingu, hvort sem það er við dómstóla landsins eða annað, sem hún tekur að sér að standa undir. Því er það mín skoðun að við eigum að kosta kapps um það að rasa ekki um ráð fram og stofna til nýrra embætta, nýs embættismannakerfis og nýs stofnanakerfis á vegum hins opinbera ef það kerfi sem gilt hefur hefur staðið sæmilega fyrir sínu.
    Þetta er kannski aðalatriðið í því máli sem ég hafði fram að færa í þessa umræðu. Við verðum um leið að gera okkur grein fyrir því að við notum ekki sömu peningana oftar en einu sinni. Um leið og við kjósum að leggja þó ekki nema kannski 150--200 millj. kr. í kerfi af þessu tagi verða þeir peningar ekki notaðir til þess að hjálpa atvinnuvegum þjóðarinnar. Þeir sömu peningar verða t.d. ekki notaðir til að endurgreiða söluskatt í sjávarútvegi. Hæstv. dómsmrh., sem jafnframt er sjútvrh. eins og alkunna er, gæti þurft að velja um það hvert peningarnir fara. Í þessu tilviki er það sýnilegt að hann hefur valið að leggja þá í dómskerfið, þ.e. að koma á nýju kerfi dómstóla sem kostar ærið fé, og eiga það þá jafnframt á hættu að minna fé sé til þess að hjálpa til við að láta atvinnuvegi þjóðarinnar ganga. Þetta liggur auðvitað alveg ljóst fyrir og ég tel það a.m.k. vafasamt. Það má kalla mikil og brýn nauðsyn til þessa máls ef það á að vera réttlætanlegt.

    Nú er það auðvitað svo að það geta orðið mistök í dómskerfinu og það er tiltölulega nærtækt að minna á ein mistök, sem kannski er erfitt að kenna dómstólunum um, en voru þau hrapallegu mistök að saklausir menn voru dæmdir í tugthús í svokölluðu Geirfinnsmáli. Það var af dómstóli sem ekki hafði neitt umboðsvald með höndum. Ég hygg að það hafi verið í sakadómi Reykjavíkur sem saklausir menn voru dæmdir í tugthús vegna Geirfinnsmálsins, auðvitað vegna þess að vitnisburður var með þeim hætti sem menn muna. En þau mistök urðu ekki af hálfu dómstóla sem með umboðsvald fara. Þó svo að það komi fyrir endrum og sinnum að dómar hjá fógetaembættum, sem fara enn fremur með umboðsvald á vegum hins opinbera, standist ekki eigum við þó okkar Hæstarétt sem ég vænti að við getum treyst enn þann dag í dag.
    Ég sagði áðan að um þetta mál væri ágreiningur og víst er að svo er. Ég hafði aðallega við fjárhagshlið málsins að athuga enda er ég ekki löglærður maður. Ef eldra kerfi hefur gefist okkur vel hvaða nauðsyn er þá til þess að taka upp nýtt kerfi og kostnaðarsamt kerfi þrátt fyrir það að einu máli hjólreiðamanns á Akureyri hafi verið vísað til Evrópudómstóls úti í Strasbourg? Það er svo aftur athygli vert að einn af höfundum frv. er einmitt sá lögmaður sem er að reka mál gegn íslenska réttarkerfinu úti í Strasbourg. Það er í rauninni sérstakur vitnisburður um það að maður sem er að reka mál gegn íslensku réttarfari, réttarkerfi og dómskerfi skuli vera valinn í bland með öðrum til að semja frv. til laga um þetta efni sem hér er verið að berja í gegn.
    Fyrir fáum dögum, þ.e. 10. maí, birtist grein með stórri fyrirsögn í dagblaðinu Tímanum eftir bæjarfógetann í Hafnarfirði, Má Pétursson. Fyrirsögnin hljóðar svo: ,,Réttarfarsslys á Alþingi``. Ef einhver hæfa eða meining er í þessari fyrirsögn og í þessari grein í það heila tekið er alvarlegt mál á ferð. Ég ætla ekki að dæma um það út frá lögfræðilegu sjónarmiði. En það er alvarlegt þegar einn af dómurum landsins, fógeti í einu stærsta fógetaembætti landsins, Hafnarfirði, og flokksbróðir hæstv. ráðherra að því er best er vitað, segir að ef þetta mál fari í gegn á Alþingi sé það réttarfarsslys. Hann segir í framhaldi á því, með leyfi hæstv. forseta: ,,Horfur eru á að núna fyrir helgina gerist á Alþingi mestu ótíðindi sem orðið hafa í íslenskri réttarfarslöggjöf á þessari öld.`` --- Það er ekki smátt sagt. --- ,,Svo virðist sem frumvarp er nefnist um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds nái fram að ganga í örtröðinni á síðustu dögum þingsins.`` Ef þetta eru mestu ótíðindi sem gerst hafa í íslenskri réttarfarssögu og réttarfarslöggjöf á þessari öld, þá er málið vont. Þá er það ekki gott mál. Þá held ég að það væri þeim mun meiri ástæða til fyrir hæstv. ráðherra og hæstv. forseta að hverfa nú frá því að afgreiða málið á þessu þingi og vita hvort eigi náist sæmilegur friður um þetta mál, e.t.v. með einhverjum breytingum eða öðrum hætti, til næsta þings.
