Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til laga um lögbókandagerðir. Hér er eins háttað um og með síðasta mál að þetta frv. er fylgifrv. með frv. til laga um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði. Nefndin hefur rætt frv. og kallaði til viðræðu Markús Sigurbjörnsson prófessor. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.
Valdimar Indriðason var fjarstaddur afgreiðslu málsins en undir nál. skrifa Jón Kristjánsson, Kristín Halldórsdóttir, Geir Gunnarsson, Guðni Ágústsson, Kristinn Pétursson og Sighvatur Björgvinsson.