Tekjustofnar sveitarfélaga
Miðvikudaginn 17. maí 1989

     Egill Jónsson:
    Virðulegi forseti. Ég fagna því að hér skuli ekki hafa komið fram nál. frá minni hl. Það sýnir það eitt að um þessi mál, eins og kom greinilega fram við umræðuna í Nd., eru skiptar skoðanir. Menn hafa ekki náð valdi á því við þessa umræðu að færa þetta mál og afgreiðslu þess í þann farveg sem bærilega getur talist líðanlegur.
    Hér er verið að tala um aðstöðugjöld á vinnslustöðvar landbúnaðarins eins og þær eru gjarnan kallaðar, vinnslustöðvar í sláturiðnaði og mjólkuriðnaði. En það verður vissulega að hafa í huga að þegar verið er að tala um skatta á þessi fyrirtæki og þegar verið er að tala um að það eigi að afnema undantekningar eða forréttindi verða menn líka að hafa hugfast hvert skattlagningarféð fer. Það held ég að við þurfum að gera miklu víðar en bara í þessari grein. Sú skattlagning sem hér er verið að tala um er fjármagnsflutningar frá framleiðslunni, frá þeim stöðum þar sem þessi framleiðsla verður til og yfir í þéttbýlið. Þetta er grundvallaratriði í þessum efnum. Ég vek sérstaklega athygli á þessu í því sambandi að við höfum fengið ýmislegt að heyra um landbúnaðinn og þá framfærslu sem menn hafa svo mjög verið að tala um að þjóðarbúið hefði af þeim atvinnuvegi.
    Ég hripaði það þess vegna upp á blað hjá mér með mjög ófullkomnum hætti hvernig aðstöðugjöld eru lögð á t.d. mjólkurframleiðsluna og mjólkurvörurnar. Mér sýnist að það sé a.m.k. gert þrisvar sinnum eins og málum er nú háttað. Eins og þessi mál koma frá Nd. yrði breytingin sú að aðstöðugjöld yrðu lögð a.m.k. fimm sinnum á sumar mjólkurvörur. Nú skal ég til gamans telja þetta upp.
    Í fyrsta lagi eru bændur landsins aðstöðugjaldaskyldir. Þar eru teknir fyrstu skattarnir af þessari framleiðslu í formi aðstöðugjalda. Frá framleiðendum berst nú straumurinn til vinnslustöðvanna og þar kæmi þá önnur skattlagning ef vinnslustöðvarnar yrðu skattlagðar. Frá vinnslustöðvunum fer svo framleiðslan til dreifingaraðilanna, þ.e. Mjólkursamsölunnar hér í Reykjavík m.a. sem er með mjög stóran hluta af þessari dreifingu og Osta- og smjörsölunnar hér í Reykjavík sem er líka með mjög stóran hluta af þessari dreifingu. Þá kæmi þriðji aðilinn sem væri skattlagður fyrir aðstöðugjöld. Frá þessum dreifingarstöðvum fer þessi framleiðsla inn í verslanirnar sem auðvitað eru líka aðstöðugjaldsskyldar. Þar er þá komið að fjórða þrepinu í þessum efnum. Það eru til fyrirtæki sem eru aðstöðugjaldsskyld sem kaupa þessar vörur í smásölu. Þá kemur fimmta þrepið. Það má vel vera að þau séu fleiri en þessi fimm.
    Þetta sýnir að aðstöðugjaldið sem slíkt er hreint afskræmi og það ætti að sjálfsögðu ekki að vera til í þessari almennu skattlagningu. Ég vek athygli á því að allan þennan feril eru mjólkurvörurnar að hækka í verði og að tekjurnar sem fara yfir í þjónustugeirann í þjóðfélaginu fara ekki til þeirra sem upphaflega mynda þessi verðmæti. Hér er að sjálfsögðu um

fullkomlega óeðlilega skattlagningu að ræða eins og hún birtist. Ég fæ ekki séð að það væri til úrbóta að bæta við tveimur aðilum sem gætu lagt aðstöðugjald á þessa vöru fram yfir a.m.k. þá þrjá sem gera það nú. Þar af leiðandi mun ég greiða þessari tillögu atkvæði.
    Það sem hefur verið fullkomin röksemd fyrir því að lögð séu aðstöðugjöld á þessi fyrirtæki í mjólkuriðnaði er að að sumu leyti eru þau með sambærilega framleiðslu og önnur fyrirtæki, t.d. brauðgerð og annað þess háttar. Það er fullkomlega eðlilegt að sambærilegur rekstur njóti sömu kjara í þessum efnum. Þess vegna finnst mér kostur við álit meiri hl. að sérstaklega skuli tekið fram að sú framleiðsla sem leiðir þannig af sér ójöfnuð í viðskiptum skuli vera skattlögð með sama hætti.
    Ég vek athygli á því að það er ekki búið að leggja aðstöðugjöld á brauðgerð og aðra þess háttar vöru austur í Hornafirði eða norður í landi. Það er auðvitað ekki gert fyrr en sú framleiðsla á sér stað í þessum fyrirtækjum. Þannig er hér um allt aðrar aðstæður að ræða en í hinni hefðbundnu mjólkurframleiðslu og mjólkuriðnaði. Það eru fullkomin rök fyrir því að þær greinar framleiðslu þessara fyrirtækja séu skattlagðar með sama hætti og gerist annars staðar þar sem þær eru framleiddar. En það á ekki að blanda því saman við mjólkuriðnaðinn sem slíkan. Ég fagna því að það skuli vera gerður greinarmunur þar á því á þessu er grundvallareðlismunur.
    En ég vil svo að lokum, herra forseti, lýsa því yfir að ég er ánægður yfir því að þessi umræða skuli hafa farið hér fram í Alþingi, bæði í Nd. og líka í Ed., og ég vona að hún verði til þess að vekja menn til umhugsunar um það hvað aðstöðugjaldið í heild sinni er hæpinn tekjustofn fyrir sveitarfélögin og ranglátur á margan hátt. Ég held að það sé grundvallaratriði í þeim efnum að menn skoði þennan tekjustofn við betra tækifæri því eins og ég sagði er þessi stofn, sérstaklega aðstöðugjaldsstofninn, sérstaklega óhagstæður fyrir dreifbýlið. Hann er fjármagnstilflutningur. Það verður að gjalda tvísköttunar eða þrísköttunar eins og allir vita og það er ósanngjarnt og óeðlilegt. Ég fagna því að þessi mál hafi komið til umræðu í Alþingi. Ég vona að það verði til þess að menn líti meira til með því í framtíðinni hvernig beri að haga þessari skattlagningu.