    Ég ætla ekki að rekja allt það sem segir í þessari grein og ef ég ætlaði mér eitthvað að fara að halda

uppi málþófi, sem ekki er, væri náttúrlega ærin ástæða til þess að lesa greinina. En Már Pétursson segir í þessari grein m.a. að nú eigi menn ekki lengur kost á því að mæta fyrir dómi í heimahéraði heldur þurfi þeir að leggja á sig ferðalög til annarra héraða þó að ekki sé nema til þess eins að bera vitni. Einhver þarf nú að bera kostnaðinn af því. Ég gæti minnst á það, þar sem Húnvetningar voru umtalaðir á fyrri tíð varðandi dóma og sakamál, að ef þetta verður að lögum er það í fyrsta skipti sem ekki er hægt að dæma menn á heimavettvangi í Húnavatnssýslu. Svo er það auðvitað víðar um landið að þeir sem kynnu að komast þar í kast við lögin yrðu að leggja á sig
ferðalög til þess eins að mæta fyrir dómi, annað tveggja að verja sig eða reka réttar síns.
    Síðar segir að önnur afleiðing af þessari lagasetningu verði sú að við fáum forneskjulegra, óþjálla og dýrara réttarfar í þeim málum sem eftir verða hjá hinum dómsvaldslausu sýslumanns- og bæjarfógetaembættum. Það stafar af því að þegar svo er komið að skiptaráðendur, uppboðshaldarar og þeir sem aðfararaðgerðir framkvæma hafa ekki lengur dómsvald verður hverjum óvönduðum þrætumanni það leikur einn að tefja mál með því einu að krefjast úrskurðar eða dóms um hvert atriðið á fætur öðru því þá verður að skjóta ágreiningsmálinu til hins nýja kjördæmisdómstóls og málið tefst á meðan. Ég fæ ekki betur séð, ef þetta er rétt sem ég efa ekki hjá hinum virta fógeta sem hér skrifar, en að ærið muni tefjast mál og þetta muni ekki verða til þess að greiða fyrir framgangi réttvísinnar í hinum ýmsu brotamálum. Ekki er þetta síst í brotamálum af minni gerðinni, sem eru sem betur fer algengari en hin stærri málin, sem oft og tíðum mundi vera hægt að leysa úr með skjótum hætti ef dómstólar í heimahéraði fjölluðu um.
    Síðan segir í grein bæjarfógetans, með leyfi hæstv. forseta: ,,Hin þriðja afleiðing, sem raunar skaðar þó minnst, er sú að þessi lagabreyting mundi leiða af sér óskynsamlega ráðstöfun á fjármunum og það kostar varla undir 750--850 millj. kr. að byggja hina nýju dómstóla, átta nýja dómstóla, og búa þá tölvum og tækjum á nútíma vísu.`` Hér er annað kostnaðarmat en hjá Fjárlaga- og hagsýslustofnun. Ég skal ekki leggja dóm á það. Hitt er víst að þessar tölur bæjarfógetans staðfesta það sem ég hélt fram hér áðan, þ.e. að áætlun og greinargerð Fjárlaga- og hagsýslustofnunar um kostnað vegna þessa máls er a.m.k. varfærnisleg.
    Síðan segir um efni málsins sjálft að það teljist váleg tíðindi ef menn haldi ekki ró sinni í þessum málum varðandi íslenska réttarþróun og fyrir þessum Strassborgardómstóli þar sem t.d. bæði Svisslendingar og Svíar hafi haldið þessari ró. Þótt samlandar þeirra færu í innanlandsdeilur á Strassborgarvettvangi fæ ég ekki skilið betur en að bæði Svisslendingar og Svíar hafi það að engu og haldi sinni eldri dómaraskipan og réttarfarsskipan og telji sér það fullfært.
