Aðför
Þriðjudaginn 16. maí 1989

     Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til laga um aðför. Nefndin hefur rætt frv. og kallaði til viðræðu Markús Sigurbjörnsson prófessor. Hér er um mál að ræða sem er tengt frv. til laga um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði. Þetta frv. hefur fengið ítarlega meðhöndlun í hv. Ed. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt eins og það kom frá Ed.
    Valdimar Indriðason var fjarstaddur afgreiðslu málsins en undir nál. rita Jón Kristjánsson, Kristín Halldórsdóttir, Geir Gunnarsson, Guðni Ágústsson, Kristinn Pétursson og Sighvatur Björgvinsson.