    Ég ætla ekki að ræða þessa hluti mikið, enda fjallar þetta um lögfræðileg atriði og alþjóðasamninga sem ég hef ekki kynnt mér til þess að fjalla um það eins og þyrfti. Það segir í lok þessarar greinar, með

millifyrirsögninni ,,Lagamenn andvígir frumvarpinu``, að Sýslumannafélag Íslands hafi ályktað einarðlega gegn því. Þar segir einnig að Dómarafélag Íslands hafi gagnrýnt það ákveðið. Og í þriðja lagi segir: ,,Á síðasta aðalfundi Lögfræðingafélags Íslands var dreginn til baka tillöguliður um stuðning við þetta frumvarp.``
    Mér sýnast það vera býsna mikilvægar staðreyndir að þrjú félög dómara og lögfræðinga í landinu hafa ýmist ályktað gegn þessu frv. eða horfið frá því að mæla með því. ( Viðskrh.: Þessi frásögn hefur verið leiðrétt í blaðinu sem vitnað er til.) Nú er hæstv. viðskrh. að grípa fram í og segir að þetta hafi verið leiðrétt. Mér kemur það þá á óvart að þessi tiltekni bæjarfógeti, Már Pétursson, sem á nú uppruna sinn í mínu heimahéraði, fari ekki með rétt mál um samþykktir Dómarafélags Íslands, um samþykktir Sýslumannafélags Íslands og um málsmeðferð á aðalfundi Lögfræðingafélags Íslands. Mér kemur það á óvart. Þó að dagblaðið Tíminn hafi sagt eitthvað annað ætla ég ekkert að gera því skóna að Tíminn viti betur. En hæstv. ráðherra getur vel fengið orðið á eftir. Ég ætla ekkert að standa í samtali við hann um þetta mál. Það er án efa auðvelt fyrir hann að fá hér orðið á eftir og ræða þetta mál.
    Hæstv. forseti. Ég þarf ekki að endurtaka það að ég er ekki lögfróður maður. Ég er búinn að segja það víst tvisvar áður í þessu ræðukorni og ég legg ekki neitt endanlegt mat á efni þessa máls. Það blasir þó við mér að hæstv. ráðherra hefur lýst því yfir í þessum umræðum við 1. umr. að íslenskir borgarar hafi ekki verið misrétti beittir af íslenskum dómstólum eða íslensku réttarkerfi og það er vel. Úr því að svo er sýnist að sæmilega sé fyrir séð á þessum vettvangi. Eigum við ekki að geta sætt okkur við að halda við það svo sem verið hefur og kostar minna en að taka upp nýtt kerfi þó svo að við, þessi fámenna þjóð, teljum okkur þurfa að vera svo stóra, 250 þúsund manns, að framfylgja því sem þeir segja þar úti í Strasbourg um þessi efni. Hann verður þá dýr þessi hjólreiðamaður frá Akureyri og dýrt það upphlaup þess lögmanns sem hóf að reka mál gegn íslensku réttarkerfi fyrir þessum dómstóli úti í Strasbourg og fékk svo í þakklætisskyni að taka þátt í því að semja þetta frv.
    Ég hlýt að brýna þá skoðun mína að við verðum að varast að auka alltaf við ríkiskerfið með nýjum stofnunum, nýjum þáttum kerfisins, bæði á þessu sviði og öðrum. Ef við gáum ekki að okkur í þeim efnum hljótum við að kollsigla þetta þjóðfélag. Hæstv. dómsmrh. veit að undirstöður þjóðfélagsins eru ekki í stakk búnar til þess að standa undir æ stærri yfirbyggingu, yfirbyggingu sem væri verið að auka við og gera dýrari með því að afgreiða þetta mál sem hér er á dagskrá. Ég sé enda enga nauður reka til þess að afgreiða nú frv. sem ekki á að taka gildi fyrr en 1. júlí 1992. Mundi væntanlega ekki sjá á í miklu þó svo
það væri ekki afgreitt fyrr en í lok næsta þings árið 1990 og væri þá meira en tveggja ára aðlögunartími

til þess að koma kerfinu á þó svo að afgreiðsla málsins dragist til þess tíma. En á þeim tíma gæti hæstv. ráðherra væntanlega unnið að því að ná um þetta mál meiri friði en er nú fyrst og fremst hjá þeim mönnum sem um þessi mál fjalla, þ.e. lögfræðingum, dómurum og fógetum, miðað við það sem hér hefur verið vitnað til í þessari grein Más Péturssonar um ályktanir Sýslumannafélags Íslands, Dómarafélags Íslands og Lögfræðingafélags Íslands.
    Ég skal ljúka máli mínu, hæstv. forseti, en ég legg enn til að málinu verði frestað og umræða tekin um þau mál sem hæstv. forsetar þingsins og hæstv. ríkisstjórn hafa komið sér saman um, ef það eru þá einhver mál sem þeir hafa komið sér saman um að nauðsynlegt sé að afgreiða á þessu þingi, en láti hin málin liggja.